Bloggfærslur mánaðarins, september 2012

Furðuleg framkvæmd

Í fréttinni segir að vegagerð þessi hafi verið vegna fyrirhugaðrar vatnsleiðslu. Í ljós kemur að lagt er í vegaframkvæmdina án þess að minnstu vísbendingar séu um lagningu leiðslunnar sem var ástæða rasksins.

Nú bendir allt til að framkvæmdaraðili sé með áfar slæm á hendi. Eftir núverandi náttúruverndarlögum er mjög erfitt að koma refsiábyrgð á viðkomandi. Nú hafa verið lögð fram drög að nýju frumvarpi að náttúruverndarlögum sem tekur á svona málum, mun betur en þau ófullkomnu lög sem nú eru.

Virðing fyrir náttúru landsins þarf að efla. Við getum auðveldlega eyðilagt náttúru landsins með skammsýni og einhliða ákvörðunum.


mbl.is Eldborgarhrauni í Hnappadal raskað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er frelsi?

Mjög þröngur skilningur á frelsi virðist vera í svonefndri „frelsisvísitölu“ Fraser-stofnunarinnar. Það ríki sem trónir efst á lista þeirrar stofnunar er Hong-Kong. Spurning er hvort forsvarsmönnum þessarar Fraserstofnunar hafi yfirsést að Bretar stjórna ekki lengur þar heldur Kínverska alþýðulýðveldið. Mannréttindi eru ekki talin vera upp á marga fiska þar eystra þó svo að „frelsi“ í fjármálaumsvifum og þar með braski teljist sjálfsagður hluti í Hong-Kong.

Fátt er meira misnotað en frelsið. Það er meira að segja spyrnt saman við sjálfsögð mannréttindi í BNA að hafa byssu undir höndum og geta „varið sig“ eins og það er orðað. Í landi mesta herveldis heims eru því miður allt of margar skuggahliðar. BNA er t.d. langstærsti aðili hergagnasölu í heiminum og tengist vægast sagt mjög vafasömum aðilum meira og minna. Flóttamannavandi heims er einkum vegna ýmis konar hernaðar, ofríkis og kúgunar. Náttúruhamfarir koma líka við sögu, aðgangur að hráefnum, olíu, vatni og öðrum sjálfsögðum nauðsynjum sem völd og áhrif snúast meira og minna um.

Verðum við ekki að skoða þessi mál betur?


mbl.is Ísland á pari með Sádi-Arabíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar haustið kemur of snemma

Hugur allra Íslendinga er hjá þeim bændum sem enn eiga fé á fjalli. Fyrsta hausthretið var óvenjulega snemma í ár og kannski alvarleg áminning um að við búum í erfiðu landi. Kannski við eigum að leggja meiri áherslu á að breyta gömlum venjum hvað sauðfjárbúskap varðar: Kannski ástæða til að halda fé fremur í heimahögum hvar það er óneitanlega öruggara.

Og við eigum að kappkosta að bæta landið okkur hvað gróðurfar varðar og hlífa þeim viðkvæma gróðri sem reynir að þrauka á öræfum landsins.

Um síðustu ferð mína um þessar slóðir má lesa á blogginu:

http://mosi.blog.is/blog/mosi/entry/1257555/

Góðar stundir!


mbl.is Hálka á Möðrudalsöræfum og Hólasandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eftirminnileg ferð til Mývatns 11.-12. september

Að morgni þriðjudagsins 11. þ.m. flaug eg ásamt öðrum leiðsögumanni eldsnemma austur á Egilsstaði á móts við tvo ferðahópa sem komu með Norrænu þá um morguninn. Ætlunin var að aka að Mývatni gista þar eina nótt á Skútustöðum og síðan baka daginn eftir.

Ekki leist okkur sem best á aðstæður, fréttum að verið væri að moka fjallveginn milli Norður- og Austurlands og von væri að veðrið gengi niður. Satt best að segja leist mér ekkert of vel á þessa ferð en reynt var að halda í upphaflega áætlun.

Við ákváðum að doka um stund á Austurlandi, ekki leggja of snemma af stað á heiðarnar, ókum í Hallormsstaðaskóg þar sem gengið var um Trjásafnið og yfir í Atlavík. Kannski það sé allt að því móðgun við Þjóðverja að sýna þeim skóg á Íslandi en Ísland er sennilega einna skógfátækasta land heims að undanskildu Grænlandi en Þýskaland eitt skógauðugasta land Evrópu ef ekki alls heimsins miðað við íbíufjölda. En alla vega er alltaf gaman að sýna hvernig við höfum verið að feta okkur áfram með tilraunum hvaða trjátegundir geta þraukað hér. Og alltaf gaman að sýna eikina okkar frá Englandi sem eftir um 60 ár er orðinn sæmilegur runni um 3 metrar á hæð!

Um hádegisbilið var lagt af stað norður heiðar um ægilegustu auðnir landsins þar sem gróðureyðing hefur verið víða nánast alger. Leið þessi er dagur andstæðanna. Fyrir austan var snjólaust með öllu, fremur hægur vindur en nokkuð svalur. Við vegamótin þar sem leiðir skilja annars vegar til Mývatns og hins vegar Vopnafjarðar var komin snjóþekja. Og á Möðrudalsöræfum var mikil hálka með skafrenningi þvert á veginn. Þýski bílsstjórinn minn var vanur þessum aðstæðum í Ölpnum og mat aðstæður alveg hárrétt. Hann vissi að þar sem við vorum á sumardekkjum varð að fara með fyllstu varkárni. Við hugðumst gera hádegishlé í Möðrudal en þar sem ekki hafði verið rutt þangað, héldum við áfram yfir Vegskarð sem nýlega hafði verið rutt. Ferðin gekk vel áfram um Víðidal en á Byskupsháls var aftur mikil hálka sem var áfram um Mývatnsöræfi og allt vestur að Námaskarði. Við áðum í Jarðböðunum þar sem við höfðum seinbúið hádegishlé. Um helmingur hópsins fór í bað en það var á dagskrá. Nokkuð svalt var en eg hafði haft með mér þykkustu lopapeysuna mína sem kom sér vel þegar eg tók myndir. Það verður að játast að þó eg hafi komið margsinnis að Mývatni hefi eg aldrei séð það og umhverfi þess að vetrarlagi.

Við austanvert Mývatn hafði gamla rafmagnslínan farið öll meira og minna úr skorðum. Víða mátti sjá rafmagnsstaura brotna eða þeir hölluðu mjög og vírarnir allir meira og minna úr lagi færðir. Rarik menn unnu dyggilega við að koma rafmagni aftur á eftir óveðrið. Þeir höfðu dregið út jarðstreng og lagt hann til bráðabirgða meðfram veginum. Uppi í einum staurnum voru tveir línumenn að störfum sínum við að tengja.

Við áttum bókaða gistingu á Hótel Gíg á Skútustöðum. Þar var hafði verið rafmagnslaust síðan aðfararnótt mánudags. Kvöldverður var eldaður við grill og víða loguðu kertaljós. Þetta var ákaflega rómantískt og eftirminnilegt. Þegar kvöldverður var að baki og klukkan rétt gengin í 10 eða eins og Þórbergur hefði sennilega ritað: Klukkan 21.11 komst rafmagn aftur á við gríðarleg fagnaðarlæti viðstaddra. Hafði þessi hluti Mývatnssveitar verið án rafmagns í rúma 41 klukkustund.

Nóttin var kyrr, heiðskírt var og þónokkuð frost. Um morguninn gekk eg um Skútustaðagíga og fannst mér nokkuð öðruvísi umhorfs en að sumri þá eg geng með ferðahópunum mínum um þessar slóðir.

Við lögðum af stað hálfníu um morguninn í hægviðri og glaðasólskini. Fyrsti áfangastaðurinn var Dimmuborgir. Slóð hafði verið rudd eftir veginum og alla leið að veitingastaðnum þar. Ekki gekk vel að snúa rútunni og mun þetta í fyrsta skipti sem lengri tíma tekur að snúa rútu við en tekur að skoða sig um. Ekki fórum við niður í Borgirnar enda allt á kafi í snjó. Við skoðuðum því Borgirnar frá veitingahúsinu sem var harðlæst enda hafa húsráðendur ekki átt von á neinum viðskiptum svo snemma morguns. Mjög einkennilegt var að sjá birkið enn allaufgað á kafi meira og minna í snjó. En svona er Ísland!

Eftir að bílsstjórinn hafði með aðstoð annars manns náð að moka nóg til að unnt væri að snúa við, ók hópurinn í Reykjahlíð. Við gengum til kirkju sem var opin öllum þeim sem inn vildu líta. Eldra fólkinu þótti gott að koma í þessa fallegu kirkju og væntanlega þeim yngri einnig.

Í Upplýsingamiðstöðinni fengust þær fréttir að ekki hefði verið ruddur afleggjarinn að Hverurnum austan Námaskarðs né að Dettifossi. Mývetningar og reyndar Þingeyingar allir hefðu í öðru að snúast að huga að sauðfé sínu um þær mundir sem væri í mikillri hættu statt. Það var auðskilið.

Þá var ekið að Hverasvæðinu og bílnum lagt á vegarbrúninni meðan ferðafólkið gekk að hverunum. Síðan var ekið áfram austur í þessu fína vetrarveðri þar sem varla blakti hár á höfði. Afleggjarinn norður að Dettifossi var lokaður og feginn var eg að ekki var reynt að komast þangað. Skótauið sem flestir höfðu á fótum sér var eiginlega rétt til þess fallinn að komast milli húsa í Suðurlöndum. Komið var við í Möðrudal en þar var yrðlingurinn allur á bak og burt. Þeir voru reyndar tveir fyrr í sumar en annar varð undir bíl.

Komið var aftur á Egilsstaði skömmu fyrir kl.16.00. Ferðahópurinn kvaddur sem ók áfram austur yfir Fjarðarheiði áleiðis til Seyðisfjarðar. Sennilega verður þessi ævintýraferð þessu þýska ferðafólki mjög eftirminnileg enda var hiti víðast hvar kringum 25-30 selsíusgráður í Þýskalandi í síðustu viku þá fólkið lagði af stað.

Íslensku leiðsögumennirnir flugu aftur til Reykjavíkur til sinna.

Góð ferð en nokkuð strembin var að baki og allt fór vel!

Góðar stundir!


mbl.is Allt að 300 milljóna tjón
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt
Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Sama efni og í mannsnöglum?

Efnið í hornum nashyrninga er sagt vera nákvæmlega það sama og í mannsnöglum.

Þessi hjátrú að horn nashyrninga hafi einhver bætandi áhrif á að asískir karlar geti aukið kyngetu sína er því á á nokkuð vafasömum grunni byggð. Ef eitthvert virkt efni er í hornum nashyrninga, mætti hugsa sér mikla starfsemi kringum hjátrú þessa.

Í germanskri þjóðtrú er sagt frá naglfari nokkru sem sagt var hafa verið smíða úr nöglum.

Hvort mannsnöglin geti orðið auðsuðppspretta er stóra spurningin. Alla vega ætti að vera tiltölulega auðvelt að „falsa“ töfralyfið sem sagt er vera úr hornum nashyrninga. Hvernig mætti finna muninn sé efnið nánast það sama?

Hér er viðskiptatækifæri sem einhver ætti að stökkva á. Kannski einhver útrásarvíkingurinn sem hefur haft Íslendinga að féþúfu með braski sínu? Hann gæti keypt sér eitt og eitt nashyrningshorn t.d. á 10 ára fresti og blandað efnunum saman með góðri arðsemi.

Góðar stundir!


mbl.is Hornin þyngdar sinnar virði í gulli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óljóst tilefni

Þegar gott og tilhæfilegt tilefni liggur fyrir er sjálfsagt að mótmæla. En ef svo er ekki?

Greinilegt er að einver aðili sem hefur aðgang að nægu fé og sjálfboðaliðum skipuleggur mótmæli.

En hvert er tilefnið að þessu sinni? Ekki er gott að sjá það. Kannski geta þessir „mótmælendur“ mótmælt því að ríkisstjórninni hafi tekist betur en nokkurri íhaldsstjórn að koma okkur út úr kreppunni.


mbl.is Þingmenn endurskoði verkefnalista
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Umdeild aðgerð sameinar ólíka trúarhópa

Fram að þessu hafa Gyðingar og múslimar fátt eitt sameiginlegt annað en að búa við misjafnlega friðsama sambúð. Nú er allt í einu komið mál sem viðist sameina þá og sem þeir virðast ekki sáttir við.

Umskurður á börnum hvort sem er piltar eða stúlkur hefur lengi verið umdeilt. Margir læknar telja tilganginn ekki hafa nein læknisfræðileg rök enda upphaflega tilgangurinn að auka heilbrigði barna þar sem lækningar eru takmarkaðar.

Trúarathafnir verða að taka breytingum þannig að það sem ekki skiptir máli hverfur.

Umskurður getur verið mjög þjáningafullur einkum meðal stúlkna. Gyðingar hafa sennilega ekki beitt þær þessu en drengir hafa yfirleitt verið látnir sæta þessu án þess að vera spurðir að. Umskurðurinn er því eins og hvert annað brennimark sem fylgir einstaklingnum alla ævi.

Þýski dómstóllinn hefur væntanlega byggt að einhverju leyti á þessum meintu mannréttindabroti gagnvart varnarlausum ungbörnum.

Þessir ólíku trúarhópar mættu finna sér annað og gagnlegra sameiginlegt en misbeitingu á kornabörnum.

Góðar stundir.


mbl.is Deilt um umskurð drengja í Þýskalandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gustar á þingi

Ekki er fyrir nema sterk bein og mikið úthald að sitja á þingi. Þar takast oft á ólík sjónarmið.

Eftir bankahrunið eftir eitt léttlyndasta stjórnartímabil Sjálfstæðisflokksins blasti við harkaleg lending eftir umdeilda ákvörðun um byggingu Kárahnjúkavirkjunar. Við bættist að allir bankarnir fóru tæknilega á hausinn og við blasti gríðarlegir erfiðleikar. Þrátt fyrir allt hefur vinstri stjórninni tekist að rétta „þjóðarskútuna“ af þannig að nú siglir hún jafnvel betur og öruggar en áður.

Og það var gert án þess að meiri einkavæðing varð! Þetta er eitt merkasta afreksverk ríkisstjórnarinnar og mættu landsmenn lesa pistil Jóns Steinssonar í Fréttablaðinu s.l. fimmtudag þar sem hann vekur athygli á hve vinsældir núverandi ríkisstjórnar virðast vera fremur litlar miðað við þann árangur sem við blasir.

Nú eru breytingar á þingliði Sjálfstæðisflokksins þegar Ólöf Nordal ákveður að yfirgefa þingsamkomuna. Hún hefur verið einn mesti talsmaður aukins áliðnaðar á Íslandi sem er mjög umdeilanlegt. Hún er jú gift fyrrum álforstjóra Alkóa á Íslandi sem nú tekur á sig aukin og meiri verkefni erlendis.

Áliðnaður er vægast sagt mjög umdeildur. Sérstaklega þegar haft er í huga að um 75-80% af raforkuframleiðslu landsins fer í eþssa starfsemi. Nú eru Bandaríkjamenn að vakna til lífsins með endurvinnslu og má á næstu árum að hlutfall endurunnins áls fari hraðvaxandi í BNA. Það magn sem nú er urðað, er meira en sem nemur framleiðslu allra álbræðslna á Norðurlöndunum og jafnvel víðar! Má rétt geta sér nærri að öll álver sem ekki skila eigendum sínum nægan arð, verði lokað.

Um það leyti sem Alkóa hóf starfsemi á Reyðarfirði, lauk starfsemi 2ja álbræðslna sama fyrirtækis á Ítalíu. Þá urðu mikil mótmæli og mikill grátur hófst þar syðra.

Hvenær kemur að álbræðslunum á Íslandi skal ósagt látið. Sú stund getur runnið upp að rekstur álbræðslu á Íslandi svari ekki kostnaði. Þá er allt tal um aukinn áliðnað eins og hvert annað hjóm.

Þingkonunni Ólöfu er óskað góðrar ferðar.  Verst er að þau hjónin geti ekki tekið álstassjónina með sér enda hefur álbræðsla þessi haft mikil ruðningsáhrif á Austurlandi og skilið marga aðra starfsemi í dróma og vandræðum.

Góðar stundir!


mbl.is Skilur vel ákvörðun Ólafar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eitt furðulegasta mál sinnar tegundar

Hvernig gat það verið að erlendur braskari eignaðist reiturnar úr Geysi Green Energy?

Það fyrirtæki virðist hafa verið stofnað af einum mesta braskara landsins í þeim eina tilgangi að hafa fé af litlu hluthöfunum og sýna þeim langt nef.

Geysir Green var stofnað með miklum látum. Það keypti af almenningshlutafélaginu Atorku Jarðboranir sem var bæði trtaust og vel rekið fyrirtæki og ein verðmætasta eign sem litlir hluthafar gátu átt. En allt var rænt í skjóli myrkurs og litlu hluthafarnir rúnir inn að skinninu.

Var GGE undirbúningur að koma eignum litlu hluthafanna og aðgangi að mikilvægum orkulindum undir erlend yfirráð?

Sá erlendi braskari sem stýrt hefur þessa Magma fyrirtæki hefur bæði leynt og ljóst sýnt að hann hafi haft fjöldann af samstarfsmönnum sínum innlendum sem erlendum sem sýnt hafa rekstri hans sérstakan skilning.

Magma málið er mikið hneykslismál og er ekki auðvelt að finna aðra hliðstæðu.

Til þess að koma í veg fyrir brask og misneytingu valds í hlutafélögum er að setja í hlutafélagalögin ákvæði sem takmarkar atkvæðisrétt á hluthafafundum. Þar þarf að vera skýrt kveðið á um a.m.k. tvö skilyrði fyrir atkvæðisrétti:

1. Að hlutafé fyrir hlutinn hafi raunverulega greiddur til hlutafélagsins.

2. Að hlutafé sé ekki veðsett og svo hafi verið undanfarna 24, 36, 48 o.s.frv. almanaksmánuði. Um þetta má sjálfsagt rífast einhverjar vikur eða mánuði á Alþingi.

Varðandi fyrra skilyrðið þá hefði aldrei komið til að Bakkabræður næðu meirihluta í Exista, stærsta tryggingafélagi landsmanna. Þeir komu með hlutafé sem nam 50 milljörðum inn í Exista án þess að ein einasta króna væri greidd til félagsins!! Í framhaldi buðu þeir öðrum hluthöfum kaup á hlutafé gegn 2 aurum fyrir hverja krónu nafnverðs!!! Líklegt er að þarna sé ekki aðeins Íslandsmet heldur heimsmet í afskriftum um hlutafé.

Íslenskur hlutafélagamarkaður er mjög brothættur eftir bankahrunið.

Þar þarf víða að taka til,setja skýrar og sanngjarnar reglur en ekki láta hrægammana hafa öll ráð.

Magma hneykslið þarf að skoða í kjölinn. Hverjir nutu góðs af því að litlu hluthafarnir í Atorku töpuðu öllu sínu sparifé?


mbl.is Óheiðarleiki sem ekki fór í dóm
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hermangið byrjaði mun fyrr

Styrmir fyrrum ritstjóri Morgunblaðsins telur að umdeild viðskipti hafi hafist 1998 varðandi braskið kringum Kögun.

Þess má geta að spillingin byrjaði með komu hersins og reyndu ýmsir að auðgast verulega.

Þannig var m.a. að þekktur athafnamaður í Keflavík sem var verkstjóri hjá hernum með alla ættina sína, lifandi sem dauða, meira og minna á launaskrá hjá hernum. Ýmsir auðguðust á ævintýralegan hátt og „beisinn“ varð brátt vettvangur furðulegra athafna.

Einna þekktast varð angi af svonefndu „Olíumáli“. Olíufélagið Esso í eigu Framsóknarmanna hafði mjög náin samskipti við ameríska herinn. Þessi samskipti gengu út á að innflutningur á olíu og olíuvörum var meira og minna undir sömu hendi. Því var komið í kring að olíuloki á geymum Varnarliðsins var unnt að opna og tappa olíu á geyma Olíufélagsins án þess að nokkur yrði var við neitt. Herinn borgaði brúsann. En upp komst þegar innflutningur og sala stóðst ekki á og við rannsókn málsins höfðu forsvarsmenn Olíufélagsins útbúið nótur.

Þetta faktúrufölsunarmál varð eitt af mörgum málum sem upp komumst. Merkilegt er að Framsóknarmenn og Sjálfstæðismenn voru margir hverjir flæktir í ansi gróf mál. Þar voru prettir uppi og allt gert til þess að auðga sjálfa sig.

Saga spillingarinnar á Íslandi hefur tekið á sig margar myndir. Sumt er löngu fyrnt meðan annað er enn í gangi. Kögunarmálið virðist enn vera á ferðinni þar sem einn einstaklingur virðist hafa náð undirtökum í þessu fyrirtæki sem veltir gríðarlegu fé.

Og formaður Framsóknarflokksins tengist þessu glæfrafyrirtæki traustum böndum.

Góðar stundir en án spillingaraflanna!


mbl.is Gunnlaugur ekki beðinn afsökunar að sögn Styrmis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband