Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Hvernig verða þinglok?

Nú þarf að taka upp aðferð Torfa Hjartarsonar tollstjóra og ríkissáttasemjara. Þegar kjaradeilur höfðu þróast í þá átt að verkfall var fyrirsjáanlegt, boðaði Torfi deiluaðila á sinn fund: Hér vinnum við að þessari deilu og dyrnar verða ekki uppluktar fyrr en nýr kjarasamningur hafi verið gerður.

Nú ætti ekki að opna dyr þinghússins fyrr en samþykkt hafi verið ný stjórnarskrá. Ef þetta gengur ekki þá ætti ríkisstjórnin að gefa út nýja bráðabirgðastjórnarskrá sem kæmi í stað þeirrar bráðabirgðastjórnarskrá sem gilt hefur frá 1944. Rétt er að vísa í niurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu um stjórnarskrárdrögin sem nú hafa verið til umfjöllunar í þinginu en braskaraliðið í stjórnarandstöðunni er á móti.

Þá þarf að gefa út bráðabirgðalög um skoðanakannanir, hverjir megi gera þær, aðferðafræði, birting og rétt að mæla viðhorf en ekki móta. Við verðum að gera okkur grein fyrir að skoðanakönnun og skoðanankönnun er ekki það sama. Sumar eru jafnvel þannig fram settar að innbyggt svar er innifalið í spurningunni. Hver kannast ekki við ef neitað er um svar: Er líklegt að þú veljir Sjálfstæðisflokkinn .....?

Því miður hafa svona vinnubrögð verið viðhöfð. Þetta er siðleysi undir yfirskyni vísinda.


Geta lygamælar komið að gagni?

Bandaríska alríkislögreglan FBI kom einu sinni með nýja uppgötvun sem var beitt óspart á grunaða menn til að kanna hvort mætti treysta þeim.

Sjálfsagt hafa komið margar útgáfur af lygamælum og þeir reynst misjafnlega.

Oft má sjá þegar menn ljúga eða segja eitthvað og fullyrða gegn betri vitund. Þeir hegða sér stundum öðruvísi en þeir eru vanir. Þannig var einn þingmaður sem er látinn fyrir allnokkrum áratugum oft talinn ljúga þegar hann tók niður gleraugun og mælti alvarlega til andstæðinga sinna. Sennilega fór þetta í fínustu taugar þeirra og töldu hann ljúga. Í raun var þingmaður þessi, Lúðvík Jósefsson að árétta það sem hann hafði verið að segja og ekki alveg á hreinu hvað andstæðingar hans eiga við þegar þeir grunuðu hann um græsku.

Sigmundur Davíð setur yfirleitt alltaf upp sérkennilegan glaðhlakkalegan svip þegar hann fullyrðir eitthvað sem getur ekki staðist. Þannig lofar hann kjósendum Framsóknarflokksins skuldauppgjöf sem hann getur ekki verið í aðstöðu til að veita, jafnvel þó hann sé auðugasti þingmaður landsins sem við sitjum nú uppi með.

Góðar stundir.


mbl.is Beiti blekkingum til að afla stuðnings
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leyndin um Kjarval

Fyrir nokkru birtist í heillri opnu DV yfirlit frá Ingimundi Kjarval  um vægast mjög dularfullt mál sem tengist afa hans, Jóhannesi Kjarval. Svo virðist eins og Sjálfstæðisflokkurinn hafi eignað sér þennan listamann meðan stjórnmálaflokkur þessi stýrði Reykjavíkurborg.

Þessi lesning er vægast sagt furðuleg og ef rétt reynist, enn furðulega að svona geti gerst í lýðfrjálsu landi. Ingimundur segir að engin skjöl, erfðaskrá eða aðrir löggerningar hafi varðveist og svo virðist að eignarheimild Reykjavíkurborgar byggist á munnlegum heimildum! Nú er erfðaréttur að höfundarrétti skýr og ekki verður honum afsalað nema með mjög ströngum formlegum hætti.

Ingimundur kveður fyrrum forstöðumann Kjarvalsstaða hafa nánast einokað Kjarval þannig að ættingjar hans, börn né aðrir áttu ekki aðgang að honum.

Þetta allt saman er mjög tortryggilegt að ekki sé meira sagt. Og málsmeðferð fyrir Mannréttindadómstól Evrópu er að sama skapi einkennileg. Getur verið satt að sonur fyrrum forstöðumanns sé kvæntur dómara í Mannréttindadómstólnum sem hafði tök á að vísa þessu máli frá?

Sjálfsagt er að þessi mál séu rannsökuð af hlutlausum aðila enda eru fullyrðingar nokkuð ákveðnar og studdar vísbendingum sem kunna að vera sannar.

Kjarval var um margt óræð persóna. Hann var fyrir marga hluta sakir mjög sérkennilegur og eftirminnilegur þeim sem umgengust hann. Í RÚV hefur verið lesin nokkur sendibréf sem honum bárust og lýsir vel hans innri manni hvaða viðhorf hann hafði. Hann var ekki aðeins mikilvirkur í málaralist heldur var hann skáld og ritaði greinar í blöð. Líklega er ein þekktasta greinin hans sem birtist skömmu eftir stríð og fjallaði um hvalafriðunarskip. Sennilega er Kjarval einn fyrsti Evrópumaðurinn sem fær þá hugmynd að gera út skip til að skoða hvali en ekki veiða þá eins og tíðkast hefur um aldir.

Þeir sem lesa þessar línur hvet eg til að lesa DV.

Góðar stundir.  


mbl.is Óvenjuleg bygging sem eldist vel
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einn af öngum Kalda stríðsins

Kalda stríðið var ömurlegt í marga staði. Það var hræðilegt að alast upp í ótta um gjöreyðingu heimsbyggðarinnar. Þessi tvö hernaðarveldi, Bandaríkjamenn í Ameríku og Rússar, höfðu allar þjóðir á sínu áhrifasvæði í hendi sér, rétt eins og mús í fjalaketti. Ef einhver sjálfstæð hugsun var sett fram, þá var að vænta að maður var kveðinn í kútinn með einhverri rússagrýlu. Sjalfstæð hugsun mátti hvergi fyrirfinnast.

Þegar Þorskastríðið sem hófst 1. september 1972 var á suðupunkti vorið 1973, réðst múgur á breska sendiráðið eftir mótmælafund á Lækjartorgi. Eg var staddur þar og mér fannst einkennilegt að sjá tryllinginn og ofbeldisdýrkunina sem blossaði upp. Nánast hver einasta rúða í húsinu sem er vestari „Sturlubræðrahöllin“ við Laufásveg, var mölbrotin. Mátti sjá nokkra vaska sveina, marga nú þjóðkunna sem þar hvöttu landa sína til dáða. Síðar kom í ljós að sendiráðsritarinn Bryan Holt var staddur í húsinu og tjáði hann frá að grjót og glerbrot hafi verið alls staðar og mildi að hann stórslasaðist ekki. Það varð honum til lífs að stórt eikarborð varð honum skjól.

Þetta var einkennileg uppákoma. Auðvitað bar íslenska ríkið fulla ábyrgð og á kostnað skattborgara voru glerrúður sendiráðsins endurnýjaðar. Mér fannst þetta vera mikill vansi að svona lagað gæti gerst. Íslenska lögreglan gerði ekkert til þess að koma í veg fyrir þessi ósköp þó svo að okkur beri skylda til að vernda hagsmuni erlends ríkis hvað sendiráð og sendisveitir viðkemur gagnvart ofbeldi og lögleysum sem þessum.

Þessi undirskriftasöfnun um „Varið land“ var að mörgu leyti einkennileg. Þarna var þjóðinni stillt upp við vegg og ekki allar undirskriftirnar fengnar með góðu. Voru miklar umræður um málið og undirskriftasöfnunin gagnrýnd harðlega í fjölmiðlum einkum í Þjóðviljanum. Víða voru þessir undirskriftarlistar frammi á vinnustöðum með vitund og vilja yfirmanna. Þarna gafst kjörið tækifæri að fá staðfestingu á því hvaða skoðanir starfsmenn höfðu. Þessi undirskriftasöfnun tengdist því mjög upplýsingaöflun sem íhaldsöflin á Íslandi gátu nýtt sér vel. Auðvitað voru þeir sem aðhylltust verkalýðshreyfinguna og virkt lýðræði á móti aðferð sem þessari.

Samfélagið á Íslandi var ekki mjög þróað þegar þarna var komið sögu. Þeir sem gagnrýndu og það voru margir, voru margir hverjir lögsóttir einkum fyrir brot gegn ærumeiðingum en þeir sem þátt tóku í skipulagi og framkvæmd þessarar umdeildu undirskriftasöfnunar voru eðlilega mjög í skotlínunni og gáfu kannski tilefni til þess. Þarna voru fulltrúar ýmissa hagsmunahópa sem áttu það sameiginlegt að vera hallir undir hægri menn.

Eigi sakna eg Kalda stríðsins. Þó svo við Íslendingar vorum blessunarlega „réttu“ megin við Járntjaldið, þá voru þetta slæmir tímar. Og enn getum við séð að sumt í áróðri hægrimanna er með beina tilvísun til þessara tíma þegar fólk hafði meiri áhyggjur að drepast úr rússneskri geislavirkni en amerískri.

Áróðurinn er nefnilega „lævís og lipur“. Við heyrum suma af stjórnmálamönnunum að þeir vilji bjóða kjósendum sínum afslátt á skuldum, gull og græna skóga ef þeir kjósi „rétt“. En hver á að borga skuldirnar hvort sem óreiðumenn eða skilvísir einstaklingar eiga í hlut? Af hverju lofa þeir ekki einfaldlega góðu veðri næsta kjörtímabil komist þeir til valda? Þeir myndu þá alla vega ekki ljúga meiru en þeir sem boða skuldaaflausn og betri tíð með aukinni stóriðju sem kemur engum að gagni nema álfurstum, bröskurum og verktökum.

Góðar stundir! 


mbl.is Þegar þjóðinni var heitt í hamsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Grímsfjalla ferðaþjónustan hugsuð sem æfingabúðir kínverska hersins?

Engum heilvita manni dettur í hug að leggja himinháar fúlgur til að byggja ferðaþjónustu á Grímsstöðum með gólfvöll og ýmsu fleiru.

Ferðaþjónustuna er unnt að hafa opna kannski 2-3 mánuði, mesta lagi 4 en reka þarf forréttinguna allt árið!

En auðvitað mætti reka þarna æfingabúðir við erfiðar aðstæður. Getur það verið að hugmynd kínverska fjárfestisins sé að kínversku „ferðamennirnir“ séu í raun og veru hermenn sem mætti þjálfa á þessum hjara veraldar?

Aðstæður eru ákjósanlegar þarna, aftakaveður gengur þarna yfir öðru hverju þegar ekki verður stundað gólf eins og á fögrum sumardegi en unnt að flækjast um á fjöllum, týnast og láta finna sig aftur.

Íslendingar eru margir hverjir „tækjagalnir“. Þeir eru spenntir fyrir torfæruferðum, slarki og ævintýrum. Sjálfsagt er kínverski fjárfesrtirinn að „virkja“ þessi áhugamál sem landar vorir eru hugfangnir af. Sennilega hefðu ýmsir atvinnu af.

Góðar stundir!


mbl.is Gæti reynst erfitt að spila golf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjötugur og eldist vel

Smám saman er að renna upp fyrir stjórnmálamönnum að ferðaþjónusta er að verða aðalatvinnuvegur íslensku þjóðarinnar. Við höfum notið þess að hafa fengið í arf frá „bandaríkjamömmu“ kaldastríðsáranna þennan mikilvæga flugvöll, þessa dýrmætu eign sem við hefðum aldrei haft neina möguleika á að byggja sjálfir. Aðstaða fyrir flugvélar er mikilvæg og undirstaða fyrir ferðaþjónustu.

En við verðum sennilega brátt að fara að huga að byggja upp aðstöðu fyrir millilandaflug á fleiri stöðum. Egilsstaðir eru vel í sveit settir þar sem nánast ekkert þrengir að. Nálæg fjöll eru ekki til trafala, aðflug eins og best verður á kosið og völlurinn er allfjarri sjó sem telst góður kostur. Þá er Akureyri sem er fremur vandræðaflugvöllur að mörgu leyti einkum vegna þess að lengra er þangað frá meginlandi Evrópu og á vetrum er ókostur að þurfa að fljúga yfir hálendið í aðflugi. Þá er ekki víst að Akureyringar myndu sætta sig við mikið vaxandi flugtraffík, enda töluvert mikil hljóðtruflun við flugtak stórra flugvéla.

Umtalsverðu fé hefur verið veitt til rannsókna á Hólmsheiði vegna innanlandsflugvallar þar. Og sýnist margt benda til þess að sá kostur sé að mörgu leyti fremur ókostur.

Á næsta aldarfjórðung og jafnvel fyrr verður að byggja nýjan millilandaflugvöll á Suðurlandi til að „létta“ álagið á Keflavíkurflugvelli sem og ferðaþjónustunni þar. Til greina kemur flugvöllur í Skaftáreldahrauni sem hefur þann kost að flug þangað er um hálftíma skemra en til Keflavíkur. Rannsaka þarf aðstæður þar en líkindi benda til að veðurfarsaðstæður þar séu betri en á Keflavíkurflugvelli. Þetta myndi verða ferðaþjónustu mikil lyftistöng og stórefla alla þjónustu og atvinnu í Skaftafellssýslu. Vatnajökulþjóðgarður er stærsti þjóðgarður Evrópu og hefur allt sem hugurinn girnist: jöklaveröld, eldfjöll, jarðhita, sanda, hraun, jökulár og jafnvel fossa.

Mikilvægt er að þeir stjórnmálamenn sem hafa bundið sinn hug við endalausar virkjanir og stórvirkjanir vakni loksins og geri sér grein fyrir því að unnt sé að auka atvinnulíf landsmanna á mun virkari og hagkvæmari hátt en stóriðudrauma og rafmagnsframleiðslu.

Náttúra landsins er meira virði óvirkjuð en virkjuð í þágu ferðaþjónustunnar!

Góðar stundir!


mbl.is Sjötugur flugvöllur slær met
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýr afglapasamningur?

Hvernig samið hefur verið við útsmogna stóriðjumenn er eins og börn eru að höndla við bíræfna prangara. Þeir fá að darka í landinu að vild, gríðarleg spilling í náttúru landsins og ekkert sem lítið kemur út úr þessum samningum nema helst eitthvað fyrir rafmagn og vinnulaun starfsmanna.

Tekjuskattur vart greiddur enda hafður sá möguleiki að koma hagnaði undan til skattaparadísa. Engin ákvæði um mengunarkvóta en hann gefinn! Það kemur því á óvart að við erum að greiða fyrir mengun þegar við fljúigum og jafnvel ökum í okkar bifreiðum. Stærstu mengunaraðilarnir borga ekki krónu!

En sú dasemdarsýn sem álflokkarnir sýna: Fyrst voru það Framsóknarflokkurinn og Sjálfsæðisflokkurinn sem semja hrikalega af sér. Síðan eru síðari ríkisstjórnir bundnar af þessum svikasamningum.  

Mjög líklegt er að Katrín Júlísdóttir semji um enn einn vandræðasamninginn sem erfitt verður að breyta.

Fordæmið er jú gefið!

Þegar fyrstu samningarnir voru gerðir við álbræðslu ISAL í Straumsvík var samið um framleiðslugjald fyrir hvert framleitt tonn. Frá þessu var illu heilli horfið 2007. Það ár varð síðasta ár framleiðslugjaldsins sem skilaði þó nokkru og ekki var unnt að koma þeim miklu fjármunum undan.

Svikin við þjóðina voru innsigluð á sumarþinginu 2007. Þá voru þessir vandræðasamningar lögleiddir sem aldreri hefði átt að gerast!


mbl.is Samningar um Helguvík í nánd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þreytt þingkempa?

Jóhanna Sigurðardóttir á mjög merkan þingferil að baki. Hún er ein af þeim þingmönnum sem einna lengstan starfsaldur hefur að baki, vel ef ekki sem lengst hefur setið á þingi af þeim sem nú sitja.

Síðasta kjörtímabil hefur verið einstaklega erfitt. Það var ekkert sældarbrauð að finna leið út úr þeim ógöngum sem bankahrunið skildi samfélagið í. Forystusveit Sjálfstæðisflokksins vissi lengi vel að ekki væri allt með felldu en létu eins og ekkert væri að. Var því miður ekkert aðhafst í aðdraganda hrunsins þrátt fyrir að vita mátti að ekki væri unnt að forðast þessa óvenjuhörðu lendingu í efnahagshruni þjóðarinnar og nánast allt skilið í kaldakoli.

Endurreisnin var erfið. Fyrst þurfti að fara yfir stöðu mála og finna hagkvæmustu leiðina. Það var ekki auðvelt enda var það bæði Jóhönnu og Steingrími J. mikilsvert að hlífa sem mest samfélagsuppbyggingunni. Reynt var að skerða heilbrigðisþjónustu og menntakerfinu eftir því sem unnt var. En hvarvetna var skorið niður.

Síðustu misserin hafa Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur verið að reyna að bæta stöðu sína. Þessir flokkar báru fyrst og fremst ábyrgð á einkavæðingu bankanna, ofþenslu og gervigóðæri. Nú telja þessir forystusauðir sér allar leiðir færar.

Þegar litið er til baka hefur „Þjóðarskútunni“ verið siglt á kyrrari sjó. Allt viðskiptaumhverfi er orðið  mun hagstæðara án þess að braskaranir hafi nað að koma ár sinni fyrir borð, Sérstakur saksóknari er kominn á gott skrið að rannsaka og ákæra glæframenn þó seint verði náð til þeirra allra, Stjórnarráðið gert betra og hagkvæmara í rekstri og fyrir liggur frumvarp að nýrri stjórnarskrá sem fullætrúar braskara á þingi kappkosta að koma í veg fyrir að verði samþykkt með ýmsum ráðum.

Er von að þessi gamla þingkempa þyki vera komið nóg af svo góðu?

Í raun ætti að þreyta stjórnarandstöðuna sem mest og ekki slíta þingi fyrr en í fyrsta lagi að ný stjórnarskrá hafi verið samþykkt. Að slíta þingi of snemma er „vatn á myllu kölska“. Nú þarf að duga en drepast. Það eru ekki nema nokkrar vikur til þingkosninga Jóhanna enda páskafrí framundan hjá landsmönnum og þingmönnum einnig. 

Nú ætti að leggja fram siðareglur þingmanna og sömuleiðis frumvarp um skoðanakannanir! 

Við eigum  nokkra metra eftir á þrautagöngunni miklu gegn bröskurunum! Þeir eru tilbúnir að grípa völdin. Þeir munu endurvekja Frjálshyggjuna með einkavæðingu á nánast öllu sem þeir vilja, splundra Stjórnarráðinu í smærri einingar til að auðvelda helmingaskiptastjórnarmyndun, reka Sérstakan saksóknara og gefa öllu braskaraliðinu upp sakir og setja eigin stjórnarskrá að eigin hugmyndum. Þá myndu þeir efla atvinnurekendavaldið og gera allt til að lækka kaupið m.a. með stórfelldum gengisfellingum í stíl við gamla tímann!

Ætli vinstra fólki þætti þá ekki orðið þröngt fyrir sínum dyrum. 

Baráttukveðjur! 


mbl.is Jóhanna leggur til þingfrestun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stangast frumvarp við aðra hagsmuni?

Margt er skiljanlegt er að þingforsetinn hafi verið að velta vöngum yfir þessu máli. En þegar grannt er skoðað er svæði þetta nokkuð langt, teygt að Tjörn, Austurstræti og Lækjargötu. Spurning hvort miða eigi við húsaröðina, gangstéttarbrún eða miðja götuna? Eftirlit á svo stóru svæði kann að vera bæði erfitt, mannaflafrekt og það sem kannski skiptir mestu máli: kann þetta frumvarp að skerða aðra hagsmuni?

Á svæði þessu eru ýmsir veitingastaðir, gamalt hótel (Borg) og sitt hvað fleira. Ef atvik vilja verða til þess að einhverjar uppákomur og jafnvel róstur verða eins og tíðkaðist í Búsáhaldabyltingunni, verður þá þessu svæði lokað með tilheyrandi röskun fyrir þá aðila sem hagsmuni hafa að gæta?

Yfirlýsing um að of stórt svæði sé lýst friðheilagt kann annað hvort að verða í raun sýndarmennska eða jafnvel tilefni til ofríkis af hendi þess opinbera og vekja tortryggni. Þess má geta að þingstaðir voru fyrrum lýstir friðhelgir, þ.e. ekki mátti vera vopnaður innan vébanda sem voru miðuð við mögulega nánd þar sem unnt var að beita vopnum, kastvopnum eins og spjóti og öxum eða skotvopnum (bogar og örvar). 

Þarna þarf að finna leið sem tekur mið af meðalhófi og skynsemi.  

Góðar stundir. 


mbl.is Sérskipulagsvald um Alþingissvæði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dapurleg hagsmunagæsla

Mér fannst oft sem lífeyrissjóðirnir hefðu lítinn sem engann áhuga fyrir að gæta hagsmuna sinna. Dæmi um það var á hluthafafundi Existu þar sem verið var að ræna fyrirtækið með því að þynna út hlutaféð með því að auka hlutafé um 50 milljarða án þess að ein einasta króna væri greidd í fyrirtækið.

Lífeyrissjóðir þeir sem áttu hluti hvorki mættu né létu aðra mæta til að mótmæla þessari ráðstöfun. Fyrir vikið var lögleysan látin ganga yfir og allir sem lagt höfðu fjármuni í beinhörðum peningum töpuðu. 


mbl.is Hlutabréfin gáfu vel af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 243915

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband