Hvað olli hruninu?

Gylfi getur haft hvaða skoðun sem er á þessum málum En ekki verður gengið framhjá því að tap landsmanna á hlutabréfum var gríðarlegt.

Í aðdraganda hrunsins voru ýms teikn á lofti að ekki væri allt með felldu. Ýmsir athafnamenn og braskarar voru valdamenn víða, oft í skjóli hlutafjáreignar sem var meira brúttó en raunveruleg eign.

Eg minnist þess að nokkru fyrir hrun var boðaður hluthafafundur í Exista. Þar hugðist eg bera fram tillögu um takmörk um atkvæðisrétt í félaginu og vildi fá lífeyrissjóðina til að vera með mér að styðja tillöguna. Hún gekk út á að tvenn skilyrði væru sett fyrir atkvæðisrétti: annars vegar að hlutafé hefði raunverulega greitt til félagsins og að hlutafé væri ekki veðsett. Með þessu móti var unnt að gera braskarana valdalausa. Kunnugt er að þeir Bakkabræður stofnuðu félag einhvers staðar og það fyrirtæki var skráð fyrir 50 milljörðum króna hlutafé í Exista án þess að ein einasta króna hefði verið greidd til félagsins. Auðvitað varp eg undir í atkvæðagreiðslu en nokkrir litlir hluthafar voru sömu skoðunar og eg og guldu tillögu minni atkvæði.

Auðvitað eiga þeir að fara með völd í fyrirtækjum sem fjárfesta til lengri tíma. Sá sem raunverulega hefur fjárfest í hlutabréfum fyrir beinharða fjármuni eins og peninga og hefur ekki veðsett hlutaféð á að fara með atkvæðisrétt, aðrir ekki!

Í dag eru hlutabréf í þessu tryggingafyrirtæki Exista nánast einskis virði, Bakkabræður buðu af rausn sinni öðrum hluthöfum að kaupa hverja krónu fyrir 2 aura!

Enginn fulltrúi lífeyrissjóðanna mætti né þeir höfðu veitt einhverjum umboð! Svona var umhyggjan fyrir þeim eigum sem skjólstæðingar þeirra, lífeyreisþegarnir áttu allt undir.

Nú eru forsvarsmenn lífeyrissjóðanna á mjög háum launum. Þeir ættu að skammast sín ef þeir kunna það og segja af sér áður en þess verður krafist opinberlega.


mbl.is Högnuðust um 472 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristinn Pétursson

Hrunið var í raun "aftöppun á lofti".

Íbúðalánasjóður virðist sú lánastofnun sem eftir er að tappa öllu lofti af -  með formlegri skýrslu um raunvirði lánasafns Íbúðalánasjóðs t.d. miðað við 95% af söluverði fasteigna þeirra sem   eignasafnið hefur veð í.

Öll veð umfarm 95% - eru 100% undirmálslán og Íbúðalánasjóður verður að undirgangast sömu reglur um afskrift tapaðra lána - og aðrir  gera í þessu uppgjöri - bankarnir - fjárfestingasjóðir - og nú síðast Lífeyrissjóðirnir.

Íbúðalánasjóður virðist einn eftir - og hugsanlega Byggðastofnun og fleiri opinberir lánasjóðir t.d. lánasjóður sveitarfélaga??  ég vei reyndar ekkert um stöðu lánasjóðs sveitarfélaga - get hans bara hér - því eitt skal yfir alla ganga - hvort sem það eru bankar eða lánasjóðir á vegum ríkisins.  Af hverju eru opinberir lánasjóðir  ekki teknir jafn hratt inn í uppgjör bankahrunsins og aðrar lánastofnanir??

Kristinn Pétursson, 6.2.2012 kl. 12:50

2 identicon

Gylfi ætti að skammast sín og þegja !

Í hverju felst þessi hagnaður 2009 - 2010 ?

Hér er um að ræða fyrst og fremst verðtrygging á heimili landsins sem launþegar landsins bera !  Fyrir hvern er maðurinn að vinna ?

Neytandi (IP-tala skráð) 6.2.2012 kl. 13:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 243043

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband