Brandarastjórnun

Þegar eitt ár er að baki þá eru ýmsir brestir farnir að koma í ljós. Hveitibrauðsdagarnir að baki. Þessi ríkisstjórn er margklofin bæði langsum og þversum. Svo virðist sem annar armurinn grípi til einhvers sem hinn armurinn vill ekkert kannast við. Á dögunum kom þetta berlega í ljós varðandi mismunandi afstöðu til hvalveiða: Sjálfstæðisflokkurinn telur sjálfsagt að veiða hvali meðan Samfylkingin sýnir varkárni. Og orkumálin og afstaða til frekari stóriðju virðist vera allt á krossgötum og óvissu enda er orkuverð hækkandi og kannski er búið að virkja nóg að svo stöddu.

Timburmennin eftir stærsta virkjanabrjálæðið stendur núna yfir. Það er ekki auðvelt að koma lagi á efnahagsmálin, launþegahreyfingin er til taks ef þessi mikilverðu mál fara í handaskol og ekki tekst að hemja dýrtíðardrauginn sem nú ríður húsum.

Á dögunum var mikið hlegið í þingsölum. Geir Haarde reitir af sér brandara þegar hann er í erfiðri stöðu. Það gerði Davíð líka, - og alltaf er gott að hafa trúð nærri til að bjarga sér frá erfiðum málum  og skemmta þingi og þjóð eins og þegar fyrrum sakamaður frá Suðurlandi gerði stormandi lukku í ræðupúlti þingsins í vikunni.

Kannski má nefna þennan stjórnunarstíl brandarastjórnun.

Mosi


mbl.is Ríkisstjórnin ársgömul
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

"Þeir hafa trúðinn en það vantar trúbador" - söng Bubbi Morthens hér um árið.  Það má svo sannarlega segja að þessi texti eigi við ríkisstjórnina.  Geir er í hlutverki trúðsins, en Ingibjörg sem á að vera í hlutverki trúbadorsins, vill ekki spila með.

Ég er einn af þeim sem get ekki fyrirgefið Geir fyrir að hafa látið Þorgerði Katrínu plata sig til að taka saman við Sollu og hennar lið.  Við þetta fór sjálfstæðisflokkurinn mikið til vinstri, auk þess að Solla og hennar lið treður Sjálfstæðiflokknum um tær þannig að raunar eru tvær ríkisstjórnir í landinu, ein sem Solla stýrir og vill fara í ESB og fer sínu fram án þess að spyrja samstarfsflokkinn, og svo stjórn Sjálfstæðisflokks sem veit ekki hvort hún á að stíga í vinstri- eða hægri fótinn. 

Hallgrímur Þór Kristmundsson (IP-tala skráð) 23.5.2008 kl. 13:17

2 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Þessi Ríkisstjórn er ekki al vond,en slæm að marki!!!/en næsta ár vonandi betra/Halli gamli!!!!

Haraldur Haraldsson, 23.5.2008 kl. 14:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband