3.6.2013 | 18:46
Byggðaþróunin
20. öldin er öld fólksflutninga og mikillra þjóðfélagsbreytinga á Íslandi. Landsframleiðslan eykst 50 falt frá upphafi aldarinnar til loka hennar. Á sama tíma fjölgar þjóðinni úr því að vera 100.000 í það að verða 300.000. Svonefndur hagvöxtur verður það mikill að Íslendingar framleiða 50 sinnum meiri verðmæti í lok aldarinnar miðað við upphaf hennar.
Um 1900 er Ísland eitt frumstæðasta land Evrópu, við vorum jafnvel skemmra á veg komin en Albanía, undir lok aldarinnar eitt það auðugasta. En þrátt fyrir mikla auðlegð hefur jöfnuður ekki aukist. Því miður.
Hátekjumenn hafa skarað vel að sinni köku. Þeir halda uppi tveim stjórnmálaflokkum sem báðir vilja halda uppi velferð hátekjumanna. Á vinstri hlið samfélagsins eru núna Samfylking og Vinstri grænir sem vilja aukinn jöfnuð og meiri samneyslu.
Hægri menn hafa viljað byggja upp stóriðju sem nú gleypir um 80% af allri raforkuframleiðslu landsins. Og þeir telja að ekkert bæti betur atvinnulíf en fleiri álbræðslur á völdum stöðum. Aðrir vilja byggja upp fjölbreytt atvinnulíf þar sem unnt er að efla ferðaþjónustu og smærri fyrirtæki.
Byggðastofnun var komið á fót á vegum Framsóknarflokksins fyrir um 40 árum. Á þeim bæ er unnið að mörgu leyti merkilegt starf en því miður virðist vera einblýnt um of á fremur stórkarlalegar lausnir eins og stærri fyrirtæki. Þannig er unnið að styrkja þær byggðir atvinnulega séð þar sem aðstæður eru taldar heppilegar.
Mér hefur alltaf fundist einkennilegt að ekki hafi skógrækt verið talin vera atvinnuskapandi hjá Byggðastofnun. að er nú svo að unnt er að koma á fót margfalt fleiri störfum tengdri skógrækt en stóriðju. Þegar Kárahnjúkavirkjun og álbræðslan við Reyðarfjörð voru byggð, er talið að hvert starf kostaði um 430 milljónir! Það væri unnt að byggja upp tugi ef ekki hundruði starfa í landinu gegnum skógrækt. Trén vaxa jafnt og þétt og þurfa hvorki kílóvattstundir né fórnir á náttúruperlum eins og fossum og eyðileggingu fagurra fjalladala eins og gerðist ofan Kárahnjúka. Sú virkjun er ein sú groddalegasta sem þekkt er í heiminum og verður að teljast með umdeildari ákvörðunum íslenskra stjórnmálamanna.
Að mörgu leyti var þjóðhagslega hagkvæmt að Byggðastofnun hafði ekki verið komið á fót fyrr. Það hefði t.d. verið kostulegt að sjá álver á Hornströndum til að bjarga mannvistarbyggð þar. Þjóðhagslega hagkvæmara var að íbúarnir hurfu frá þessum örlitlu sveitarbæjum þar sem tún voru það smá að þau væru varla véltæk, hvað þá meir.
Sjálfsagt heldur byggðaþróunin áfram, þær byggðir sem teljast óhagkvæmar verða fámennari og leggjast jafnvel í eyði. En landnýtingin breytist rétt eins og á Hornströndum sem nú þykja vera eftirsóknar vegna friðsamlegrar útivistar og ferðamennsku.
Fundað með brothættum byggðum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:48 | Facebook
Um bloggið
Siðvæðing í stjórnmálum
Nýjustu færslur
- 24.11.2014 Hvar er jafnréttið?
- 7.11.2014 Er réttarríki á Íslandi?
- 27.10.2014 Byssumálið: krefjumst opinberrar rannsóknar
- 8.10.2014 Sekur eða saklaus?
- 8.9.2014 Jón og séra Jón
Færsluflokkar
Bloggvinir
- Aðalsteinn Sigurgeirsson
- Alfreð Símonarson
- Andrea J. Ólafsdóttir
- Andrés Kristjánsson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Anna Benkovic Mikaelsdóttir
- Arnar Pálsson
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Ágúst H Bjarnason
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Þór Sigurðsson
- Ásgeir Eiríksson
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Baldur Hermannsson
- Baldur Kristjánsson
- Baldvin Jónsson
- Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
- Berglind Steinsdóttir
- Birgir R.
- Bjarki Steingrímsson
- Bjarni Harðarson
- Bjarni Kristjánsson
- Björgvin Björgvinsson
- Björgvin Guðmundsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- busblog.is
- Bwahahaha...
- Dagný
- Einar Ólafsson
- Gammur drils
- Guðfríður Lilja
- Guðjón Baldursson
- Guðjón Petersen
- Guðmundur Steingrímsson
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Halldór Sigurðsson
- Hallvarður Ásgeirsson
- Haraldur Haraldsson
- Heidi Strand
- Helga Auðunsdóttir
- Helgi Þór Gunnarsson
- Herdís Þorvaldsdóttir
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjörleifur Guttormsson
- Hlynur Hallsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hvíti Riddarinn
- Högni Snær Hauksson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
- Jakob Falur Kristinsson
- Jens Guð
- Jón Bjarnason
- Jón Halldór Guðmundsson
- Jón Ingi Cæsarsson
- Kaffistofuumræðan
- Karl Tómasson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Kristbjörg Erla Hreinsdóttir
- Kristbjörn Árnason
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Lára Stefánsdóttir
- Loftslag.is
- Lúðvík Júlíusson
- María Anna P Kristjánsdóttir
- María Kristjánsdóttir
- Máni Ragnar Svansson
- Morgunblaðið
- Ólafur Ingólfsson
- Ólafur Þór Gunnarsson
- Ólafur Örn Jónsson
- Ómar Bjarki Smárason
- Ómar Ragnarsson
- Ósk Vilhjálmsdóttir
- Perla
- Pjetur Hafstein Lárusson
- Rúna Guðfinnsdóttir
- Sigurður Hreiðar
- Sigurður Ingólfsson
- Sigurjón Þórðarson
- Steingrímur Helgason
- Svanur Jóhannesson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Theo
- Torfusamtökin
- Trausti Jónsson
- Umhverfis- og náttúrufræðifélag Mosfellsbæjar
- Úrsúla Jünemann
- Valdís Jóhanna Guðbjartsdóttir
- Vefritid
- Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock)
- Þorsteinn Briem
- Þorsteinn Erlingsson yngri
- Þorsteinn Siglaugsson
- Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
- Ævar Rafn Kjartansson
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þetta snýst ekki um hvað hvert starf kostar heldur hvaða aukning verður í verðmætasköpun við hvert starf
Júlíus Guðni Antonsson, 3.6.2013 kl. 23:58
Nú má vænta töluverðra breytinga í stórðiðju og þar með áliðnaði. Mjög líkleg þróun er að Kínverjar yfirtaki verksmiðjur og við höfum fengið snefilinn af því en nú er Járnblendiverksmiðjan á Grundartanga.
Vel getur farið svo, að Kínverjar muni vilja hagræða í sínum rekstri með því að flytja ódýrara vinnuafl. Þetta gerðist t.d. við byggingu Kárahnjúkavirkjunar. Það er meira líklegt en ólíklegt að svo fari. Kínverjar eru vel vakandi yfir því sem er að gerast hér á landi. Þeir eru með langfjölmennasta sendiráðið og þar sem áður var einbýlishús Ólafs Thors og síðar aðsetur Vinnurekendasambandsins, er núna aðsetur kínverska viðskiptafulltrúans.
Greinilegt er að þeir fylgjast gjörla með hverju tækifæri sem gefst hér á landi að efla og bæta hagsmuni sína.
Guðjón Sigþór Jensson, 4.6.2013 kl. 11:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.