Erfitt ræktunarstarf þar sem sauðfé er

Að setja sig niður þar sem ekki verður þverfótað fyrir sauðfé, ber annað hvort vitni um einstæða þrjósku eins og talið er að sauðir séu haldnir, eða einstæða bjartsýni að unnt sé að breyta eðli sauðkindarinnar. Þar sem nálægð sauðkinda er, verður erfitt með allt ræktunarstarf nema með mjög öflugum girðingum.

Mér finnst kaup Sigmundar á þessari jörð byggjast á mikillri bjartsýni enda er hann með bröttustu mönnum norðan Alpafjalla. Enginn stjórnmálamaður hefur komist upp með önnur eins kosningaloforð en hann í gjörvallri Evrópu nema vera skyldi Silvíó Berlúskóní. Þessir tveir eiga margt sameiginlegt, geta í skjóli auðs síns gert nánast hvað sem þá lystir. En því miður vara þriðjungur þjóðarinnar sem mætti á kjörstað 27.4. s.l. sig ekki á þessum lævísa og slóttuga manni. Hann hefur lært mikið af gamla stjórnmálarefnum á Bessastöðum.

Í hagræðingarskyni skráir hann lögheimili sitt fjarri höfuðborgarsvæðinu, rétt eins og forsetafrúin núna nýverið.

Sigmundi má kannski líkja við sauðkindina sem ekki er öll þar sem hún er séð.


mbl.is Sauðfé við heimili forsætisráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

Það kemur reyndar fram í fréttinni að Sigmundur á ekki þetta hús og reyndar leigir hann það ekki heldur.Hann fær einungis að nota það sem lögheimili til að geta boðið sig fram í þessu kjördæmi.

Jósef Smári Ásmundsson, 15.6.2013 kl. 20:27

2 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Áttu við að Sigmundur sé þá eins og hver annar húskarl hjá bóndanum þar eystra?

Mér finnst allt þetta mál vera hið einkennilegasta. Sjálfsagt hangir á spýtunni að greiða sem lægstu skattana. Öðru vísi var það hjá fyrirmynd flestra braskara á Íslandi. Einar Benediktsson kærði útsvar sitt til hækkunar! Þótti honum móðgandi að greiða vinnukonuútsvar.

Guðjón Sigþór Jensson, 15.6.2013 kl. 23:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 46
  • Frá upphafi: 242983

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband