Léttúð með hættulega hluti

Hver ber ábyrgð á að geyma sprengjuefni við íbúðahús?

Léttúðin er oft mikil.

Sú saga er sögð af bónda í uppsveitum Borgarfjarðar sem kom að þýsku flugvélarflaki í senni heimsstyrjöldinni en flugvélin brotlenti á Arnarvatnsheiði. Fann hann skínandi fallega kúlu sem hann hafði með sér og kom fyrir á skáp í stofunni heima hjá sér í bænum. Sýndi hann stoltur öllum þeim sem komu að heimsækja hann. Einn góðan veðurdag kemur einn gestur og þegar hann sá kúluna, hvessti hann grafalvarlegum augum á bónda og kvað hann heppinn að hafa ekki sprengt bæinn en þetta væri sprengikúla sem gæti sprungið við minnsta hnjask!

Næstu nótt læddist bóndi með kúluna og fór út á brúna skammt ofan við Kljáfoss í Hvítá og varpaði henni eins langt út í ána og hann gat. Mun kúlan vera þar enn ef sagan sé rétt eftir höfð. Hvort kúlan sé enn heil eða hafi sprungið, veit sennilega enginn.

En sjálfsagt er að sýna fyllstu varkárni með hættulega hluti og fara nákvæmlega eftir reglum.


mbl.is Sprengiefni geymt við íbúðarhús
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Augljóslega fá íslensk fyrirtæki að leika sér með dínamít án nokkurs bókhalds né eftirfylgni... Hvað í andsk. er í gangi hjá lögreglunni?  Er einhver hellingur af óskráðu eða týndu dýnamíti út um borg og byggð?

Jonsi (IP-tala skráð) 14.2.2013 kl. 13:17

2 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Fyrir nokkrum árum var brotist inn í öfluga sprengiefnageymslu í ALmannadal ofan við Rauðarvatn austan Reykjavíkur. Aldrei fékkst neitt upplýst um þetta mál og kannski er þarna dýnamítið komið fram?

Guðjón Sigþór Jensson, 14.2.2013 kl. 21:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 242967

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband