Af hverju er ekki unnt að laga þetta hér?

Furðulegt er að ekki skuli vera unnt að laga þennan galla hér á landi. Umtalsverð reynsla og þekking er við smíði og viðgerðir skipa hér síðan 1902 þegar Slippfélagið í Reykjavík var stofnað. Skipasmíðastöðin á Akureyri hefur verið einna þekktust á þessu sviði á undanförnum áratugum en er víst núna ekki nema svipur hjá sjón miðað við fyrri tíma.

Vonandi eru Íslendingar ekki að glutra niður dýrmætri þekkingu við nýsmíði, viðgerðir og viðhald skipa. Það var miður að þetta skip hefði ekki verið byggt hér en fjarlæg lönd á borð við Kína hafa verið hlutskörp í tilboðum vegna útboða verkefna. Kannski að útboðin séu ekki nógu nákvæm hvað gæði og kröfu verkkaupa snertir. Það er orðið að venju að þessi verk reynast annað hvort gölluð eða svo áfátt að ekki hefur verið unnt að nota efni. Þannig varð meira og minna að framleiða tvisvar efnið í stálgrind glerhjúps Hörpu.

Góðar stundir.


mbl.is Þór frá í fjórar vikur hið minnsta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bernharð Hjaltalín

Sæll, þegar jarðskjálftinn var í Shile stór skemmdist skipið mikið m.a. fylltist af sjó og gekk til, við hér vitum ekki neitt um samninga fyrir og eftir tjónið.

Eðlilegast var að fá skipsskrokk hingað heim fyrir c.a. sex árum og innrétta hann hér heima með nemum úr iðnskóla og meisturum, þetta hefði getað verið búið núna allur þessi gjaldeyrissparnaður

og Þekking sem hefði áunnist er ekki lítil.

Bernharð Hjaltalín, 6.2.2012 kl. 12:56

2 identicon

Vélbúnaður skipsins er frá Rolls Royce og hefur fyrirtækið notað Íslendinga til að framkvæma þær minniháttar breytingar sem fyrirtækið vildi byrja á að gera til finna út orsök þessa titrings. Nú skilst mér að vélin verði tekin í sundur stykki fyrir stykki til að finna hvað veldur. Ég tel ekki ólíklegt að RR hafi bæði sérhæfðan mannskap og tækjabúnað til verksins í Bergen og því er eðlilegt að RR vilji fá skipið þangað.

Guðmundur (IP-tala skráð) 6.2.2012 kl. 13:15

3 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Rolls Roys mótorar eru framleiddar rétt norðan við Bergen, og eftir því sem mér hefur skilist, þá er allt heila klabbið í ábyrgð ennþá. Það er þá líklega eðlilegast að framleiðandi mótorsins fari yfir þetta, og finni út hver gallinn eða bilunin er, og geri við hana ef það er hægt.

M.b.kv. 

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 6.2.2012 kl. 22:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 243030

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband