Hvers vegna hefur opinber skýring á bankahruninu ekki verið sett fram?

Enn hefur ekki verið sett fram nein opinber skýring á því hvers vegna Bretar beittu Íslendinga umdeildum hryðjuverkalögum.

Að öllum líkindum er atburðarásin þessi:

Allt síðastliðið ár er eins og yfirvöld beggja landanna hafi verið ljóst að í óefni stefndi hjá íslensku bönkunum. Skýrslur virtra og varfærinna bankamanna og sérfræðinga frá London school of economy benda til þess að þær hafi verið lesnar og teknar alvarlega af yfirvöldum beggja landanna.

Þegar Glitnir kemst í þrot undir lok september og hann er þjóðnýttur, veldur það strax tortryggni Breta gagnvart Geir Haarde og Sjálfstæðisflokknum. Þeir vilja viðræður þar sem yfirvöld beggja landa hafi til ákvörðunar hvernig leysa skuli þessi mál. Ekki líður á löngu en hinir bankarnir, Kaupþing og Landsbanki lenda í sömu vandræðum. Búið var að eta bankana innanfrá og gríðarlegu fé hafði verið komið undan í skattaskjól. Athygli vekur að breskur ríkisborgari er einn helsti örlagavaldur falls Kaupþings.

Þegar Geir Haarde ákveður að fara séríslenska leið sem fólgin er í því að hunsa Breta og gera það sem þeir töldu best í stöðunni. Það er setning Neyðarlaganna 6.október sem var tilefni fyrir Breta að beita hermdarverkalögunum. Þeim var ljóst að Davíð og Geir ætluðu sér að hunsa með öllu sjónarmið breska ljónsins. Nú féll allt íslenska bankakerfið saman öllu venjulegu fólki á Íslandi til mikillrar undrunar enda hafði sæluríki þeirra Davíðs og Geirs staðið traustum stoðum og ekki haft nein merki að svo skjótt hryndi það til grunna.

Því miður var íslenskur almenningur blekktur allt fram að bankahruninu mikla. Fjármálaeftirlitið gefur út heilbrigðisvottorð um bankana 14. ágúst. Sjálfstæðisflokkurinn byggði upp einkennilega spilaborg sem einungis grundvallaðist á fagurgala frjálshyggjunnar sem ekki mátti trufla á neinn hátt með því að setja bindisskyldu eða skynsamlega fjármálastjórn. Það var glæsimennskan, ævintýramennskan og skyndigróðinn hafður í hávegum. Minnsta tortryggni og efasemdir voru sungnar í strangt bann.

Sæluríkið féll og fall þess var mikið!

Mosi

 


mbl.is Hryðjuverkalög of harkaleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 242940

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband