Sjúklegar hvatir

Að afla sér og sínum nægt fé til brýnustu nauðsynja og kannski örlítið meira, hefur lengi þótt sjálfsagt mál. Nú er allt í einu komnir fram peningakarlar sem með hugkvæmni hafa komist yfir þvílíkan gróða, að heilu þjóðirnar virðast ekki bera nema brot af því sem þessir braskarar virðast komast yfir á einni nóttu. Draumur athafnamannsins?

Þetta kann að vera löglegt en með öllu siðlaust. Þegar braskarar sem gríðarlegan auð á bak við sig taka sig saman til að grafa undan fjárhag heilu ríkjanna, þá er komið nóg. Þessir herramenn eru að leika nákvæmlega sama leikinn og þegar stjórnendur olíufélaganna taka sér fyrir hendur að hafa samráð um verð á bensíni og olíu.

Fyrir um 100 árum voru sett lög af Theodór Roosevelt um bann við hringamyndanir í bandarísku efnahagslífi. Þessi lög áttu mikinn þátt í að efla samkeppni og koma í veg fyrir samanþjöppun valds á vegum fyrirtækjasamsteypa.

Nú er það mjög mikilsvert að kapítölsk ríki setji sér hliðstæð alþjóðleg lög um starfsemi stórtækra braskara sem komið gæti í veg fyrir að þeir hafi ekki lengur frjálsar hendur að ógna viðskiptaheiminum. Oft er þörf en nú er nauðsyn að koma lögum yfir þá sem hrfisa til sín margfalt meira en þeir þurfa að nota.

Sparnaður er dyggð en þegar svona kemur upp, þá er það græðgin sem veldur vandræðum heilu þjóðanna, stórra sem smárra.

Mosi

 

 


mbl.is Hæstu tekjur sem nokkru sinni hafa sést
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Halda mætti að þú værir staddur einhvers staðar í afdölum.

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 17.4.2008 kl. 10:24

2 Smámynd: Sveinn Ríkarður Jóelsson

Ég er eiginlega sammála þessu hjá þér. Enda einn af þeim sem hefur alltaf horft á peninga sem væntanleg verðmæti en ekki raunveruleg, ávísun á framkvæmda vinnu. Því hef ég alltaf sett spurningamerki við það að græða á því að eiga peninga og lítið annað. það kann að vera réttmætt í mörgum tilfellum en ég get ekki að því gert að finnast þeir ekki vera þessara væntanlegu verðmæta virði. Orkan sem fór í öflum þessara tekna var tekin frá öðru fólki sem vann við verðmætasköpun, án þess að skapa verðmæti í sjálfu sér, einungis færslur á blaði.

Ég er ekki sérfræðingur í fjármálamörkuðum en svona lítur þetta út á yfirborðinu fyrir mér. Þarna er handfylli (miðað við fjölda fólks í lægri stéttum) af fólki í matador leik að spila með strit annarra án þess að taka háættu sjálfir í raun. Þeir eru þegar búnir að græða svo mikinn pening að það er hægðarleikur að leggja fyrir næga peninga til þess að hafa það eins gott og það verðu það sem eftir er af ævi þeirra. Restina nota þeir svo til þess að græða meira, svo voga menn sér að kalla það áhættu.

Sveinn Ríkarður Jóelsson, 17.4.2008 kl. 11:03

3 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Góð f grein og mikið er maður sammála henni/Kveðja Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 17.4.2008 kl. 17:59

4 identicon

Þeir sem setja lög, stjórna þessu.  Það yrði ekkert mál að hemja svona sjóði sem gera út á að sparka í liggjandi efnahag, það er bara spurningin þetta með viljan. 

En í grunninn er þetta fólk eitthvað hamingjusamara en meðaljónin sem hefur nóg að bíta og brenna ?

Þessir menn drepast eins og við hin á endanum líka og ég efast um að síðasta hugsun þeirra þegar þeir hverfa niður í svartnættið sé sex stafa milljarða tala.   Peningar eru ekki allt.

Það er nefnilega fullt af öðru sem skiptir máli í lífinu.

Varðandi áhættu sem Sveinn minnits á þá brennur fjármálaheimurinn í skinninu til þess að komast lengra yfir eignir lífeyrissjóða en hann hann hefur gert. Líklega kólnar áhuginn ekki fyrr enn lífeyrissjóðirnir verða settir í þrot. 

Magnus Jonsson (IP-tala skráð) 19.4.2008 kl. 10:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 243041

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband