Nýir tímar?

Sjálfsagt er að óska öllum til hamingju með ný störf og verkefni sem þeir taka að sér jafnvel líka í Framsóknarflokknum sem hefur á sér orð fyrir að vera eitt aðalaðsetur spillingarinnar í landinu.

Það mætti verða verðugt verkefni fyrir hinn nýja framkvæmdarstjóra að opna þennan flokk betur fyrir upplýsingastreymi um fjármál flokksins þar sem allir megi sjá betur þræðina sem hafa borið uppi spillinguna og svínaríið á undanförnum árum og áratugum í flokki þessum.

Mosi


mbl.is Nýr skrifstofustjóri þingflokks Framsóknarflokks
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gestur Guðjónsson

Þú minnist ekkert á kennitöluflótta Samfylkingarinnar frá Alþýðuflokknum og Kvennalistanum og kennitöluflótta VG frá Alþýðubandalaginu.

Af hverju?

Gestur Guðjónsson, 5.12.2008 kl. 17:17

2 identicon

Sjálft höfuðból spillingarinnar andar enn á gjörgæslunni. Ósköp er ég hræddur um að þjóðin taki vélbúnaðinn, sem heldur þessu hræi lifandi, úr sambandi í kosningunum í vor.

Netamaður (IP-tala skráð) 5.12.2008 kl. 17:45

3 Smámynd: Heiðar Lind Hansson

Netamaður!

Segir þetta sem skrifaðir ekki meira um sjálfan þig?

Heiðar Lind Hansson, 5.12.2008 kl. 19:18

4 Smámynd: Kristbjörg Þórisdóttir

Ég mæli nú með því að fólk renni við í kaffi á Hverfisgötu 33 eða víðs vegar um borgina og landið í framsóknarkaffi áður en það slær svona stórum orðum föstum á bloggum. Það yrðu margir hissa á því hversu spennandi tímar eru framundan hjá Framsókn! YES WE CAN .

Kristbjörg Þórisdóttir, 5.12.2008 kl. 20:16

5 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Þakka athugasemdir.

Mosi þekkir marga framsóknarmenn gegnum tíðina. Flestir hverjir hafa síðustu árin læðst með veggjum og hafa ekki viljað ljá máls á hneykslismálunum. Og fylgið er skv. nýjustu könnuninni að nálgast 4%. Það segir sitt um þetta framsóknarflak. Og ekki er burðugt að byrja upp á nýtt með allar þær kollsteypur að baki sem Framsóknarflokkurinn bar ásamt Sjálfstæðisflokiknum alla ábyrgð á.

Nú þarf að hefja mikla vinnu við nýja ognútímalega stjórnarskrá sem þessir tveir stjórnmálaflokkar hafa ekki viljað sökum spillingar sem hefur verið rótgróið í þeim báðum í áraraðir ef ekki áratugi. Best væri að þeir pökkuðu saman og væru lagðir niður. Saga þeirra á fremur heima í skjalasöfnum en í veruleikanum. Þeir eru sökum djúprar spillingar ekki vel hæfir að móta nýtt og betra þjóðfélag.

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 6.12.2008 kl. 12:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 242963

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband