Verkfallið 1955

Verkfallið sem hófst um mið'jan mars og stóð nánast út apríl 1955 voru einhver hörðustu verkfallsátök Íslandssögunnar. Því miður er þess ekki getið í yfirlitinu.

Í þessu verkfalli drógust ótrúlegustu aðilar inn í deiluna t.d. skólastrákar í MR sem voru að koma úr skíðaferð. Einn friðsamasti kennarinn þar Einar Magnússon guðfræðingur að mennt átti að hafa hvatt nemendur sínar að sögn Þjóðviljans að berja verkamenn á verkfallsvakt með skíðunum. Þá voru ýmsar kostulegar sögur úr þessu verkfalli en þá þrutu birgðir af bensíni í Reykjavík mjög skjótt og var margsinnis reynt að smygla því í bæinn. Ógrynni sagna er til af þessu verkfalli og væri rétt að Morgunblaðið taki saman fróðleik um það.

Af svona átökum sem áttu sér stað í gærmorgun er sitthvað sem þarf að læra af. Líklegt er að lögreglan hafi gert afdrifarík mistök með því að beita þessum piparúða sem á að sjálfsögðu aðeins að nota í sjálfsvörn. Hyggilegra og betra hefði verið að kalla til slökkvibíl með góðri dælu til að kæla niður aðeins reiðina í mönnum. Svona bílar eru víðast hvar notaðir til að bæla niður alvarlegar óeirðir yfirleitt með mjög góðum árangri en sýna þarf mikla varkárni enda getur buna úr háþrýstidælu verið lífshættuleg. Piparúðalögreglumennirnir voru auk þess settir í óþarfa hættu þegar þeir ganga fram fyrir skjöldu æpandi eins og ljón með piparúðann á lofti.

Uppákoma nemenda úr framhaldsskóla nokkrum úppáklæddum í einhverjar gamlar hermannadruslur frá þriðja ríkinu var þeim til mikils vansa. Og eggjakast á ekki að vera sæmandi heilbrigðu og skynsömu fólki.

Mosi 

 


mbl.is Óeirðir ekki einsdæmi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Hreiðar

Sammála þér, Mosi, að saga verkfallsins 1955 og framganga stríðsaðila í því verkfalli þyrfti að skrást -- er það ekki kjörið verkefni fyrir sagnfræðing? Ég gæti sagt þeim skrásetjara t.d. söguna af því er 17 ára piltur í Mosfellssveit hélt áleiðis til Reykjavíkur með áætlunarbílnum og hafði meðferðis brodd í brúsa til að gefa vinafólki í Reykjavík, en eins og allir (ættu að) vita er broddur það fyrsta sem kemur úr júgrum kúnna eftir kálfsburð og er óseljanleg vara með öllu. Engu að síður var brúsinn rifinn af piltinum þrátt fyrir útskýringar og broddinum hellt niður þar sem áætlunarbíllinn var stöðvaður í fyrirsát verkfallsvarða á móts við Smálöndin. Þar stóð sig frækilega í niðurhellingunni maður sem alla ævi var baráttumaður verkfalla og -- líklega réttilega -- kenndur við ákveðið form af klaka. -- Sá er þarna var 17 ára piltur þóttist margsinnis órétti beittur og verða ómaklega fyrir barðinu á þeim sem þóttust vera að gæta einhvers réttar í krafti verkfalla (sem eru ákveðið form orrustu) og hefur alla ævi haft takmarkaða samúð með ofbeldi í samskiptum fólks -- kannski þess vegna?

Sigurður Hreiðar, 25.4.2008 kl. 10:27

2 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Þetta hefur ábyggilega verið slæm minning unglings sem hefur sjálfsagt dregið dilk á eftir sér. Hvers vegna þarf verkfallsátök að bitna á saklausum börnum og unglingum þegar einhverjar deilur eru með fullorðnum? Að fara með dálítinn brodd í brúsa til að gefa ættingjum eða vinafólki er okkur í dag óskiljanlegt að hafi verið tekið.

Í þessu verkfalli voru margar sögur sagðar og sjálfsagt hver að verða síðastur að fá vitneskju í viðtölum við þá sem þátt tóku. Ein af betri sögunum er sögð af Katrínu Thoroddsen sem var þekktur barnalæknir. Hún ók mikilli drossíu og var stoppuð af verkfallsmönnum. Hún sagði til sín en hún sat á þingi 1945-49 fyrir sósílista og lét til sín taka á þeim vettvangi. Sagan segir að hún hafi tekið upp veskið, rétti verkfallsvörðum 500 króna seðil og kvaðst vilja leggja í verkfallssjóðinn! Þetta var töluvert fé á þessum tíma, sennilega numið nálægt vikulaunum verkamanna um þetta leyti ef ekki meira. Verkfallsmönnum féllust hendur og barnalæknirinn gat haldið áleiðis áfram í sínar vitranir.

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 25.4.2008 kl. 11:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 242985

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband