Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2007

Þóknun fyrir hleranir

Já hvers vegna ekki?

Símafyrirtækin eru eins og hver önnur þjónustufyrirtæki sem selja vöru og þjónustu eins og það er skilgreint. Og er lögreglan e-ð undanþegin slíkum gjöldum þó það sé vegna hlerunar?

Sjálfsagt þarf að auka fjárveitingar til að lögreglan geti unnið sín störf, greitt lögreglumönnum góð laun og greiða fyrirtækjum fyrir þá þjónustu sem keypt er.

Mosi 


mbl.is Símafélögum heimilt að rukka lögreglu fyrir hlerun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Seljum Seðlabankann!

Hvernig væri að selja þennan blessaða Seðlabanka ásamt öllu sem honum tilheyrir - ef einhver vill þá  kaupa?

Að öllu gamni slepptu má líta svo á að flest vandræði landsmanna megi rekja til þessa sama Seðlabanka. Fyrrum voru þar framkvæmdar allar gengisfellingar á íslensku krónunni okkar sem lengi vel var aðalþjóðarstolt okkar og haldreipi í daglegu amstri. Stundum fékk þá þjóðin einhverja þá einkennilegustu sótt sem fjármálamenn nefna kaupæði. Fóru landsmenn þúsundum saman í banka sína og leystu út allt sparifé sitt og keyptu sér frystikistur, þvottavélar, sjónvörp, húsgögn og hrærivélar. Og ef eitthvað var afgangs af sparifénu þá voru fylltir margir innkaupavagnar í búðunum enda var allt að snarhækka vegna þessara gengisfellinga. Allt var það Seðlabankanum að kenna! Skítt með ef síldin hvarf og annað fékkst ekki í staðinn.

Sú var tíðin að Seðlabankinn var einungis ein lítil skúffa í Landsbankanum. Þá gekk þjóðlífið sinn vanagang án þess að allt ætlaði af göflunum að ganga. Nú er það yfirblýantsnagarinn sem ákveður ýmist að hækka stýrivexti eða halda þeim óbreyttum. Vöxtum landsmanna er handstýrt með harðri hendi einungis af einum manni.

Seðlabanki er og verður aðeins til vandræða í íslensku þjóðlífi. Við Íslendingar eigum að hugsa til fornhetja várra og losa okkur hið snarasta við allt óþarfa bruðl. Við höfum selt alla hina bankana sem alls konar spekúlantar keyptu og seldu aftur hvor öðrum. Aldrei hefur verið jafnmikil viðskipti í landinu og þegar auður streymdi inn í landið sem hafði orðið til í brugghúsum og apótekum vítt og breitt um Evrópu og sjálfsagt víðar.

Með sölu Seðlabankans væri trúlega unnt að fá gott verð fyrir hann og kaupa nóg af Evrum. Þá ættu allir guðsvolaðir Íslendingar að vera mjög sáttir enda erum við mikið fyrir að kaupa allt sem heimurinn hefur upp á að bjóða.

Þá er seðlabankahúsið eitt það ólaglegasta hús sem byggt hefur verið norðan Alpafjalla þó víðar væri leitað. Mætti þess vegna fremur komaþví á öskuhauga sögunnar fremur en nokkrar gamlar krambúðir við Laugaveg frá fyrri tíð sem ku hafa menningargildi og það meira að segja nokkuð mikið.

Það er bjargföst skoðun Mosa að Seðlabanka íslensku þjóðarinnar verði að selja.

Seljum Seðlabankann - og það á stundinni!!

Mosi - alias 


mbl.is Seðlabankinn mun ekki grípa til aðgerða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góðar athugasemdir

Steingrímur J hefur sem flestir Íslendingar sem hugsað hafa eitthvað um þessi eilífðar varnarmál, komist að þeirri niðurstöðu að þessi leið sem bæði er rándýr og kemur að sáralitlu gagni nema auðvitað fyrir þá sem framleiða hergögn.

Við Íslendingar höfum frá aldaröðli átt þá gæfu að vera nánast vopnlaus þjóð. Varnir hafa aldrei komið að neinu gagni og kom það berlega í ljós í Tyrkjaráninu. Á Skansinum við höfnina á Heimaey voru fallstykki sem ekki komu að neinum notum.

Árið 1809 var gerð bylting á Íslandi af hálfri tylft breskra háseta á kaupfari undir stjórn Jörgens Jörgensens. Þeir voru einungis vopnaðir pístólum. Hvað hefði gerst ef danski landsstjórinn hefði haft herflokk og vopn til varnar? Og hvað með 10. maí 1940 ef einhver háttsettur í íslenska stjórnkerfinu hallur undir Þjóverja hefði gefið skipun um að verjast hersetunni? Sennilega orðið blóðug átök og margir fallið.

Því miður eymdi enn eftir af fornum hetjudáðum þegar þrjár áhafnir spænskra hvalveiðiskipa voru stráfelldar á Vestfjörðum 1615.  Kannski að ástæðan hafi verið of mikið af vopnum, hatur, tortryggni og skilningsleysi að leysa þessi vandræði sem Baskarnir höfðu ratað í. Sá maður sem vildi leysa þessi mál var hins vegar gerður héraðsrækur en það er önnur saga.

Ætli það sé ekki gæfa íslensku þjóðarinnar að hér hefur aldrei verið innlendur her. Þörfin hefur aldrei verið og mun sennilega aldrei verða.

Hafi Steingrímur J. þökk fyrir góða ábendingu með bókun sinni í utanríkismálanefnd í dag.

Mosi - alias 

 


mbl.is Steingrímur gagnrýnir stefnu í utanríkismálum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einkennileg viðbrögð

Mosi er steinhissa á þessum furðulegu viðbrögðum.

Vegna ákvörðunar bæjarstjórnar sem tekin var vegna tilmæla frá ákveðnum aðila um

Milli 25 og 26 þúsund Íslendingar eru á aldrinum 18-23 ára. Þetta unga fólk sem er að vinna sér inn dálítinn aur í sumarfríinu ætlast nokkrir gróðapungar á Akureyri að hafa sem mest af þessu unga fólki í gróðahítina sína. Þessir kaupahéðnar fara hamförum af því að bæjarstjórnin tók ákvörðun um að takmarka samkomuhald á Akureyri þessa helgi vegna slæmrar reynslu undanfarinna ára. Og ekki nóg með það, skrifuð eru lesendabréf í blöðin og farið stórum orðum um þessa skynsömu ákvörðun.

Er fólk með öllum mjalla að fara fram á að bæjarstjórn segi af sér einungis vegna þessa máls? Þessi herferð gegn bæjarstjórninni er furðuleg að ekki sé meira sagt.

Á dögum Jóns Hreggviðssonar hefði verið gott að biðja um eitthvað þarflegt t.d. að flytja til landsins nóg af snæri enda kom það fyrir að menn lentu í vondum málum vegna snærisleysis.

Samkomuhald fór sem betur fer mjög friðsamlega fram um Verslunarmannahelgina að þessu sinni um allt land og það er ekki kaupahéðnum á Akureyri að þakka. 

Mosi 

 


mbl.is Tæplega hundrað manns skrifað undir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Betri og hagkvæmari almenninssamgöngur í stað bílahúss

Spurning hvort ekki mætti með einhverju móti ekki efla almenningssamgöngur til að draga verulega úr þörfinni á öllum þessum bílahúsum sem bæði eru rándýr og ekki fegurstu húsin, öðru nær.

Eins og almenningssamgöngum er nú háttað á höfuðborgarsvæðinu eru þær ekki í stakk búnar að taka við auknum fjölda viðskiptavina. Sætaframboð á álagstímum er t.d. of lítið og ferðir eru of strjálar. Þá hefur gagnrýni beinst mjög mikið að leiðakerfinu sem auðvitað þyrfti að lagfæra, ekki til bráðabirgða heldur til langtíma litið. Því miður gleymist það oft við breytingar sem sumar hafa ekki verið nógu vel ígrundaðar.

 Mosi alias

 

 


mbl.is Fallið frá tillögu um bílastæðahús undir Skólavörðuholti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aðgát skal höfð í nærveru sálar ...

Af hverju eru fjölmiðlar að velta sér upp úr ógæfu fólk sem hefur misstigið sig að einhverju leyti í lífinu? Réttur einstaklingsins að lifa eigin lífi á auðvitað að vera meiri en fjölmiðlanna sem reknir eru áfram af gróðafíkninni. Þó svo að fjölmiðlar eigi að vera frjálsir þá mega þeir ekki leggjast svo lágt að gera lítið úr einstaklingnum sem einhverra hluta vegna hefur hrasað og misst fæturna í lífsins ólgusjó.

Um er að ræða unga konu sem greinilegt er að fjölmiðlar hafa lagt í nánast einelti. 

Mér finnst þessar athugasemdir sem margir hafa látið frá sér fara varðandi þessa frétt þar sem þeir fagna svona umfjöllun, vera forkastanlega og mjög dapurlega í alla staði. Eru þessir sömu einstaklingar svo siðferðislega blindnir að sjá ekki gegnum gróðabrallið í þessu máli? Af hverju má þessi unga kona ekki vinna sjálf úr sínum erfiðleikum með aðstoð fagfólks án þess að fjölmiðlar spilli meira fyrir?

Mætti ekki eðlilega taka undir með Nóbelsskáldinu sem spurði um árið:

Væri ekki unnt að hefja umræðuna á dulítið hærra plan? 

Mosi alias 


mbl.is Ný klámmynd byggð á ólifnaði Lindsay Lohan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hnúfubakar loksins aftur í Faxaflóa

Leyfi mér að óska hvalaskoðunarfólki á Faxaflóa til lukku með hnúfubakana. Þeir eru mjög velkomnir aftur á fornar slóðir og óskandi fá þeir að vera í friði fyrir veiðimönnum með þessa skelfilegu drápsfýsn. Við þurfum ekki að veiða allar þær skepnur sem okkur dettur í hug sem hvöt til öflunar aukinna lífsgæða. Ekki fremur en eyðilegging fossanna sem því miður tröllríður sérstaklega Austurlandi þessi misserin.

Mosi alias


mbl.is Hnúfubakur að leik á Faxaflóa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað kostar svona sýning?

Allt hernaðarbrölt er rándýrt og spurninghvort fámenn þjóð eins og Íslendingar eigi að vera með í svona löguðu.

Spurning hvort við eigum ekki að nota peningana í e-ð þarfara

M;osi 


mbl.is Norðmenn taka þátt í varnaræfingu á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eldgos?

Meðan upptök skjálfta eru enn á 15-20 km dýpi er sennilega ekki ástæða til að óttast neitt. Hins vegar er rétt að hafa vara á ef þrýstingur að neðan heldur áfram og ef skjálftar færast nær yfirborði er ástæða til að alls megi vænta.

Annars eru eldgos alltaf jafn spennandi viðfangsefni og stórkostlegt til þess að vita að unnt sé að sjá eldgos fyrir eins og gerðist í síðasta gosi í Heklu 26.2.2000.

Mosi 

alias 

 


mbl.is Almannavarnir í viðbragðsstöðu vegna hugsanlegra eldsumbrota við Upptyppinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spennandi tímar : Atorka - Geysir Green Energy - Jarðboranir

Fyrir rúmu hálfu öðru ári keypti Atorka út nánast alla hluthafana í Jarðborunum. Nú er þetta hraðvaxandi fyrirtæki orðið stærsta sinnar tegundar í heiminum með sérhæfingu að hagnýta jarðhitann.

Framundan eru spennandi verkefni beggja megin Atlantshafsins, í Þýskalandi þar sem lengi hefur verið vitneskja um jarðhita sem ekki hefur verið nýttur og Geysir Green Energy fyrirtækið hefur haslað sér völl á vesturströnd Bandaríkjanna. Auk þess hefur borið á góma verkefni m.a. í Kína.

Við Íslendingar eigum að vera stoltir af okkar mönnum sem hafa á undanförnum árum lagt mikið á sig að allt þetta er komið af stað. Og nú er að bíða eftir því að sjá árangur sem án efa á eftir að verða góður enda eru stjórnendur varkárir og undirbúa verkin vel og vandlega. Sem smáhluthafi í Atorku er eg bjartsýnn að þessi útrás íslenskrar sérþekkingar eigi eftir að komu mörgu góðu til leiðar sem ekki aðeins á eftir að færa okkur nokkurn arð heldur einnig alþjóðlegri viðurkenningu fyrir lausn verkefna sem öðrum hefur ekki tekist að koma í kring.

Til lukku og góðar kveðjur!

Mosi

alias 

 

 


mbl.is Geysir Green kaupir Jarðboranir á 14,3 milljarða króna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 242836

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband