Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
21.3.2013 | 07:03
Launafólk greiðir tekjuskatt, álbræðslur ekki
Alveg er stórfurðulegt að tvö álfyrirtæki, Alkóa og Rio Tintan í Straumsvík, greiði ekki tekjuskatt.
Íslenskt launafólk greiðir hærri tekjuskatt heldur en þessi fyrirmyndafyrirtæki íslenskra hægrimanna!
Alkóa byggir starfsemi sína auk þess á umfangsmestri röskun á íslenskri náttúru og auk þess grafalvarlegum ruðningsáhrifum í íslensku atvinnulífi.
Og auk þess getum við minnst á að ekkert þessara 3ja álfyrirtækja greiða svo mikið sem eyrisvirði í umhverfisskatt sem víðast hvar er. Nemur hann um 25 Evrum af hverju tonni CO2.
Framleiðsla álbræðslnanna 3ja nemur um 1 milljón tonna af áli á ári. Við framleiðnina verður um tvöfalt magn CO2 þannig að meðgjöfin er 50 milljónir Evra á ári eða yfir 8 milljarðar króna!
Af hverju er ekki lagður á umhverfisskattur á Íslandi eins og í öðrum löndum? Er nauðsynlegt að gefa hann? Eru kannski einhverjir stjórnmálamenn eða jafnvelu heilu stjórnmálaflokkarnir sem njóta góðs af?
![]() |
Ekki greitt krónu í tekjuskatt í 10 ár |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.3.2013 | 12:07
Hvað á gjaldið að vera hátt?
Í meira en 20 sumur hefi eg verið á feðinni með erlenda ferðamenn á Íslandi. Stundum kemur fyrir að eg er spurður hvar borgað sé fyrir aðganginn? Mikil er undrun þessara ferðamanna þegar þeim er tjáð að gjaldtaka tíðkist ekki.
Nú hafa þær fréttir borist að forsvarsmenn Bláa lónsins hyggjast rukka 10 evrur frá ferðafólki sem hyggst einungis skoða baðstaðinn og notfæra sér aðra aðstöðu þar eins og salerni. Þetta er sjálfsagt tíðkast víða.
Nú þarf að hugsa um mál þjoðgarðsins á Þingvelli alveg upp á nýtt. Þarna hefur verið gegnumstreymi umferðar áfram austur yfir Lyngdalsheiðina norðan verða og yfir sumarmánuðina norður frá Þingvelli, um Kaldadal og Uxahryggi.
Spurning er hvort ekki þurfi að taka upp veggjald +aðstöðugjald. En vegna skipulagðra ferða þarf að undirbúa þessa ákvörðun með meiri fyrirvara. Góð lending væri að setja fremur lágt gjald til að byrja með en hækka síðar eftir því sem aðstaða verður bætt, salerni byggð, fleiri upplýsingastöðvar og bílastæði og þ.h. Þá er spurning hvort taka beri upp bókunarkerfi þar sem aðeins hópferðabílum verði heimilt að aka um þjóðgarðinn. Þetta er víða erlendis eins og í Bandaríkjunum.
En við Íslendingar erum áratugi ef ekki aldir á eftir öðrum í þessum málum.
Ljóst er að gjaldtaka verði þjóðgarðinum á Þingvelli sem og öðrum þjóðgörðum mikilsverður tekjustofn í framtíðinni.
![]() |
Öngþveiti framundan á Þingvöllum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.3.2013 | 12:14
Ekki gleyma nagladekkjunum
Auðvitað er umtalsvert af svifryki upphaflega fíngerð aska sem berst langt að með vindum. Hins vegar er mjög mikið ryk sem á uppruna sinn í að nagladekk spæna upp malbikið. Án nokkurs efa er þessi hluti svifryksins mun alvarlegri enda mengað þungamálmum áf nöglunum og tjöru. Svifrykið er varhugavert og engum hollt.
Óhófleg notkun nagladekkja þar sem þeirra er ekki mikil þörf eins og á höfuðborgarsvæðinu er til vansa. Annað mál er fyrir þá sem búa og starfa úti á landi og þurfa að fara yfir erfiðar heiðar og þar sem aðstæður eru öllu verri.
![]() |
Svifryk yfir heilsufarsmörkum í dag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.3.2013 | 11:40
Er áróður Framsóknarflokksins fyrir heimsskingja?
Í nýjustu skoðanakönnuninni kemur fram að eftir því sem menntun er minni er meiri líkur á að viðkomandi kjósi Framsóknarflokkinn sinn! Gunnar Bragi er samkvæmur þessu enda gengur svona della vel í lítt menntað fólk.
Álykta má af þessari skoðanakönnun að eftir því sem kjósandinn er heimskari eru meiri líkur á að hann velji Framsóknarflokksinn og falli fyrir ódýrum áróðri og málflutningi hans.
Enn ein staðfestingin er komin fram að við ættum að biðja guðina að forða oss frá Framsóknarflokknum.
Áróður hans er eins einfaldurog unnt er enda honum ætlað að fiska atkvæði þeirra sem ekki leggja mikið á sig að velja stjórnmálaflokk eftir vanlega íhugun.
Góðar stundir en án Framsóknarflokksins.
![]() |
Skrípaleikur ríkisstjórnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.3.2013 | 12:33
Raunhæf kjarakrafa
Langur vinnutími á Íslandi hefur aldrei skilað neinu fyrir launþega. Langi vinnutíminn kom hins vegar vinnuveitendur að góðu gagni enda dröttuðust lengi vel flestir örþreyttir heim eftir langan vinnudag sem skilaði nema kannski rétt fyrir nauðþurftum. Laun hafa lengi verið mun lakari en í nágrannalöndum okkar.
Í raun skilar styttri vinnutími betri afköstum. Vinnuveitendur hafa lengi vitað að mun betri afköst er að vænta af 2 starfsmönnum í 50% starfi en einum í 100% starfi. Því miður eru launin ekki alltaf í samræmi við afköst eða vinnuframlag.
Að krefjast styttingar vinnutíma úr 40 tímum í 36 er í raun um 10% kjarabót. Þó svo að ekki verði við þessari kröfu að öllu leyti þá er líklegt að þessu vderði skipt í 2 eða jafnvel fleiri áfanga í væntanlegum kjarasamningum.
Fram til 1972 var vinnuvikan 44 tímar. Var þá víða unnið fram að hádegi á laugardögum ef þessum 4 tímum var ekki deilt niður á virku dagana.
![]() |
Krefjast 36 stunda vinnuviku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.3.2013 | 12:21
Veit hann af áformum Sigmundar?
Nú hefur Sigmundur Davíð gefið út yfirlýsingar um gull og græna skóga og sagt bankabröskurunm langt nef ef ekki stríð á hendur. Spurning hvort Kínverjinn með alla vasa stútfulla viti af þessum áformum.
En sjálfsagt þarf Kínverjinn ekki að óttast, Sigmundur segir eitt í dag en gerir allt annað á morgun ef hann kemst til valda.
En það er dæmigert að braskarasnir virðast hafa mjög mikið umleikis og koma ár sinni betur fyrir borð meðan venjulegt fólk er í sífelldu basli.
![]() |
Huang tekur þátt í útboði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.3.2013 | 18:56
Góðar fyrirmyndir
Eftir þessa löngu þulu finnst mér skorta á að vísa til þeirra siðareglna (Codex ethicus) sem allir lögmenn ættu að hafa í heiðri. Sú skylda er lögð á lögmenn að sinna störfum sínum af nærgætni og með réttlæti í huga. Þegar lögmenn sýna af sér háttsemi að vaki tortryggni, t.d. að leggjast gegn samvinnu að upplýsa mál, þá er auðvitað ekki von á góðu. Er mögulegt að rannsóknaraðili gruni lögmann um græsku og jafnvel hlutdeildarbrot?
Örn Clausen hæstaréttarlögmaður var þekktur sem afburða verjandi margra þeirra sem voru í þeirri stöðu að koma sér í slæm vandræði í samfélaginu og þar með vitlausu megin við lögin. Oft þurfti hann að leiðrétta ranghugmyndir skjólstæðinga sinna sem stundum vildu grípa til ótrúlegra málsbóta sem Erfni leist ekkert á. Átti Örn því oft frumkvæði að sá grunaði og ákærði játaði á sig sakir og síðan krefjumst við vægustu refsingar. Örn átti með þessu góðan þátt í að einfalda sakamál enda engar aðrar haldbærar varnir til sem leiddu til sýknu.
Töluvert ber á að verjendur þeirra sem komu við sögu spillingar og bankahrunsins vilji teygja sig ansi langt í vörn sinni. Mættu þeir taka sér Örn Clausen sér til fyrirmyndar í þeim efnum.
Vel kann að vera að ungir lögfræðingar séu fullbaráttuglaðir, vænti þess að ná betri árangri en er augljóst. Alltaf er meðalhófsreglan sem menn ættu að hafa í huga og að rétt sé að reyna að finna góða lendingu í þessum oft mjög snúnu og erfiðu málum.
Góðar stundir.
![]() |
Hlerað fyrir og eftir yfirheyrslu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.3.2013 | 23:07
Verstu afglöp í sögu Íslands
Ákvörðunin um Kárahnjúkavirkjunar verður sennilega talin vera umdeildasta ákvörðun í sögu landsins þar sem ákvörðun var tekin gegn betri vitund um að allt væri með felldu um sennilega afleiðingu á náttúru landsins. Þessi ákvörðun tengdist atkvæðaveiðum Framsóknarflokksins á Austurlandi, höfuðvígi Halldórs Ásgrímssonar fyrrum forsætisráðherra, sennilega eins af spilltustu stjórnmálamönnum síðustu áratuga.
Alltaf höfðu náttúrufræðingar gert sér grein fyrir senniegum afleiðingum virkjunarinnar en stjórnmálamenn tóku ákvörðunina, þrátt fyrir margfaldar aðvaranir. Skipulagsstofnun lagðist gegn virkjuninni enda á þeim bæ talið betra að láta náttúru njóta vafans. En Siv Friðleifsdóttir þáverandi umhverfisráðherra snéri úrskurði Skipulagsstofnunar við og leyfði virkjun með örfáum klasturslegum breytingum. Og hún fullyrðir í viðtali í dag að ákvörðun sín hafi verið vel ígrunduð eða eins og segir á heimasíðu RÚV: Siv ... telur að það hafi verið rétt ákvörðun hjá sér að heimila Kárahnjúkavirkjun, þrátt fyrir neikvæð umhverfisáhrif.
Sagt er að silfurpeningarnir 30 hafi stöðugt verið í umferð síðan Júdas Ískaríot fékk þá í hendur á sínum tíma. Þeir eru sagðir hafa ávaxtast einna best af öðrum sjóði gegnum aldirnar, farið um blóðugar hendur margra og ætíð leitað uppi bestu ávöxtunarkosta.
Spurning er hvort þeir hafi verið í umferð hér á landi skal ósagt látið. Ekki kæmi það á óvart þar sem einstakur skilningur fyrir þörfum stóriðju hefur verið sýndur af ýmsum stjórnmálamönnum íslenskum. Víða um heim þykir það jafnvel jaðra við ókurteysi sé þessum stjórnmálamönnum verið hyglað ríkulega. Þess má geta að Alkóa hinn ameríski er stórtækur aðili sem tengist hergagnaiðnaðinum ameríska og braskinu kringum vopn og vopnasölu þrátt fyrir fullyrðingar um annað. BNA hefur um 70% af vopnasölu heimsins á sínum snærum!
Þeim sem tóku ákvörðunina um byggingu Kárahnjúkavirkjunar verður ekki fyrirgefið því þeir vissu hvað þeir voru að gera!
Góðar stundir en án afglapa Framsóknarflokksins!
![]() |
Vilja fund með Landsvirkjun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.3.2013 | 22:43
Einföldun blekkingarmannsins mikla
Sigmundur Davíð er ekki af baki dottinn, áfram heldur hann við sinn keyp og reynir hvað hann getur að setja fram vafasamar fullyrðingar sem ekki eiga sér nein rök í þeim tilgangi að næla í atkvæði þeirra sem ekki varast blekkinguna.
Að fullyrða að þessi ríkisstjórn hafi viljað axla einhverja Icesave ábyrgð er rugl. Auðvitað voru gerðir samningar, reyndar sá fyrst í október 2008 og seinni samningar byggðust á enda ríkisstjórnin bundin af honum. En nú hefur komið í ljós, að aldrei hefði fallið ein einasta króna á ríkissjóðs vegna Icesave vegna þess að nægar innistæður af útistandandi skuldum Landsbankans munu skila sér betur en talið var.
Í heil þrjú ár hefðu Íslendingar notið betri viðskiptakjara í skjóli hærra lánshæfismats. Björgvin Guðmundsson viðskiptafræðingur hefur reiknað út, að hefði Ólafur Ragnar undirritað Icesave, þá hefi þjóðarbúið staðið a.m.k. 60 milljörðum betur. Það eru hátt í 200.000 á hver´t mannsbarn í landinu.
Sigmundur Davíð þusar um að skuldir heimilanna eigi að greiðast af gróða bankanna. Hvernig hann vill fara þessa leið þegir hann um enda telja þeir sem hafa þekkingu á þessum málum hana vera ófæra þó hún kunni að líta vel út á pappír. Má vísa í leiðara Fréttablaðsins mánudaginn 11.3. s.l.
Þessi formaður Framsóknarflokksins er rökþrota þó hann slái um sig vikurnar fyrir kosningar. Hann mun þegju þunnu hljóði eftir kosningar. Allt er lagt undir til að afla atkvæða þó svo að hann veit eða megi vita, að þetta gengur ekki upp.
Lýðskrumarar hafa því miður oft náð furðu miklum árangri. Sigmundur er einn af þeim varhugaverðustu sem þjóðin ætti að varast!
Góðar stundir en án lýðskrumara!
![]() |
Voru til í að taka á sig Icesave-skuldirnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.3.2013 | 18:18
Skynsamlegt að setja ný náttúruverndarlög
Þrátt fyrir ýmsa annmarka í frumvarpinu þá verður að telja mikilsvert að setja ný náttúruverndarlög m.a. til að koma að virkari viðurlögum vegna utanvegaaksturs og annarra efnisatriða.
Annmarkarnir eru m.a. þeir að í 21. gr. frumvarpsins er ekki tekið nægjanlega á að koma í veg fyrir rask sem getur orðið allan sólarhringinn á vötnum landsins en ekki aðeins yfir blánóttina! Eg vil banna notkun og umferð báta og annarra farartækja sem sum hver er ætlað jafnað til úthafssiglinga! Notkun slíkra farartækja er mikil sums stasðar eins og Skorradalsvatni og hefur afdrifaríkar afleiðingar á fjölbreytt fuglalíf.
Þá er mjög umdeild ákvæði um nánast einræðisrétt Náttúrufræðistofnunar um hvað megi rækta, hvernig og hvar sem setur atvinnustarfsemi í uppnám, eins og garðyrkju og skógrækt.
Æskilegt væri að þessi ákvæði væru endurskoðuð en í versta falli mætti leiðrétta þau síðar á næsta þingi ef tími dugar ekki til vegna anna.
Góðar stundir!
![]() |
Vilja afgreiða frumvarp um náttúruvernd |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Siðvæðing í stjórnmálum
Nýjustu færslur
- 24.11.2014 Hvar er jafnréttið?
- 7.11.2014 Er réttarríki á Íslandi?
- 27.10.2014 Byssumálið: krefjumst opinberrar rannsóknar
- 8.10.2014 Sekur eða saklaus?
- 8.9.2014 Jón og séra Jón
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
-
Aðalsteinn Sigurgeirsson
-
Alfreð Símonarson
-
Andrea J. Ólafsdóttir
-
Andrés Kristjánsson
-
Andri Geir Arinbjarnarson
-
Anna Benkovic Mikaelsdóttir
-
Arnar Pálsson
-
Axel Jóhann Hallgrímsson
-
Ágúst H Bjarnason
-
Ágúst Ólafur Ágústsson
-
Árni Þór Sigurðsson
-
Ásgeir Eiríksson
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Baldur Hermannsson
-
Baldur Kristjánsson
-
Baldvin Jónsson
-
Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
-
Berglind Steinsdóttir
-
Birgir R.
-
Bjarki Steingrímsson
-
Bjarni Harðarson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Björgvin Björgvinsson
-
Björgvin Guðmundsson
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
busblog.is
-
Bwahahaha...
-
Dagný
-
Einar Ólafsson
-
Gammur drils
-
Guðfríður Lilja
-
Guðjón Baldursson
-
Guðjón Petersen
-
Guðmundur Steingrímsson
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Halldór Sigurðsson
-
Hallvarður Ásgeirsson
-
Haraldur Haraldsson
-
Heidi Strand
-
Helga Auðunsdóttir
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Herdís Þorvaldsdóttir
-
Hilmar Gunnlaugsson
-
Hjörleifur Guttormsson
-
Hlynur Hallsson
-
Hrannar Björn Arnarsson
-
Hvíti Riddarinn
-
Högni Snær Hauksson
-
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
-
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Jens Guð
-
Jón Bjarnason
-
Jón Halldór Guðmundsson
-
Jón Ingi Cæsarsson
-
Kaffistofuumræðan
-
Karl Tómasson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Kristbjörg Erla Hreinsdóttir
-
Kristbjörn Árnason
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Lára Stefánsdóttir
-
Loftslag.is
-
Lúðvík Júlíusson
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
María Kristjánsdóttir
-
Máni Ragnar Svansson
-
Morgunblaðið
-
Ólafur Ingólfsson
-
Ólafur Þór Gunnarsson
-
Ólafur Örn Jónsson
-
Ómar Bjarki Smárason
-
Ómar Ragnarsson
-
Ósk Vilhjálmsdóttir
-
Perla
-
Pjetur Hafstein Lárusson
-
Rúna Guðfinnsdóttir
-
Sigurður Hreiðar
-
Sigurður Ingólfsson
-
Sigurjón Þórðarson
-
Steingrímur Helgason
-
Svanur Jóhannesson
-
Sveinn Atli Gunnarsson
-
Theo
-
Torfusamtökin
-
Trausti Jónsson
-
Umhverfis- og náttúrufræðifélag Mosfellsbæjar
-
Úrsúla Jünemann
-
Valdís Jóhanna Guðbjartsdóttir
-
Vefritid
-
Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock)
-
Þorsteinn Briem
-
Þorsteinn Erlingsson yngri
-
Þorsteinn Siglaugsson
-
Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
-
Ævar Rafn Kjartansson
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 17
- Frá upphafi: 243915
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar