18.2.2009 | 12:57
Loftleiðir: skrautleg saga að baki
Já þetta var merkilegur tími í samgöngu- og atvinnusögu Íslendinga.
Nauðsynlegt er í rekstri fyrirtækja að beina fjárfestingum í sem hagkvæmastu átt. Douglas Dakota flugvélarnar voru lengi vel nátengdar sögu félagsins, fyrst DC3 Þristarnir, þá komu Skymaster DC4 og síðar Cloudmaster DC6 sem voru í flugflota félagsins á árunum kringum 1960. Þá kom millikafli þegar keyptar voru 1964 flutningavélar frá Kanada, CL-44 Monsarnir. Þeim var breytt til farþegaflugs og þar sem þær voru knúðar hreyflum frá Rolls Royce þá fengu þessar flugvélar þetta heiti. Tómar vógu þær jafnmikið og DC6 fullfermdar og þurftu því lengri flugbrautir. Nokkrir erfiðleikar voru samfara að fljúga þeim og þurfti t.d. að koma fyrir sérstakri ballest, einu tonni að þyngd, framarlega í flugvélunum. Alls voru framleiddar einungis 39 flugvélar af þessari gerð og voru þær einkum notaðar í þágu kanadíska hersins. Loftleiðir keyptu alls 5 flugvélar af þessari gerð.
Monsarnir áttu sinn þátt í að gera Loftleiði að því stórveldi sem það var uns Loftleiðir voru sameinaðir Flugfélagi Íslands 1973 sem Flugleiðir.
Árin 1967 og 68 var umtalsvert tap á rekstri Loftleiða og 1. maí 1968 er rekstri gömlu DC6 flugvélunum hætt. Þær voru lítt seljanlegar en oft verður dauði annars brauð og kemur nú að kostulegum kafla í sögu Loftleiða:
Um mitt sumar 1968 leituðu hjálparstofnanir kirkjunnar á Norðurlöndum eftir flugvélum til að flytja nauðþurftir til sveltandi íbúa í Biafra í austur Nígeríu. Var stofnað sérstakt fyrirtæki, Flughjálp sem var í eigu kirkjunnar. Var byskup Íslands, herra Sigurbjörn Einarsson formaður fyrirtækisins. Nú var ekki unnt að veita þessu fyrirtæki óskert flugrekstrarleyfi þar eð ekki var næg reynsla á rekstri flugvéla hjá kirkjunni. Þessum vandræðum var bjargað snarlega með því að Loftleiðir sá að öllu leyti um flugreksturinn en herra Sigurbjörn gerður að deildarstjóra í Loftleiðum! Mun það vera einsdæmi að klerkur hvað þá byskup hafi verið dreginn inn í rekstur fyrirtækis um tíma!
Biafra flugið var sérkennilegt hliðarspor. Einn af reyndustu flugmönnum Íslendinga, Þorsteinn Jónsson sem lærði að stýra orustuflugvélum í breska flughernum á stríðsárunum, hafði veg og vanda af þessu hjálparstarfi. Alls voru flognar um 400 ferðir og flaug Þorsteinn sjálfur 6 nætur af 7. Síðasta ferðin var mjög söguleg en þá lenti Þorsteinn í kúlnahríð frá stjórnarhefnum í Nígeríu.
Haustið 1969 var fyrsta Monsanum breytt aftur til vöruflutninga. Nú kom til sögunnar Cargolux, dótturfyrirtæki Loftleiða sem talið er hafa tekið til starfa 1970. Varð brátt mjög blómleg starfsemi kringum það fyrirtæki og til varð íslendinganýlenda í Lúxembourgh. Um þetta leyti var fyrsta þotan af gerðinni DC8 útveguð til rekstursins. Þotuöldin hófst nokkrum árum á eftir Flugfélagi Íslands sem hafði keypt Boeing þotu 1967. Air Bahama hóf flug milli Nassau og Lúxembourghar 1968. Það flugfélag stóð með Loftleiðum utan IATA sem var lykilatriðið að samstarf þessara flugfélaga varð til að stórlækka fargjöld milli Ameríku og Evrópu. Hippaflugfélagið var komið til sögunnar!
Þessi stutti útdráttur er byggður m.a. á Alfreðs sögu og Loftleiða eftir Jakob. F. Ásgeirsson, Reykjavík 1984.
Mosi
Sigurður ruddi lággjaldaflugfélögum braut | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Siðvæðing í stjórnmálum
Nýjustu færslur
- 24.11.2014 Hvar er jafnréttið?
- 7.11.2014 Er réttarríki á Íslandi?
- 27.10.2014 Byssumálið: krefjumst opinberrar rannsóknar
- 8.10.2014 Sekur eða saklaus?
- 8.9.2014 Jón og séra Jón
Færsluflokkar
Bloggvinir
- Aðalsteinn Sigurgeirsson
- Alfreð Símonarson
- Andrea J. Ólafsdóttir
- Andrés Kristjánsson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Anna Benkovic Mikaelsdóttir
- Arnar Pálsson
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Ágúst H Bjarnason
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Þór Sigurðsson
- Ásgeir Eiríksson
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Baldur Hermannsson
- Baldur Kristjánsson
- Baldvin Jónsson
- Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
- Berglind Steinsdóttir
- Birgir R.
- Bjarki Steingrímsson
- Bjarni Harðarson
- Bjarni Kristjánsson
- Björgvin Björgvinsson
- Björgvin Guðmundsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- busblog.is
- Bwahahaha...
- Dagný
- Einar Ólafsson
- Gammur drils
- Guðfríður Lilja
- Guðjón Baldursson
- Guðjón Petersen
- Guðmundur Steingrímsson
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Halldór Sigurðsson
- Hallvarður Ásgeirsson
- Haraldur Haraldsson
- Heidi Strand
- Helga Auðunsdóttir
- Helgi Þór Gunnarsson
- Herdís Þorvaldsdóttir
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjörleifur Guttormsson
- Hlynur Hallsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hvíti Riddarinn
- Högni Snær Hauksson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
- Jakob Falur Kristinsson
- Jens Guð
- Jón Bjarnason
- Jón Halldór Guðmundsson
- Jón Ingi Cæsarsson
- Kaffistofuumræðan
- Karl Tómasson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Kristbjörg Erla Hreinsdóttir
- Kristbjörn Árnason
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Lára Stefánsdóttir
- Loftslag.is
- Lúðvík Júlíusson
- María Anna P Kristjánsdóttir
- María Kristjánsdóttir
- Máni Ragnar Svansson
- Morgunblaðið
- Ólafur Ingólfsson
- Ólafur Þór Gunnarsson
- Ólafur Örn Jónsson
- Ómar Bjarki Smárason
- Ómar Ragnarsson
- Ósk Vilhjálmsdóttir
- Perla
- Pjetur Hafstein Lárusson
- Rúna Guðfinnsdóttir
- Sigurður Hreiðar
- Sigurður Ingólfsson
- Sigurjón Þórðarson
- Steingrímur Helgason
- Svanur Jóhannesson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Theo
- Torfusamtökin
- Trausti Jónsson
- Umhverfis- og náttúrufræðifélag Mosfellsbæjar
- Úrsúla Jünemann
- Valdís Jóhanna Guðbjartsdóttir
- Vefritid
- Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock)
- Þorsteinn Briem
- Þorsteinn Erlingsson yngri
- Þorsteinn Siglaugsson
- Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
- Ævar Rafn Kjartansson
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.