Erfið pólitísk ákvörðun

Í lýðræðissamfélagi skiptist fólk á mismunandi viðhorfum og skoðunum. Það er því mjög eðlilegt að fólk hafi mismunandi sjónarmið gagnvart ýmsum viðfangsefnum enda geta fletirnir og sjónarhornin verið æríð mörg. Hlutverk stjórnmálamanna er að taka skynsama og umfram allt heiðarlega ákvörðun sem hugnast meirihlutanum en ekki er alltaf sem slík ákvörðun falli í frjóan jarðveg hjá hinum. Umdeildar og skjótar ákvarðanir leiða yfirleitt alltaf til deilna sem geta dregið langan dilk á eftir sér.

Því er mjög mikilvægt að ákvörðun byggist á góðum og gildum rökum.

Annars er um þessi mál að segja, að við Íslendingar stöndum mjög framarlega í heiminum varðandi beislun jarðhitans og friðsamlegri nýtingu hans. Allir sem gjörla þekkja á þessu sviði gera sér ljóst að við erum með gríðarleg verðmæti í höndunum sem byggist á þeirri reynslu og þekkingu sem við höfum aflað okkur á þessu fyrirbrigði. Eitt af því sem við höfum fram yfir aðrar þjóðir er, að hérlendis hefur verið starfræktur í áratugi Jarðhitaskóli Sameinuðu þjóðanna og rekinn er í húsakynnum Orkustofnunar. Ungum og efnilegum jarðfræðistúdentum úr öllum heiminum er beint hingað til að fræðast af einum færustu jarðfræðisérfræðingum ekki aðeins okkar Íslendinga heldur er talað um jafnvel í heiminum öllum. Það er því hvorki undur né stórmerki að miklar væntingar séu gerðar til okkar sérfræði um jarðhitann. Íslendingar eru auk þess fyrir löngu þekktir fyrir að vera bæði þolgóðir og úrræðagóðir þegar e-ð óvænt bjátar á og flestir vilja undir slíkum kringumstæðum leggja árar í bát.

Við skulum því vona að þeir stjórnmálamenn sem málið varðar, ígrundi vel allar staðreyndir málsins og taki góða og skynsamlega ákvörðun sem stuðli að auknum og betri hag okkar án þess að miklum hagsmunum sé fórnað. Það er ætíð sárt þegar ávinningur nánast „gufar upp“ og verður ekki þeim til góða sem upphaflega höfðu kostnað af.

Mosi 


mbl.is Tillaga um sölu á REI?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband