Frekjulýðræði og annað lýðræði

Jæja þá fór það svo að frekasti borgarfulltrúinn verður næsti borgarstjóri svo lengi sem núverandi borgarstjórnarmeirihluti lafir. Vilhjálmur var alltaf mjög veikur borgarstjóri og þó svo hann væri þokkalegur embættismaður varð honum á mörg mistök. Sennilega á REI málið að verða landsmönnum og ekki síst honum mjög eftirminnilegt en þá var virkilega farið vitlaust í að leysa mál sem hefði átt að vera unnt að leysa án nokkurra teljandi vandræða. En vandræðin virðast hafa verið Vilhjálmi fjötur um fót.

Og Vilhjálmur víkur fyrir frekasta borgarfulltrúanum sem aldrei virðist hafa orðið kjaftstopp meðan setið hefur í borgarstjórn.

Satt að segja held eg að Ólafur F. hafi spjarað sig nokkuð vel kiðað við þær ömurlegu starfsaðstæður sem honum hefur verið haslaður völlur.

Óskandi er að næsti meirihluti verði öflugur og aðSamfylkingin ásamt Vinstri grænum takist að mynda góðan og mjög starfssaman meirihluta. Eitt af mikilvægustu málefnum á vegum Reykjavíkurborgar er að fjölga borgarfulltrúum ennþeir eru alltof fáir miðað við stærð borgarinnar sem og öll þau gríðarlegu verkefni sem þar eru. Sami fjöldi hefur verið í heila öld ef undan er skilin árin 1982-1986 þegar þeir voru 21 en þá fækkaði Davíð þeim aftur enda hentaði það ekki stjórnsemi einnar mestu stjórnmálafrekju landsins hvorki fyrr né síðar.

Í dag eru 65 borgarfulltrúar og bæjarfulltrúar allra þeirra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu sem telur nálægt 195 þúsund íbúum. Það er gróflega áætlað að um 3.000  íbúar standi að baki hvers fulltrúa. Miðað við að Reykvíkingar eru nálægt 120.000 þyrftu borgarfulltrúar að vera um 40 að tölu!

Núverandi ástand hefur þann annmarka að þeir eru allir í fullu starfi  og er oft erfitt að finna hentugan fundartíma því þessir alt of fáu borgarfulltrúar verða að sitja í allt of mörgum nefndum og ráðum. Þetta fyrirkomulag hentar mjög vel frekjulýðræði en síður opnu og traustu fulltrúalýðræði þar sem sem flestir koma við ákvörðun mála með ólíka reynslu, menntun og bakgrunn.

Mosi 


mbl.is Hanna Birna verður borgarstjóri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 242948

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband