Stofnum útibú Seðlabanka í Hrappsey

Kalt var í morgun, eg og yngri sonur minn entumst þó í nær þrjá tíma. Rétt misstum af Bubba og félögum. Á morgun hyggjumst við mæta e-ð fyrr svo við höfum tækifæri að sjá gamla refinn skjótast inn í bankann.

Annars er til umhusgunar hvort Jóhanna forsætisráðherra ætti ekki að stofna útibú Seðlabankans í einhverri eyðieyju Breiðafjarðar. Tvær eyjar bera það merka nafni Hrappsey. Á þeirri stærri í mynni Hvammsfjaraðr var mikil menningarsaga, heilt prentverk var þar um nokkurra ára skeið. Sú minni er úti fyrir Skarðsströnd. Þangað mætti senda Davíð og þá tryggu hjörð sem hefur slegið skjaldborg um hann.

Þessi lausn hefði það í för með sér að ekki þyrfti að grípa til uppsagnar hans með tilheyrandi vandræðum fyrir þing og þjóð, nóg eru vandræðin fyrir sem stafa af þessum skelfilega manni. Hann fengi að vera í friði óáreittur, gæti dundað sér við að kljúfa rekavið eins og Vilhjálmur keisari Þýskalands dútlaði við í elli sinni. Þeir eyjaskeggjar gætu skotið sér seli til matar og lifað þokkalegu lífi í friði við guð og menn. Á vorin gætu þeir félagar sinnt æðarvarpi og stuggað við minkum,refum og ránfuglum. Með þessu lærðu þessir herramenn að það þarf töluvert að hafa fyrir lífinu, ekki verður allt fengið með kjaftavaðlinum og þvermóðskunni. Þá mætti senda þangað nauðsynlegan kost og póst á svona mánaðarfresti. Um kaupgreiðslur mætti greiða Davíð í gömlum krónum sem við gætum komist af án og þyrftum ekki nauðsynlega á að halda.

Þegar Davíð hefur sýnt iðrun, beygt sig niður í duftið og beðið íslensku þjóðina fyrirgefningar á afdrifaríkum afglöpum sínum, mætti hann eiga afturkvæmt í mannfélagið aftur. En ekki gæti hann vænst þess að setjast aftur í Seðlabankann enda hann ekki líklegur til að geta sinnt starfi þar nema ef vera skyldi við einhver tilfallandi störf svo sem aðstoðarmaður ræstikvenna og við uppvask.

Þessari hugmynd er hér með komið á framfæri.

Mosi

 

 

 

 


mbl.is Bubbi rokkar Seðlabankanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd:  Úrsúla Jünemann

Pöntum bara lyklasmið og skiptum um lása í Seðlabankanum. Þetta er mjög einfalt. Sorry, Davíð, það er búið að reka þig, farðu eitthvað annað.

Úrsúla Jünemann, 10.2.2009 kl. 15:01

2 Smámynd: Heidi Strand

Takk fyrir í gær og í dag. Davíð er þrjóskari en andskotann, en við erum það líka.

Heidi Strand, 11.2.2009 kl. 12:44

3 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Já það er spurning hvort andskotinn sjálfur sé búinn að fá hörku samkeppnisaðila í þrjóskunni? Einhvern tíma hlýtur karlinn að gefast upp. Ökulagiðh´æa honum núna í morgun bar honum ekki vitni að sérlega skynsamur maður væri þar á ferð. Hann ók á allt of miklum hraða inn í bílageymslur Seðlabankans og mnáttu viðstaddir fótum sínum fjör að launa. Ekki munaði miklu að þessi voðalegi maður hefði valdið alvarlegu slysi með ökulagi sínu.

Mér fannst rétt að hvetja viðkomandi sem fyrir var að kæra ökumanninn og gilti einu hvort um væri að ræða bankastjóra Seðlabanka eða annan borgara.

Litlu seinna var maður handtekinn: Sturla Jónsson fyrir þann „glæp“ að þeyta lúðra sína í mótmælunum. Hann hefur vonandi óskað bókað í lögregluprótókollinn þar sem fram komi mótmæli við handtöku hans enda hefur hann verið að mótmæla á sama hátt undanfarnar vikur án þess að neinar athugasemdir hafi verið fram settar við því. Sturla aðhafðist ekkert annað en það sem flestir ef ekki allir viðstaddir voru að gera: að framleiða sem mestan hávaða. Viðhvöttummeira að segja ökumenn að þeyta bílflautur til að mótmæla vaxtaokrinu og þrásetu Davíðs. Nokkur okkar bentu lögreglumönnum á þetta en ekki var okkur ansað.

Er svo komið málum að Davíð geti skipað lögreglunni að handtaka þá menn sem eru að trufla hann í vinnunni? Eða öllu heldur að því virðist vera að drekka kaffisopann sinn? Kannski Davíð geri lítið annað í „vinnunni“ þessa þrásetudaga en að drekka kaffi sem hann gæti einnig léttilega gert heima hjá sér eða vinum sínum. Er kaffið kannski skárra í bankanum en heima hjá honum?

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 11.2.2009 kl. 19:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 7
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 242982

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband