Geta lygamælar komið að gagni?

Bandaríska alríkislögreglan FBI kom einu sinni með nýja uppgötvun sem var beitt óspart á grunaða menn til að kanna hvort mætti treysta þeim.

Sjálfsagt hafa komið margar útgáfur af lygamælum og þeir reynst misjafnlega.

Oft má sjá þegar menn ljúga eða segja eitthvað og fullyrða gegn betri vitund. Þeir hegða sér stundum öðruvísi en þeir eru vanir. Þannig var einn þingmaður sem er látinn fyrir allnokkrum áratugum oft talinn ljúga þegar hann tók niður gleraugun og mælti alvarlega til andstæðinga sinna. Sennilega fór þetta í fínustu taugar þeirra og töldu hann ljúga. Í raun var þingmaður þessi, Lúðvík Jósefsson að árétta það sem hann hafði verið að segja og ekki alveg á hreinu hvað andstæðingar hans eiga við þegar þeir grunuðu hann um græsku.

Sigmundur Davíð setur yfirleitt alltaf upp sérkennilegan glaðhlakkalegan svip þegar hann fullyrðir eitthvað sem getur ekki staðist. Þannig lofar hann kjósendum Framsóknarflokksins skuldauppgjöf sem hann getur ekki verið í aðstöðu til að veita, jafnvel þó hann sé auðugasti þingmaður landsins sem við sitjum nú uppi með.

Góðar stundir.


mbl.is Beiti blekkingum til að afla stuðnings
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristján Þorgeir Magnússon

Það var raunar ein önnur og góð vísbending um það að Lúðvík Jósefsson væri um það bil að fara að segja ósatt, - hún var sú að hann opnaði munninn

Kristján Þorgeir Magnússon, 24.3.2013 kl. 13:17

2 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Þessi pistill er með áróður gegn stefnu (F) og pitilhöfundur er ennþá í sjokki að flokkur hans gerði ekkert raunhæft fyrir heimilin í landinu.

Pistilhöfundur þolir ekki að annar flokkur skuli gera það að aðal stefnu máli flokksins að bjarga heimilunum, eins og pistilhöfundur hefði viljað hans flokkur hefði gert síðustu 4 ár.

Núverandi og eftir rúmman mánuð fyrrverandi Ríkisstjórn hefur haldið góðann vörð um hagsmuni auðmanna elítunar en gleymdi eimd heimilana, þess vegna eru báðir Ríkisstjórnarflokkarnir að verða að smáframboðum og annar þeirra má þakka fyrir ef flokkurinn fær einn þingmann kjörinn í kosningunum 27. apríl.

Pitilöfundur ætti kanski að spá í að skipta um flokks hollistu og vera með í að hjálpa heimilunum frá því að fara algjörlega í rúst.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 24.3.2013 kl. 16:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 242918

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband