Agalaust bruðl

Ljóst er að þessi dægurlagakeppnishátíð er komin út í slæma bilindgötu. Nú verða dönsk stjórnvöld að taka á þessu enda ekki unnt að sækja fjármuni til gömlu nýlendunnar lengur eins og fyrrum.

En er þetta ekki eins og efsti hluti ísjakans í opinberu bruðli?

Við Íslendingar getum litið í eiginn barm og líta má á utanríkisþjónustuna. Hvar í veröldinni skulu vera sendiráð fyrir hverjar 10.000 íbúa? Við erum ekki nema þriðjungur úr milljón en samt erum við að reka utanríkisráðuneyti með um 30 sendiráð. Og nýjasta nýtt er að ráða einn helsta fjármálaskussa landsins sem sendiherra!

Geir Haarde er sagður hafa háa menntagráðu úr virtum bandarískum háskóla í hagfræði! (Skrá yfir þingmenn Alþingis: http://www.althingi.is/altext/cv/is/?nfaerslunr=162). Þessi maður var æðsti embættismaður íslenskrar stjórnsýslu en gerði akkúrat ekkert til að forða landi og landsmönnum frá bankahruninu þó svo að æðstu valdamenn Sjálfstæðisflokksins vissu allt frá febrúar 2008 að ekki væri unnt að bjarga bönkunum!

Í augum margra er þessi nýjasta ákvörðun ríkisstjórnarinnar ein sú furðulegasta að ekki sé dýpra tekið í árina. Og þessir valdamenn verða að viðundri í veröldinni þegar í ljós kemur hvaða hrikaleg afglöp þessi maður á að baki.

Á Íslandi er skussinn hafinn upp til skýjanna! 


mbl.is Eurovision rekin með miklu tapi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Persónu gera allt?

Skil ekki hvernig umfram keyrsla Eurovision i Danmörku hefur svo mikið sem eitthvað að gera með Geir Haarde. Getur þú útskýrt mál þitt eitthvað frekar? Skelfing er vel skiljanlegt að fáir lesi þetta blessaða moggablogg lengur.

Halldór Egill Guðnason, 4.8.2014 kl. 19:41

2 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Hvað hefur síðu höfundur lagt til málanna annað en kvart og hrein undanfarin ar. ÞAÐ ER AUÐVELT AÐ RÖFLA ÚTI I HORNI. "Those who play the game with the brawery of being out of range" allan tímann, verða aldrei teknir alvarlega.

Halldór Egill Guðnason, 4.8.2014 kl. 19:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 7
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 242915

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband