Friðaruppeldið er svo mikilvægt

Við erum örfárra þjóða heims sem berum þá lukku að hér hefur aldrei verið innlendur her, nema ef utan er skilinn deild frá Hjálpræðishernum. Vopnaskak er okkur eins fjarlægt eins og unnt er að hugsa sér enda þjóðin verið nánast vopnlaus lengi vel. Með stríðsárunum varð breyting á, ofbeldisdýrkun og vopnaburður þykir allt í einu vera fínt einkum meðal þeirra sem vilja sýna af sér einhver mannalæti.

Við höfum síðan á Sturlungaöld lært að ofbeldi leiðir af sér enn meira ofbeldi, ribbaldahátt eins og þessi hryllilega borgarastyrjöld meðal höfðingja landsins einkenndist af. Friðaruppeldið má væntanlega rekja til klausturslifnaðar þar sem munkarnir og nunnurnar framleiddu heimsbókmenntir í formi Íslendingasagna. Eg hefi alltaf haft það á tilfinningunni að bækur eins og Brennu-Njáls saga sé n.k. áróðursrit fyrir friðaruppeldi og kristilegu líferni.  Þar er sýnt á hversu ofbeldið er fyrirlitlegt og jafnvel allt að því hlægilegt. Oft er vikið að blóðugum bardögum og kímnin brýst víða fram eins og í þessum kafla kemur fram. Berum niður í 158. kafla sögunnar:

„Þenna morgun gekk Kolur Þorsteinsson í borg og skyldi kaupa silfur. Hann hafði mest hæðiyrði við af brennumönnum. Kolur hafði talað margt við frú eina ríka og var mjög í gadda slegið að hann mundi fá hennar og setjast þar.

Þenna hinn sama morgun gekk Kári í borgina. Hann kom þar að er Kolur taldi silfrið. Kári kenndi hann og hljóp að honum með sverð brugðið og hjó á hálsinn en hann taldi silfrið og nefndi tíu höfuðið er það fauk af bolnum“.

Þetta er eitt einkenni Íslendingasagna hversu dauðinn er gerður allt að því broslegur. Kolur var svo hugfanginn að telja silfrið að hann hugar ekki að því að helsti óvinur hans er allt í einu kominn að hjálpa honum inn í eilífðina. Og höfuðið taldi tíunda silfrið. Átti hann kannski eftir að telja 20 til viðbótar?

Friðaruppeldið er eitt mikilvægasta hlutverk okkar sem störfum við uppeldisstörf og fræðslu. Því miður eru margir sem vilja draga okkur niður á eitthvað furðulegasta plan sögunnar t.d. að vera hvatamenn og stuðningsmenn að stríði eins og gerðist fyrir 10 árum. Það voru afglöp sem ekki verða fyrirgefin enda vissu þáverandi ráðamenn hvað þeir voru að gera.

Góðar friðarstundir!


mbl.is Fagna undirritun vopnaviðskiptasamnings
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Friður er hið besta mál. Enn þessi þjóð ætti þó að láta af þeim hroka að kalla sig "friðsama" því hér sé ekki her.. Flest ríki heims eru friðsöm og samt með her. Hvenær fór td Sviss eða Svíþjóð í stríð síðast? það er ekkert að því að sjálfstæðarþjóðir axli ábyrgð á sínum vörnum sjálfar og það gerir þær ekki árásargjarnar endilega.

Við erum hér með varnarsamning við USA. það er stæðsta árásar og hryðjuverkaland í heiminum! Er það okkur til sóma að tengjast þeirri þjóð svona böndum td??

ólafur (IP-tala skráð) 3.6.2013 kl. 17:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 243043

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband