Fordæmum ekki of snemma

Þessi erfiða deila er að taka nýja og verri stefnu. Þó svo að grunur beinist að þeim sem látið hafa ti sínl taka í þessum mótmælum er ekki útilokað að einhverjir aðrir en sem fylgja Varmársamtökunum hafi gripið tækifærið til að klína skömmina á þau. Að sjálfsögðu þyrfti að rannsaka þessi skemmdarverk eins og hvert annað lögreglumál. Því skulum við varast að hafa stór orð meðan ekki liggur ljóst fyrir hver eigi hlut að máli. Svona tilfelli þekkist í refsirétti og má minnast eins af bestu Derrick þáttunum þar sem morðingi gekk laus en grunurinn beindist eðlilega fyrst að þeim sem hafði látið hafa eftir sér stór hatursorð til þess sem myrtur var.

Eignarspjöll ber að líta grafalvarlegum augum. Til þeirra er stundum gripið í stundaræði og er málstað aldrei til nokkurs framdráttar. Einhvern tíma á dögum Þorskastríðsins við Breta veturinn 1972-1973 réðst sannkallaður skríll á sendiráð Breta við Laufásveg og linnti ekki látum fyrr en nánast hver einasta rúða hafði verið mölvuð. Sú saga fylgdi að starfsmaður sendiráðsins mátti fjör sitt að launa að hann skreið undir sterklegt eikarborð meðan grjótið og öll glerbrotin bókstaflega rigndu inn í herbergið þar sem hann var staddur. Þessar aðgerðir voru Íslendingum ekki til framdráttar og urðum við eðlilega að bæta Bretum skaðann. Þar fóru miklir fjármunir í súginn sem betur hefðu veriði nýttir í annað þarflegra.

Sjálfur var eg áhorfandi að þessum viðburði og mátti sjá þar ýmsar kunnugar persónur í þjóðlífinu í dag.  Þar voru bæði Heimdellingar, ungir Framsóknarmenn og félagar úr Æskulýðsfylkingunni sem urðu í þetta skipti sammála þennan dag, að vera sammála um að brjóta rúður! Mér fannst sem ungur maður þetta nokkuð einkennilegt enda var mikið rifist um málefni sem í dag þættu léttvæg fundin. Óskandi væri að ungt og tápmikið fólk sem og þeir sem eldri erum, séum sammála um eitthvað sem er til gagns. 

Kannski þessa deilu um tengibrautina ofan við Álafoss mætti skoða í ljósi annarra viðburða. Við gætum að öllum líkindum dregið af þeim ýmsa lærdóma.

Mosi


mbl.is Skemmdarverk unnin á vinnuvélum í Álafosskvos
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haukur Viðar

Góður pistill

Haukur Viðar, 16.5.2007 kl. 19:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 242949

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband