Farfuglaheimili

Skiljanlegt er að ungur ferðalangur vilji ógjarnan eyða háum fjárhæðum í gistingu. Því miður erum við Íslendingar oft eftirbátar annarra þjóða að bregðast við vandanum. Þó eru dæmi um það gagnstæða eins og þegar Íslendingar buðust til að skipuleggja fund Gorbasjovs og Reagan hérna um árið og höfðu til þess einungis 2 vikur!

Sjálfur hefi eg lent í áþekku erlendis þegar lent var í Frankfurt milli 5 og 6 að morgni og við biðum í flugstöðinni eftir flugi áfram til Íslands með Flugleiðum. Þannig þurftum við að reyna að sofa í sætunum smáblund í einu og skiptast á.

Auðvitað á farfuglaheimili fyllsta rétt á sér á næstu grösum við Leifsstöð. Það væri auðveldara að vísa fólki þangað, blönkum námsmönnum, skátum og efnaminni ferðamönnum sem vilja ekki kaupa sér rándýra gistingu en við megum ALDREI gleyma því að Ísland er eitt dýrasta ferðaland Evrópu og það eru ekki allir jafn auðugir og gróðamenn á Íslandi sem geta leyft sér hvað sem er.

Þegar Mosi var í sveit á Suðurlandi fyrir meira en 40 árum þá fussaði og sveiaði sveitafólkið yfir „bakpokalýðnum“. Þá var ungt fólk frá Norðurlöndunum, Bretlandi, Þýskalandi og fleri löndum byrjað að koma hingað til lands og ferðaðist í skólafríum sínum. Sjálfum fannst mér þetta fólk vera mjög hugað og dáðist að því en lét hrifningu mína ekki í ljós enda ekki gott að segja hvernig slík viðhorf féllu fólkinu á bænum í geð.

Neikvætt umtal er aldrei af því góða fremur en skrif Blefkens á sínum tíma sem einkenndist af fáfræði og jafnvel illkvittni. Við Íslendingar eigum að reka af okkur slyðruorðið og koma í kring þeirri þjónustu sem efnaminni ferðamenn vilja sætta sig gjarnan við. Nú ætti það að vera verðugt verkefni nýs ferðamálastjóra að taka á þessu máli og hvetja Suðurnesjamenn og aðra landsmenn til dáða. Einnig þyrfti að svara gagnrýninni í Der Spiegel en ekki með þeim hroka og fyrirlitningu sem því miður allt of margir grípa til.

Skátar og skólafólk sem koma hingað á að vera jafnvelkomið og aðrir ferðamenn!

Margt af þessum  fyrrum „bakpokalýð“ kemur jafnvel enn til Íslands og vill gjarnan koma svo lengi sem heilsan og efnahagurinn leyfir. Það á sér góðar minningar um fagurt landslag en kannski ekki eins góðar af viðskotsillum Íslendingum sem hafa aðeins skammgróðatækifæri í huga.

Mosi


mbl.is Þýskur skáti ekki sáttur við Leifsstöð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Forsvarsmenn Leifstöðvar gætu allavegana haft upplýsingar um þetta bann á heimasíðunni. Það kostar ekkert að setja þær upplýsingar þar. Það er ekki létt fyrir útlendinga að vita hvernig "kerfið" virkar hjá þeim, ef enginn upplýsir fólkið um þetta.

gunnar (IP-tala skráð) 10.1.2008 kl. 13:13

2 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Allar upplýsingar um boð og bönn geta svo sem verið ágætar en ætli slíkar heimasíður þættu nú ekki fremur þunnur Þrettándi?

Væri ekki vænlegra að bjóða upp á þjónustu t.d. farfuglaheimilis á næstu grösum við flugstöðina?

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 10.1.2008 kl. 16:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband