Frábært framtak

Óhætt má segja að meðal ungs fólks sé töluverð ábyrgðartilfinning fyrir meðferð á opinberum fjármunum. Unga fólkið sér bruðlið allt í kring og það er frábært að það skuli til sín taka og koma vitinu fyrir okkur eldri!

Haldið endilega áfram að benda ráðamönnum þjóðarinnar á hvernig við getum sparað stórfé til að við getum nýtt skattféð betur en nú er!

Mosi


mbl.is Sendu ráðherrum leiðbeiningar með hraðpósti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já, einmitt.  Af því að það er sko ekkert BRUÐL að senda ruslpóst með hraðpósti til Rúmeníu.  Að vísu er fimmþúsundkall minna en hundraðogfimmtíuþúsundkall, en það er sama.  BRUÐL ER BRUÐL!!!  Þetta skot missti algjörlega marks í mínum augum.  Og ég styð þann sem orðaði þetta best í Ísland í dag í gærkvöldi: "Eins mikið og ég er fyrir strætó og reyni að nota hann eins og ég get, að ef ég þarf að komast á ákveðinn stað á ákveðnum tíma og VEIT að ég næ því ekki með strætó þá tek ég TAXA!!"

Það er neyðarástand í landinu gott fólk, það þarf að bjarga krónunni áður en það verður um seinan.  Okkar æðstu stjórnendur eiga að sjálfsögðu að sitja þann fund, það er ekkert hægt að slóra með svoleiðis.  Og haldiði að NATO myndi hinkra eftir Íslendingunum ef þeim seinkar?  Neibb og nei.  Og síðast þegar ég vissi var ekki búið að finna upp NEINA aðferð sem gerir mönnum kleyft að vera á tveimur stöðum á sama tíma.  

Ég segi bara áfram Inga og Geiri, gott hjá ykkur.  Svona á að gera þetta!!  Þetta heitir að GERA HLUTINA og vera ekki að drolla við þá eða hreinlega koksa á þeim. 

Fluga (IP-tala skráð) 3.4.2008 kl. 15:35

2 Smámynd: Daníel Haukur

NATO hefði ekkert þurft að hinkra því við hefðum átt að segja okkur úr þessu stríðsbandalagi fyrir löngu, þá hefði ekkert vesen orðið;)

Það er líka munur að "bruðla" peningunum sínum eins og Vinstri græn gerðu og að bruðla peningum þjóðarinnar eins og ráðherrarnir okkar gerðu.

En þú bentir á eitt gott og það er að Geir og Ingibjörg eru loksins byrjuð að gera hlutina, það er kominn tími til, þessi ríkisstjórn hefur ekkert gert nema rætt hlutina og skipulaggt, ekkert hefur verið gert ennþá sem var lofað í Maí í fyrra:S

Daníel Haukur, 3.4.2008 kl. 21:09

3 identicon

Ótrúlega margir sem virðast verja þennan einkaþotubissness.  Við erum algerir þrælar, baulandi um hvað þau eru mikilvæg og þeirra tími mikilvægur meðan við þegjum um það hrópandi óréttlæti að húsnæðisskuldir eru sjálfvirkt að hækka vegna verðtryggingar eða gengistryggingar meðan húsnæðisverð stendur í stað eða lækkar... og skattþörf ríkisins eykst meðan engir hemlar eru á stjórnvöldum.

Gullvagninn (IP-tala skráð) 4.4.2008 kl. 08:23

4 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Daníel: útskýrðu betur fullyrðingu þína um hvað VG bruðluðu með?

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 4.4.2008 kl. 10:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 46
  • Frá upphafi: 242981

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband