19.9.2012 | 12:44
Þegar reiðin stjórnar för
Stefnandi var lengi tengdur spillingunni í Framsóknarflokknum og komst yfir gott viðskiptatækifæri til að auðga sjálfan sig og sína. Töluvert var um þessi mál rætt á sínum tíma. Teitur bloggari fór að rifja þessi mál upp og kallaði reiði braskarans yfir sig. Nú mætti vitna í Jón byskup Vídalín: Reiðin er eitt aldeilis reiðarslag. Sá sem reiður er, er vitlaus. Reiðin kemur oft mönnum til að gera eitthvað, jafnvel bæta gráu ofan á svart og gera illt verra.
Auðvitað eru málaferli af þessu tagi kjörin tækifæri að rifja sitt hvað upp sem ekki má annars ræða.
Því miður hafa aldrei verið settar siðareglur yfir þingmenn og hvernig þeim beri að haga sér gagnvart samborgurum sínum.
Lengi lifi mannréttindin og tjáningarfrelsið á Íslandi!
Niðurstaðan kemur ekki á óvart | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Siðvæðing í stjórnmálum
Nýjustu færslur
- 24.11.2014 Hvar er jafnréttið?
- 7.11.2014 Er réttarríki á Íslandi?
- 27.10.2014 Byssumálið: krefjumst opinberrar rannsóknar
- 8.10.2014 Sekur eða saklaus?
- 8.9.2014 Jón og séra Jón
Færsluflokkar
Bloggvinir
- Aðalsteinn Sigurgeirsson
- Alfreð Símonarson
- Andrea J. Ólafsdóttir
- Andrés Kristjánsson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Anna Benkovic Mikaelsdóttir
- Arnar Pálsson
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Ágúst H Bjarnason
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Þór Sigurðsson
- Ásgeir Eiríksson
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Baldur Hermannsson
- Baldur Kristjánsson
- Baldvin Jónsson
- Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
- Berglind Steinsdóttir
- Birgir R.
- Bjarki Steingrímsson
- Bjarni Harðarson
- Bjarni Kristjánsson
- Björgvin Björgvinsson
- Björgvin Guðmundsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- busblog.is
- Bwahahaha...
- Dagný
- Einar Ólafsson
- Gammur drils
- Guðfríður Lilja
- Guðjón Baldursson
- Guðjón Petersen
- Guðmundur Steingrímsson
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Halldór Sigurðsson
- Hallvarður Ásgeirsson
- Haraldur Haraldsson
- Heidi Strand
- Helga Auðunsdóttir
- Helgi Þór Gunnarsson
- Herdís Þorvaldsdóttir
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjörleifur Guttormsson
- Hlynur Hallsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hvíti Riddarinn
- Högni Snær Hauksson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
- Jakob Falur Kristinsson
- Jens Guð
- Jón Bjarnason
- Jón Halldór Guðmundsson
- Jón Ingi Cæsarsson
- Kaffistofuumræðan
- Karl Tómasson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Kristbjörg Erla Hreinsdóttir
- Kristbjörn Árnason
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Lára Stefánsdóttir
- Loftslag.is
- Lúðvík Júlíusson
- María Anna P Kristjánsdóttir
- María Kristjánsdóttir
- Máni Ragnar Svansson
- Morgunblaðið
- Ólafur Ingólfsson
- Ólafur Þór Gunnarsson
- Ólafur Örn Jónsson
- Ómar Bjarki Smárason
- Ómar Ragnarsson
- Ósk Vilhjálmsdóttir
- Perla
- Pjetur Hafstein Lárusson
- Rúna Guðfinnsdóttir
- Sigurður Hreiðar
- Sigurður Ingólfsson
- Sigurjón Þórðarson
- Steingrímur Helgason
- Svanur Jóhannesson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Theo
- Torfusamtökin
- Trausti Jónsson
- Umhverfis- og náttúrufræðifélag Mosfellsbæjar
- Úrsúla Jünemann
- Valdís Jóhanna Guðbjartsdóttir
- Vefritid
- Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock)
- Þorsteinn Briem
- Þorsteinn Erlingsson yngri
- Þorsteinn Siglaugsson
- Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
- Ævar Rafn Kjartansson
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 243409
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Guðjón Sigurþór. Reiði sem er leyst með dómaravaldi, í staðinn fyrir leit að réttlætanlegu uppgjöri með málefnalegum samræðum, er ekki lausnarmiðuð friðar og réttlætisleið. Ég er samt ekkert að verja Sigmund Davíð, því ég þekki manninn ekki neitt.
Það sem enn liggur ó-útkljáð í loftinu, er að þessi herferð Teits skyldi ekki byrja fyrr en sonur Gunnlaugs varð formaður Framsóknarflokksins. Mér finnst Teitur hafa reynt að sækja vatnið yfir lækinn í þessu ofur-réttlætis-máli.
Er rétta leiðin að ráðast á foreldra þeirra, sem jafnvel er verið á skipulagðan hátt að sverta? Ef ástæðan fyrir þessari gífurlegu herför Teits gegn Gunnlaugi, átti að gera son hans tortryggilegan, þá finnst mér það hæpin réttlætiskennd hjá honum. Hann hefði þá bara átt að ráðast beint og milliliðalaust á strákinn, en ekki gallagripinn, karl föður hans.
Hver er t.d. faðir Teits Atlasonar, og hefur faðir hans ekki mannlega bresti, sem Teitur getur ekki gert neitt að? Mér finnst allt í lagi að pabbi Teits hafi mannlega bresti og galla, eins og allt annað fólk. Ég nefni þetta bara sem dæmi.
Ég stend samt með Teiti í að hafa málfrelsi til að segja sína skoðun á verkum Gunnlaugs. Ósvaraða spurningin í þessari árás hans er hins vegar tilgangur árásanna og tímasetning.
Hvers vegna ræðs Teitur Atlason ekki á Halldór Ásgrímsson, sem líklega er enn í dag skráður í Framsóknarflokkinn? Halldór notaði á sínum tíma stjórnsýslu-valdið sitt, til að ræna Búnaðarbankanum og kvótanum að stórum hluta til!
Í dag heitir rændi Halldórs-Búnaðarbankinn: Arion-banki, (fyrrverandi Kaupþing-banki), þ.e.a.s. ef ekki er búið að breyta nafninu enn einu sinni!
Hefur Teitur Atlason ekki áhyggjur af þessari gríðarlegu bankaráns-spillingu Halldórs Ásgrímssonar?
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 19.9.2012 kl. 14:55
Auðvitað beinist athygli þjóðarinnar og bloggara almennt, ekki aðeins Teits Atlasonar að syni braskarans þegar sonurinn tekur við formannsstarfinu í hinum margspillta Framsóknarflokki. Báðir eru þeir feðgar opinberar persónur enda kjörnir í þingkosningum og launaðir af almannafé. Faðirinn kom ár sinni heldur en ekki betur fyrir borð og naut pólitísks stuðnings í flokknum. Líklegt er að sonurinn geri það sama komist hann til meðorða sem mjög er líklegt.
Spyrja má þig hvort þú hafir samúð með bröskurum? Mér finnst þeir ekki eiga hana skylda enda hafa þeir auðgast meira og minna á vafasaman hátt, aldir upp í fé- og valdagræðgi.
Góðar stundir!
Guðjón Sigþór Jensson, 20.9.2012 kl. 10:33
Guðjón. Ég hef oft farið hörðum orðum um Sigmund Davíð, og kannski stundum á óréttlátan hátt. Ég skil vel hvað þú ert að meina með feðgatengslin. Ég er ekki með yfirdómaravald um hvað er rétt eða rangt, frekar en nokkur annar á þessari jörð.
En ég bendi á að synir eru oft dæmdir eftir feðrunum á óréttlátan hátt, og jafnvel þvingaðir/mútaðir af feðrum, til að þóknast feðranna vilja. Ef enginn mótmælir slíkum kúgunum gegn sonum valda/peninga-græðgisjúkra feðra, þá ná þeir feður fram sínum kúgunarvilja gagnvart sínum börnum, og nota þá til að viðhalda siðblindri spillingu.
Ég hef einnig gagnrýnt harðlega hvernig síðustu kosninga-mafíustjórar plottuðu (að mínu mati) Sigmund Davíð Gunnlaugsson fram fyrir Höskuld Þórhallsson.
Ég held ég hafi líka einhvertíma viðrað þann greinilega möguleika, að Sigmundur Davíð og fleiri hafi óafvitandi verið leiddir í þá pólitísku stöðu sem þeir lentu í, sem trúlega var fyrirfram skipulögð af yfirmönnum í svikapólitíkinni.
Mér finnst í raun alveg stórmerkilegt að svo valdamiklir og háir herrar, sem Halldór Ásgrímsson, Svavar Gestsson og Jón Baldvin Hannibalsson, þurfi ekki að taka nokkra einustu ábyrgð á sínum GJÖRÐUM, í Íslenskri stjórnsýslu.
Hvers vegna sleppa þessir háu herrar svona auðveldlega við að taka ábyrgð á sínum gjörðum? Er það vegna þess að þeir voru í vinnu við að varpa ábyrgðinni á eitthvað heiðarlegt fólk, og kenna þeim svo um allt sem misferst?
Þetta er nú bara mitt mat á spillingunni. Ég hef ekki alltaf rétt fyrir mér, frekar en nokkur annar í þessu jarðlífi.
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 20.9.2012 kl. 22:24
Syndir feðranna eru oft miklar en verra er þegar synirnir reyna ekkert til að bæta fyrir. Sigmundur er alinn upp í gríðarmiklum auð sem fenginn er á fremur vægast sagt misjafnan hátt.
Auðvitað eigum við ekki að gerast dómarar en við getum haldið áfram að ræða þessa hluti tæpitungulaust.
Af hverju þessir menn sleppa er ekki auðvelt að svara. Kannski er skýringin sú að fjármálaspilling hefur tíðkast mjög lengi og þessir fjármálamenn stjórna umræðunni að miklu leyti. Það skýrir t.d. hvernig reynt er að gera sem minnst úr hlut ríkisstjórnarinnar að koma þjóðarskútunni aftur á flot.
Auðmenn telja sig geta keypt allt. Hafa þeir ekki fjölmiðlana undir sér að miklu leyti? Morgunblaðið, Fréttablaðið, Fréttatíminn, 365 og fl.?
Kannski þeir líti einnig á að unnt sé að „kaupa“ stjórnmálamenn og jafnvel heilu stjórnmálaflokkana með manni og mús, dómara og jafnvel forsetann á Bessastöðum. ÓRG var ansi liðtækur að efla útrásarmenn og er hann enn að? T.d. þegar hann neitaði að staðfesta lögin um Icesave. Ef það hefði verið gert, væri það einkennilega leiðindamál úr sögunni. Það var engin skynsemi á bak við þá ákvörðun heldur liður í múgsefjuninni gagnvart ríkisstjórninni.
Góðar stundir!
Guðjón Sigþór Jensson, 21.9.2012 kl. 10:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.