6.1.2008 | 14:31
Til lukku Magnús!
Við Íslendingar samgleðjumst Magnúsi með þá miklu velgengni sem þessi snjalla viðskiptahugmynd um Latabæ snýst um. Að gera góðlátlegt grín að letinni og með því að beina því til barnanna hversu mikilvægt er að forðast kyrrsetur en stunda hreyfingu og íþróttir.
Fylgifiskur velgengninnar er auðvitað peningastraumurinn. Gott er að hafa í huga ráðleggingar Kalvíns siðbótamanns í Sviss og fleiri góðra hugsuðu: að gera e-ð gagnlegt, vera iðinn í kristilegu samfélagi og vera sparsamur, berast með öðrum orðum ekki á. Þetta var það sem siðskiptamaðurinn Kalvín lagði megináherslu á. Talið er að þar megi rekja frumkapítalismann enda hafa Svissarar verið heimsþekktir fyrir iðjusemi, nægjusemi, sparsemi og gera e-ð þarflegt sem nýttist heiminum öllum.
Gangi þér Magnús og Latabæ allt í haginn!
Mosi
Magnús Scheving meðal ríkustu manna heims? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Siðvæðing í stjórnmálum
Nýjustu færslur
- 24.11.2014 Hvar er jafnréttið?
- 7.11.2014 Er réttarríki á Íslandi?
- 27.10.2014 Byssumálið: krefjumst opinberrar rannsóknar
- 8.10.2014 Sekur eða saklaus?
- 8.9.2014 Jón og séra Jón
Færsluflokkar
Bloggvinir
- Aðalsteinn Sigurgeirsson
- Alfreð Símonarson
- Andrea J. Ólafsdóttir
- Andrés Kristjánsson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Anna Benkovic Mikaelsdóttir
- Arnar Pálsson
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Ágúst H Bjarnason
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Þór Sigurðsson
- Ásgeir Eiríksson
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Baldur Hermannsson
- Baldur Kristjánsson
- Baldvin Jónsson
- Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
- Berglind Steinsdóttir
- Birgir R.
- Bjarki Steingrímsson
- Bjarni Harðarson
- Bjarni Kristjánsson
- Björgvin Björgvinsson
- Björgvin Guðmundsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- busblog.is
- Bwahahaha...
- Dagný
- Einar Ólafsson
- Gammur drils
- Guðfríður Lilja
- Guðjón Baldursson
- Guðjón Petersen
- Guðmundur Steingrímsson
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Halldór Sigurðsson
- Hallvarður Ásgeirsson
- Haraldur Haraldsson
- Heidi Strand
- Helga Auðunsdóttir
- Helgi Þór Gunnarsson
- Herdís Þorvaldsdóttir
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjörleifur Guttormsson
- Hlynur Hallsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hvíti Riddarinn
- Högni Snær Hauksson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
- Jakob Falur Kristinsson
- Jens Guð
- Jón Bjarnason
- Jón Halldór Guðmundsson
- Jón Ingi Cæsarsson
- Kaffistofuumræðan
- Karl Tómasson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Kristbjörg Erla Hreinsdóttir
- Kristbjörn Árnason
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Lára Stefánsdóttir
- Loftslag.is
- Lúðvík Júlíusson
- María Anna P Kristjánsdóttir
- María Kristjánsdóttir
- Máni Ragnar Svansson
- Morgunblaðið
- Ólafur Ingólfsson
- Ólafur Þór Gunnarsson
- Ólafur Örn Jónsson
- Ómar Bjarki Smárason
- Ómar Ragnarsson
- Ósk Vilhjálmsdóttir
- Perla
- Pjetur Hafstein Lárusson
- Rúna Guðfinnsdóttir
- Sigurður Hreiðar
- Sigurður Ingólfsson
- Sigurjón Þórðarson
- Steingrímur Helgason
- Svanur Jóhannesson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Theo
- Torfusamtökin
- Trausti Jónsson
- Umhverfis- og náttúrufræðifélag Mosfellsbæjar
- Úrsúla Jünemann
- Valdís Jóhanna Guðbjartsdóttir
- Vefritid
- Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock)
- Þorsteinn Briem
- Þorsteinn Erlingsson yngri
- Þorsteinn Siglaugsson
- Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
- Ævar Rafn Kjartansson
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 243409
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sæll!Þakka góðar kveðjur á mínu bloggi. GGott að minna á reformerta siðfræði sem kannski er grunnurinn undir frammgangi efnahagskerfa í norðanverðri Evrópu. Veit lítið um Kúrda svo sem en eitthvað um Tyrkneska þjóðernisvitund sem bannar annað en að þeir sem búa í Tyrklandi kalli sig Tyrki og séu Tyrkir. Kannski spinn ég þennan þráð eitthvað á næstu dögum. kv. B
Baldur Kristjánsson, 6.1.2008 kl. 15:23
Þakka þér sömuleiði Baldur.
Já það er merkilegt hve Kalvín og aðrir góðir hugsuðir komu góðu til leiðar. Sennilega hafa þeir ekki gert sér grein fyrir því hve marga góða eiginleika þeir voru að koma til leiðar. Einn kunningi minn taldi sig hafa lesið einhvern tíma hafa rekist á áþekka hugsun hjá Páli postula en muni ekki lengur hvar hana er að finna. Fróðlegt væri að fræðast meira um það.
Varðandi Kúrda þá hefi eg ritað nokkuð í blogginu mínu og hvatt til umræðu um þessi mikilsverðu málefni. Við íslendingar höfum nokkrum sinnum tekið af skarið í heimsmálunum þegar aðrar þjóðir töldu sig einhverra hluta vegna ekki færar að taka mikilsverða ákvörðun. Þannig vorum við fyrstir þjóða að viðurkenna sjálfstæði Ísraela á sínum tíma og sömuleiðis sjálfstæði Eystrasaltsríkjanna eftir fall kommúnistmans og járntjaldsins. Kúrdar skera sig mjög úr þjóðabrotunum þarna austur frá og hafa eiginlega öll skilyrði til að vera sjálfstæðir. Sjálfstæði Kúrda gæti nefnilega leyst mörg vandræði, dregið úr spennu og tortryggni ríkjanna sem þar eru í næsta nágrenni og þá þyrftu þjóð sem Tyrkir að læra að taka tillit til þessara nýju granna sem í raun hafa verið mjög lengi þarna í fjöllunum.
Annars væri óskandi að með auknu víðsýni væri unnt að koma á friði á þessum slóðum. Sem stendur eru natóríkin að baki þjóðernishreinsunum í austur Tyrklandi og það hvetur marga til að fara landflótta. Alltaf er æskilegast að fólk geti fengið að lifa í friði þar sem það er fætt og uppalið en þurfi ekki að leita til annarra landa með hatur og tortryggni gagnvart öðrum í huga.
Svo óska eg þér alls góðs í þínum góða praxís.
Mosi - alias
Guðjón Sigþór Jensson, 6.1.2008 kl. 16:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.