Bloggfærslur mánaðarins, desember 2010
21.12.2010 | 21:48
Hver er tilgangurinn?
Misferli sem gengur út á að blekkja yfirvöld eru ekki til þess fallin að efla traust. Viðkomandi aðili sem er staðinn að blekkingum á ekkert gott skilið Gildir einu hvort um bandaríska herinn sé að ræða eða annan aðila. Svona er ekki til þess annað fallið en að vekja tortryggni og auka eftirlit viðkomandi aðila sem oftast bitnar á þeim sem síst skyldi.
Mosi
Bandaríkjamenn blekktu Rússa | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.12.2010 | 22:07
Breyttar reikningsskilareglur leiða til hagnaðar
Ljóst er að breyttar reikningsskilareglur leiða til hagnaðar RÚV. Tekjur aukast aðeins um 3% milli ára eða úr 4.83 milljarðar í 4.97 og útgjöld hækka sömuleiðis úr 4.2 milljörðum í 4.48. Það er hlutfallslega meiri hækkun en á tekjum.
Rekstrarhagnaður 1.9.2008 - 30.8.2009 var 628 milljónir miðað við 487.5 milljónir tímabilið 1.9.2009-30.8.2010.
Athygli vekur að bókhaldsárið hjá Rúv miðast við fiskveiðitímabilið en ekki almanaksárið sem væri eðlilegra eins og hjá langflestum fyrirtækjum sem og ríkissjóði.
Það er í gegnum svonefnd fjármagnsgjöld og gengisbreytingar þar sem kemur þessi innspýting í þessa 80 ára gömlu forréttingu landsmanna að ræða.
15 milljónir til framkvæmdastjóra í árslaun telst til ofurlauna. Það mætti lækka þau umtalsvert í samræmi við önnur ofurlaun í samfélaginu enda er þessi rekstrarútkoma ekkert sérstök nema síður sé. Alla vega er tæplega tilefni að hrópa húrra fyrir enda hafa breyttar reikningsskilareglur við uppgjörið átt þátt í þessum viðsnúningi.
Reikninga RÚV má sjá á slóðinni: http://www.mbl.is/media/93/2493.pdf
Mosi
206 milljóna hagnaður af rekstri RÚV | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.12.2010 | 21:43
Dokum við en dæmum ei!
Sjónarmið þremenninganna eru þessi:
Þeim finnst niðurskurður á samneyslunni vera of mikill og sem dæmi má nefna að Lilja hefur bent á að í kreppunni miklu fyrir um 80 árum var skorið mjög harkalega í bandaríska heilbrigðisgeiranum. Það hafði þau áhrif að opinber heilbrigðisþjónustu hefur ekki náð sér eftir þann mikla niðurskurð, heldur fór heilberigðisþjónustan í auknum mæli yfir í einkageirann. Þessir 3 þingmenn óttast að hér á Íslandi verði sama þróunin, við verðum að horfa á lokun sjúkrahúsa og að það verði flótti í atvinnugreininni og aukið atvinnuleysi.
Hin hliðin á þessu flókna máli er auðvitað sú, að með harkalegum niðurskurði er verið að stefna sem fyrst að hallalitlum og helst hallalausum fjárlögum til að við getum t.d uppfyllt kröfur um inngöngu í Efnahagsbandalag Evrópu. Aðild að EBE myndi tryggja okkur mjög gott og traust lagaumhverfi. Það hefði þá augljósu kosti efla fjárhagslegt öryggi okkar um ókomna tíð sem ekki veitir víst af.
Mér finnst að við verðum að fara mjög varlega í að dæma einstaklinga vegna þeirra ákvarðana sem þeir hafa tekið. En það er gríðarlegur þrýstingur á stjórnvöld frá Alþjóða gjaldeyrissjóðnum að sýna strax árangur í stjórn efnahagsmála. Hver króna skiptir þá feiknamiklu máli að nýtist sem best.
En það undrar mig mest að enginn skuli tjá sig um að dást að hugrekki þessara þrímenninga að fara gegn straumnum en fylgja fremur sannfæringu sinni. Þeir hafa góð og gild rök fyrir ákvörðun sinni sem ber að virða.
Mosi
Stöðugir níðpóstar um Lilju | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.12.2010 | 22:24
Vatnsvík eða Vatnsvik?
Áhöld eru um hvort örnefnið sé Vatnsvík eða Vatnsvik.
Björn Th. Björnsson telur í riti sínu Þingvellir að örnefnið Vatnsvik sé réttara og styður það við málvenju þeirra sem bjuggu á þessum slóðum.
Hann hefur mikið til síns máls og í ritgerð minni um Þingvallaskóg og birtist í nýútkomnu Skógræktarriti hefi eg farið eftir sem Björn telur vera réttast.
Mosi
Bílvelta við Þingvelli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.12.2010 | 11:11
Hvernig gat þetta átt sér stað?
Margir undrast hvernig gat það átt sér stað að stórfelldur fjárdráttur væri stundaður í íslensku sendiráði erlendis? Nú hefur verknaðinum verið lýst svo að hann hafi staðið yfir um allnokkurn tíma áður en upp komst. Svona á ekki að geta átt sér stað undir venjulegum kringumstæðum.
Í mörgum stofnunum og fyrirtækjum koma allmargir við sögu vegna fjármála. Forstöðumaður eða annar trúnaðarmaður áritar reikninga sem yfirmaður samþykkir áður en hann er greiddur hjá fjármálaritara eða fjármálastjóra. Þannig eru oftast 3 einstaklingar sem koma að hverri fjármunafærslu og er þetta ágætt fyrirkomulag. Gildir einu hvort um háar eða lágar upphæðir er um að ræða.
Eitthvað hefur innra eftirlit í sendiráðinu verið í skötulíki. Að um 50 milljónir hverfi úr sjóðum Utanríkisráðuneytisins vegna saknæms verknaðar viðkomandi brotamanns, er óskiljanleg með öllu. Þetta á ekki að geta átt sér stað undir venjulegum kringumstæðum.
Spurning er hvort þjóðin eigi ekki rétt á útskýringum?
Mosi
Aðstæður konunnar réðu miklu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.12.2010 | 10:45
Réttur til veiða á makríl
Með hlýnandi veðurfari verður breyting á vistkerfi, einnig í höfunum. Fiskitegundir leita uppi það umhverfi sem þeim líður best í, þ. á m. makríll sem nánast varð ekki vart á íslenskum fiskimiðum fyrr á tímum.
Það eru ámælisverð mistök hjá Alþjóðahafrannsóknarráðinu (ICES) að bjóða ekki Íslendingum upp á viðræður og samráð vegna úthlutunar á veiðikvóta makríls. Svo virðist sem á þeim bæ viti menn ekki af því að fáar þjóðir eru eins háðar fiskveiðum og Íslendingar og þurfa þeir að eiga við mikinn fjárhagsvanda í fjárhagskreppunni vegna fámennis þjóðarinnar.
Getur virkilega verið að þeim hafi yfirsést að hér byggi þó upplýst fólk?
Við eigum að mótmæla þessari kvótaskiptingu enda eigum við fullan rétt á að nýta fiskimið okkar innan landhelginnar og í samráði við Hafrannsóknarstofnun enda er makríll fiskitegund sem ekki heldur sig ætíð á sama stað.
Mosi
Vilja veiða meira en ráðlagt er | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.12.2010 | 10:34
Siðblinda
Allt of lengi var Sjálfstæðisflokkurinn við völd. Þar var siðblindan oft mikil, spillingin þreifst einnig mjög vel einkum meðan hann var í ríkisstjórn með Framsóknarflokknum þar sem spillingin hefur lengi viðloðið.
Á þinginu var rætt töluvert um bók Guðna Jóhannessonar um Gunnar Thoroddsen. Þar er ýmislegt dregið fram sem er Sjálfstæðisflokknum síst til framdráttar, njósnir og brot á friðhelgi einkalífs þúsunda Íslendinga. Þar var sitthvað sem minnti á starfsemi verstu kommúnistastjórna eins og STASI í DDR forðum tíð.
Siðblindan virðist ætla að verða eins og inngróin kerfisvilla í tölvuforriti. Forherðingin virðist ætla að verða alger.
Auðvitað var forsætisráðherra Sjálfstæðisflokksins meðvitaður um það sem var að gerast í samfélaginu í aðdraganda hrunsins. Hann valdi þá leið að gera ekki neitt, ekki nokkurn skapaðan hlut en leyfa vitleysunni að vaða áfram. Þjóðin er reið yfir aðgerðaleysinu og kæruleysinu. Spillingin var látin viðgangast og ekkert gert til að stoppa hana. Enda höfðu spillingarstjórarnir greitt vænar fúlgur í kosningasjóði valinna stjórnmálamanna sem þeir vissu að þeir gætu haft í vasanum.
Ekkert getur stoppað málssóknina gegn Geir Haarde. Hann bar ábyrgð á því sem gerðist. Hann vissi eða mátti vita hvað var að gerast en kaus að hafast ekkert að og gera nauðsynlegar ráðstafanir fyrr en allt var um seinan. Icesave vitleysan fékk að vaxa í höndum fjárglæframanna rétt eins og risastórt skrýmsli sem þó hefði verið unnt að koma í veg fyrir.
Auðvitað eru viðurlög við broti ráðherrans skv. lögunum um raðherraábyrgð allt að því hlægileg. Fyrir marga væri ef til vill nægjanlegt að hann verði dæmdur til sanngjarnra viðráðanlegra fésekta, fangelsi sem vararefsingu og missi vissra réttinda t.d. að hann væri sviptur betri og meiri lífeyrisréttindum umfram aðra landsmenn.
Það er lítill tilgangur að verja þessa röngu og siðblindu stefnu sem leiddi til mestu niðurlægingar Íslendinga. Menn verða að kunna að axla ábyrgð vegna mistaka sinna!
Mosi
Uppfylla ekki saknæmisskilyrði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.12.2010 | 09:59
Íslensk jólatré
Íslensk jólatré eru mjög æskileg fyrir margra hluti sakir.
Kostir þeirra eru:
1. þau vaxa við íslenskar aðstæður, vexti þeirra er stýrt með hormónagjöf né eiturefnanotkun
2. með innflutningi á erlendum jólatrjám er talið að sé greið leið opin fyrir ýmsa skaðvalda í skógrækt á Íslandi
3. kaup á íslenskum jólatrjám styrkir verulega starfsemi skógræktar en allur hagnaður fer í aukna skógrækt sem styrkir atvinnuskapandi starfsemi í tengslum við skógarnytjar
4. stuðlar að betri nýtingu erlends gjaldeyris
5. stuðlar að auknum hagvexti
Fleiri atriði mætti nefna en hér verður staðar numið. Þá er sérstök upplifun fyrir börnin að fara í skóginn að velja jólatré með foreldrum sínum. Þetta tækifæri gafst ekki áður fyrr.
Mosi
Mikill kippur í jólatréssölu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.12.2010 | 09:04
Tilefni til varkárni
Þegar ekið er um höfuðborgarsvæðið er áberandi hversu allt of margir ökumenn aka kæruleysislega. Þeir spretta úr spori, aka fram úr næsta bíl á undan, stundum röngu megin, þ.e. hægra megin, og síðan þarf að stoppa nokkrum hundruðum metrum af því að á götuvitanum er rautt ljós!
Svonefndur vistakstur þarf að vera meðvitaður hjá öllum þeim sem aka bifreiðum, Með vistakstri er átt við að haga ferðum sínum á bílum þannig að umferð gangi sem best og að hagkvæmni fyrir rekstur bifreiða sé höfð í huga. Það er langhagkvæmast að láta sig berast með straumnum í stað þess stöðugt að vera að auka hraðann eða draga úr honum. Þá er notkun hemla höfð í lágmarki en talið er að í hemlum séu efni sem eru umhverfinu óæskileg, - í bremsuborðunum er blanda að einhverju leyti úr því varhugaverða asbestefni.
Óhófleg nagladekkjanotkun hefur því miður vakið hjá mörgum falska öryggismeðvitund. Nagladekk geta verið ágæt til að krafsa sig upp halla þar sem svell er en getur verið eins og versta martröð þegar þarf að draga úr ferð og jafnvel stansa.
Við ættum öll að tileinka okkur vistakstur, það er öllum hollt og ekki síst buddunum okkar sem hafa þá náttúru að tæmast allt of fljótt.
Mosi
Útlit fyrir hálku í dag | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.12.2010 | 08:51
Lífið er saltfiskur ...
Lengi vel var saltfiskur ein af helstu útflutningsvörum Íslendinga. Í kreppunni kom okkur sérstaklega illa hve atvinnulíf okkar var einhæft en þá lokuðust markaðir okkar á Spáni, Portúgal, Ítalíu og fleiri löndum. Þetta hafði skelfilegar afleiðingar hjá okkur, stærsta útgerðarfyrirtæki landsins, Kveldúlfur var árum saman á barmi gjaldþrots sem hafði mjög mikla fjárhagslega erfiðleika í för með sér um allt þjóðlífið.
Fosföt hafa ekki alltaf verið notuð við matvælafraleiðslu en oft hafa ýms efni verið notuð til að bæta framleiðslu, auðvelda framleiðsluferlið, auka geymsluþol, hafa útlitið betra, eyða óæskilegri lykt og þar fram eftir götunum.
Nú þurfa framleiðendur að bregðast fljótt og vel við auknum kröfum til matvælafraleiðslu enda mikið í húfi að viðhalda þeim verslunartengslum við erlenda viðkiptavini okkar.
Mosi
Hugsanlegt að þróa aðrar leiðir við verkun á saltfiski | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Siðvæðing í stjórnmálum
Nýjustu færslur
- 24.11.2014 Hvar er jafnréttið?
- 7.11.2014 Er réttarríki á Íslandi?
- 27.10.2014 Byssumálið: krefjumst opinberrar rannsóknar
- 8.10.2014 Sekur eða saklaus?
- 8.9.2014 Jón og séra Jón
Færsluflokkar
Bloggvinir
- Aðalsteinn Sigurgeirsson
- Alfreð Símonarson
- Andrea J. Ólafsdóttir
- Andrés Kristjánsson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Anna Benkovic Mikaelsdóttir
- Arnar Pálsson
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Ágúst H Bjarnason
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Þór Sigurðsson
- Ásgeir Eiríksson
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Baldur Hermannsson
- Baldur Kristjánsson
- Baldvin Jónsson
- Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
- Berglind Steinsdóttir
- Birgir R.
- Bjarki Steingrímsson
- Bjarni Harðarson
- Bjarni Kristjánsson
- Björgvin Björgvinsson
- Björgvin Guðmundsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- busblog.is
- Bwahahaha...
- Dagný
- Einar Ólafsson
- Gammur drils
- Guðfríður Lilja
- Guðjón Baldursson
- Guðjón Petersen
- Guðmundur Steingrímsson
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Halldór Sigurðsson
- Hallvarður Ásgeirsson
- Haraldur Haraldsson
- Heidi Strand
- Helga Auðunsdóttir
- Helgi Þór Gunnarsson
- Herdís Þorvaldsdóttir
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjörleifur Guttormsson
- Hlynur Hallsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hvíti Riddarinn
- Högni Snær Hauksson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
- Jakob Falur Kristinsson
- Jens Guð
- Jón Bjarnason
- Jón Halldór Guðmundsson
- Jón Ingi Cæsarsson
- Kaffistofuumræðan
- Karl Tómasson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Kristbjörg Erla Hreinsdóttir
- Kristbjörn Árnason
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Lára Stefánsdóttir
- Loftslag.is
- Lúðvík Júlíusson
- María Anna P Kristjánsdóttir
- María Kristjánsdóttir
- Máni Ragnar Svansson
- Morgunblaðið
- Ólafur Ingólfsson
- Ólafur Þór Gunnarsson
- Ólafur Örn Jónsson
- Ómar Bjarki Smárason
- Ómar Ragnarsson
- Ósk Vilhjálmsdóttir
- Perla
- Pjetur Hafstein Lárusson
- Rúna Guðfinnsdóttir
- Sigurður Hreiðar
- Sigurður Ingólfsson
- Sigurjón Þórðarson
- Steingrímur Helgason
- Svanur Jóhannesson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Theo
- Torfusamtökin
- Trausti Jónsson
- Umhverfis- og náttúrufræðifélag Mosfellsbæjar
- Úrsúla Jünemann
- Valdís Jóhanna Guðbjartsdóttir
- Vefritid
- Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock)
- Þorsteinn Briem
- Þorsteinn Erlingsson yngri
- Þorsteinn Siglaugsson
- Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
- Ævar Rafn Kjartansson
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar