23.5.2008 | 11:35
Elsti flugvöllur á Íslandi?
Sennilega er flugvöllurinn í Kópavogi, réttara: á Sandskeiði elsti flugvöllur landsins. Þarna á melnum var góð aðstaða fyrir frumkvöðla flugs á Íslandi en meðal þeirra voru tveir Íslendingar sem sótt höfðu sér framhaldsmenntun til Þýskalands, voru einkum tveir menn nefndir sérstaklega til sögunnar: Alexander Jóhannesson háskólarektor sem hafði numið Germanistic sem er hliðstætt norrænu. Alexander var skáldmæltur og þýddi ljóð eftir Schiller og Goethe og fleiri þekkt skáld þýsk. Hann rannsakaði mjög mikið upphaf og þróun indóevrópska tungumála og grennslaðist fyrir uppruna orðanna. Fyrir um 60 árum var prentuð gríðarlega stórt verk sem nefnist á þýsku: Isländisches etymologisches Wörterbuch, náma fróðleiks þeim sem gaman hefur af að grúska í heimi orða og tungumála en þar rekur Alexander tengsl íslenskunnar gegnum margar tungur og aftur til grárrar forneskju. Hinn Íslendingurinn, Agnar Kofoed Hansen, hafði hins vegar ekki jafn friðsamlega menntun sem Alexander. Hann hafði sótt sér menntun í hernaðarfræðum, útskrifaður liðsforingi úr konunglega danska sjóflugskóla og síðar sótt nánari framhaldsmenntun í Þýskalandi á árunum 1936-37. Heimkominn er hann skipaður snemma árs 1940 lögreglustjóri í Reykjavík.
Báðir þessir menn voru haldnir gríðarlegum flugáhuga og má sennilega rekja tengsl þeirra við Þýskaland að hingað komu nokkrir þýskir liðsforingjar úr þýska Luftwaffe með nokkrar svifflugur og eina flugvél. Haustið 1939 urðu þeir frá að hverfa vegna hins eldfima póitíska ástands í Evrópu en flugvélunum var komið fyrir í skúr sem byggður hafði verið.
Þegar Bretarnir hernámu landið 10.maí 1940 var eitt fyrsta verk þeirra eftir að hafa handtekið dr.Gerlach og komið sér fyrir á öllum hernaðarlega mikilvægum stöðum, sent herflokk austur á Sandskeið og kanna aðstæður þar. Sennilega hefur þeim brugðið í brún að finna það sem þar leyndist, líklega fyrsta stríðsgóssið sem þeim tókst að hreppa. Og að öllum líkindum hafa Bretarnir verið mjög tortryggnir gagnvart Íslendingum almennt þar eð hve tengslin þeirra við Þýskaland virtust sterk. Borgarstjórinn í Reykjavík hafði einnig sótt framhaldsmenntun í lögspeki til háskólans í Berlín. Hann reyndist Bretum n.k. ljár í þúfu þegar þeir vildu hefja undirbúning að flugvallargerð í Vatnsmýrinni en Bjarni Benediktsson hafði þá framtíðarsýn að flugvöllurinn yrði eðlilegri byggðaþróun alvarlegur þrándur í götu og vildi flugvallargerðina e-ð annað. Einnig óttaðist Bjarni að með þessu væru Bretar að gera Reykjavík að hugsanlegu skotmarki Þjóðverja. Með þessu sýndi Bjarni fyrst og fremst mikið raunsæi: í stríði er ekki spurt um líf og limi almennra borgara þegar um hernaðarleg mikilvæg skotmörk er að ræða.
Það mun sennilega hafa verið 1937 þegar svifflugvöllurinn á Sandskeiði var tekinn í notkun. Í Morgunblaðinu 21. september 1937 má lesa frétt en fyrirsögnin er þessi: Renniflugsæfingar á Sandskeiði. Renniflugur eru einfaldari gerð sviffluga og er rennt á loft með dráttarvír. Vörubíl var komið fyrir á gömlum sykurkössum og er annað afturhjólið notað sem n.k. trissa fyrir vír sem notaður er til að draga flugurnar á loft.
Líklega er þetta ein elsta heimildin um flug á Sandskeiði.
Mosi
Ný flugbraut á Sandskeiði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Siðvæðing í stjórnmálum
Nýjustu færslur
- 24.11.2014 Hvar er jafnréttið?
- 7.11.2014 Er réttarríki á Íslandi?
- 27.10.2014 Byssumálið: krefjumst opinberrar rannsóknar
- 8.10.2014 Sekur eða saklaus?
- 8.9.2014 Jón og séra Jón
Færsluflokkar
Bloggvinir
- Aðalsteinn Sigurgeirsson
- Alfreð Símonarson
- Andrea J. Ólafsdóttir
- Andrés Kristjánsson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Anna Benkovic Mikaelsdóttir
- Arnar Pálsson
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Ágúst H Bjarnason
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Þór Sigurðsson
- Ásgeir Eiríksson
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Baldur Hermannsson
- Baldur Kristjánsson
- Baldvin Jónsson
- Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
- Berglind Steinsdóttir
- Birgir R.
- Bjarki Steingrímsson
- Bjarni Harðarson
- Bjarni Kristjánsson
- Björgvin Björgvinsson
- Björgvin Guðmundsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- busblog.is
- Bwahahaha...
- Dagný
- Einar Ólafsson
- Gammur drils
- Guðfríður Lilja
- Guðjón Baldursson
- Guðjón Petersen
- Guðmundur Steingrímsson
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Halldór Sigurðsson
- Hallvarður Ásgeirsson
- Haraldur Haraldsson
- Heidi Strand
- Helga Auðunsdóttir
- Helgi Þór Gunnarsson
- Herdís Þorvaldsdóttir
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjörleifur Guttormsson
- Hlynur Hallsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hvíti Riddarinn
- Högni Snær Hauksson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
- Jakob Falur Kristinsson
- Jens Guð
- Jón Bjarnason
- Jón Halldór Guðmundsson
- Jón Ingi Cæsarsson
- Kaffistofuumræðan
- Karl Tómasson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Kristbjörg Erla Hreinsdóttir
- Kristbjörn Árnason
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Lára Stefánsdóttir
- Loftslag.is
- Lúðvík Júlíusson
- María Anna P Kristjánsdóttir
- María Kristjánsdóttir
- Máni Ragnar Svansson
- Morgunblaðið
- Ólafur Ingólfsson
- Ólafur Þór Gunnarsson
- Ólafur Örn Jónsson
- Ómar Bjarki Smárason
- Ómar Ragnarsson
- Ósk Vilhjálmsdóttir
- Perla
- Pjetur Hafstein Lárusson
- Rúna Guðfinnsdóttir
- Sigurður Hreiðar
- Sigurður Ingólfsson
- Sigurjón Þórðarson
- Steingrímur Helgason
- Svanur Jóhannesson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Theo
- Torfusamtökin
- Trausti Jónsson
- Umhverfis- og náttúrufræðifélag Mosfellsbæjar
- Úrsúla Jünemann
- Valdís Jóhanna Guðbjartsdóttir
- Vefritid
- Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock)
- Þorsteinn Briem
- Þorsteinn Erlingsson yngri
- Þorsteinn Siglaugsson
- Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
- Ævar Rafn Kjartansson
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Guðjón - gott að halda því til haga að flugvallartetur á stað sem heitir Sauðárkrókur er nefnt í höfuðið á dr. Alexander, enda var hann fæddur og uppalinn nánast við flugbrautarendann sem nú er.
ellismellur (IP-tala skráð) 23.5.2008 kl. 11:47
Jú en þessi nafngift er seinni tíma fyrirbæri og minnir á þegar aðkomumenn breyttu gömlum og gildum örnefnum. Einu sinni var bær undir Skarðsfjalli austur í Rangárvallasýslu og hét því einkennilega nafni Látalæti. Ekki þótti bónda sem keypt hafði þessa landlitlu jörð við hæfi þetta nafn og tók upp annað. Nú nefnist jörðin sú því risminna nafni Múli. upprunalega nafnið mun sennilega vera einhvers konar afbökun úr gelísku. Að öllum líkindum voru írskir frumbyggjar á Suðurlandi þegar víkingarnir komu hingað frá Noregi. Í sömu sýslu er fjöldinn allur af einkennilegum örnefnum einkum bæjarnöfnum. Eitt nafnið er Pula sem fáir vita nein skil á hvað merkir. Sennilega er hér um að ræða óvenjumikið votlendi sem erfitt var að komast yfir. Sögnin að púla í merkingunni strita getur því verið tengt því að komast heilu og höldu yfir varhugaverðar mýrarnar.
Kveðja
Mosi
Mosi
Guðjón Sigþór Jensson, 23.5.2008 kl. 12:08
Ekki gleyma Melgerðismelum ;)
Karl (IP-tala skráð) 23.5.2008 kl. 12:12
Bretar voru jú töluvert á Melgerðismelum frammi í Eyjafirði en voru þeir notaðir fyrir stríð?
Mosi
Guðjón Sigþór Jensson, 23.5.2008 kl. 13:49
Fyrsti flugvöllur á Íslandi var á Briemstúni í Vatnsmýrinni. Í frétt á forsíðu Mbl þann 4. sept 1919 er athafnasvæði Flugfélags Íslands(nr1) mörgum sinnum nefnt "flugöllur" t.d: "En um kl 5 í gær gerðist óvæntur atburður suður á Flugvelli" Þar er verið að segja frá fyrsta flugtaki flugvélar af íslenskri grund. Flugfélag Íslands (nr1) flaug með farþega gegn gjaldi og var flug á þess vegum því auðvitað atvinnuflug. "Flugstuðull" heitir minnisvarði um þetta flug sem er austan Njarðargötu, norðan Fluggarða í Vatnsmýrinni, á sama stað og fyrsti flugvöllur á Íslandi var. Sami flugvöllur, en endurbættur, var notaður af Hollendingum sem stunduðu þaðan veðurrannsóknir árin 1932-3 http://www.aerofile.info/fokkerd7/d7html/polaryr.htm Flugvöllurinn í Vatnsmýrinni ER ÞAR ENNÞÁ og hefur eflst og þroskast. Þar hefur vaxið upp "Þekkingarþorp" um flugtækni, flugvísindi, fluglist, flugsögu, flugöryggi, flugveður, flugleiðsögu og flugmenningu. Pólitískur loddaraskapur, rangfærslur og skilningsleysi ógna nú tilveru þess samfélags. Meirihluti þjóðarinnar hefur skilning á því að án flugs og eigin flugsamgangna væru litlar líkur til þess að örþjóðin Ísland hefði stöðu lands á heimskortinu - hún væri bara þorp eða hérað.
Þorkell Guðnason, 23.5.2008 kl. 14:24
Mosi sagnfræði er ágæt,en við verðum að lifa í núinu er það ekki???Kveðja Halli gamnli
Haraldur Haraldsson, 23.5.2008 kl. 14:25
Þökk fyrir Þorkell, þetta er ábyggilega rétt en sennilega eru lítil ummerki ef nokkur um þennan fyrsta flugvöll. Mig minnir að ´fróður maður hafi haft eftir sér að nánast ekkert er til sem tengist flugsögunni fyrir hernámið.
Með núið Halli þá eru mörg sjónarhornin og Nú eru ýmsir samgöngumöguleikar sem við nýtum okkur ekki. Við erum að burðast með samgöngutækni sem að nokkru er úrelt en tíðkast mikið í bílaborgum vestanhafs. Veistu hvað eitt stykki bílastæði kostar? Mér skilst að það sé ekki minna en 5 milljónir!!
Kveðja
Mosi
Guðjón Sigþór Jensson, 23.5.2008 kl. 14:54
"Það á ekki að láta góða sögu gjalda sannleikans" En þeir sem taldir eru málsmetandi fyrir sakir menntunar eða þjóðfélagsstöðu þurfa að fara rétt með staðreyndir. Í moldviðrinu sem þyrlað hefur verið upp um Rvk.flugvöll og Vatnsmýrina hefur lítil virðing verið borin fyrir slíkum smáatriðum.
Ég lýk athugasemdum mínum með eftirfarandi: Þessi fyrsti flugvöllur er þarna ennþá og hefur vaxið og þroskast. Sökklar flugskýlisins sem hollenska flugsveitin byggði og undirstöður annarra bygginga frá þessum tímum eru innan flugvallargirðingarinnar rétt norðan Fluggarða og nokkra tugi metra frá Flugstuðlinum. Timbrið sem var í brúnum yfir skurðina er í fjóshurð á Grettisgötunni. Hafa skal það sem sannara reynist, þótt sumir kjósi "það sem betur hjómar" Mikið er til af "fróðum" mönnum um flug og margt hafa þeir bullað sem verður að "staðreyndum" bara af því að þeir sögðu það !
Þorkell Guðnason, 23.5.2008 kl. 15:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.