Mikilvægt að ná sáttum með samningum

Engin þjóð Evrópu er jafnháð fiskveiðum og Íslendingar.

Makríllinn er flökkustofn sem virðir engin mörk, heldur fer þangað sem nægt æti er í sjónum. Nú er hann byrjaður að gera sig heimankominn hér, meira að segja sagður byrja að hrygna og fjölga sér.

Makríllinn er mjög duglegur að eta nánast allt sem fyrir er. Þannig keppir hann við kríuna og lundann um sandsíli og varð líklega meginástæðan fyrir lökum árgöngum undanfarinna ára þar sem þessir fuglar fengu mikla samkeppni um fæðuna. Aðrir fuglar eins og súlan hefur tekið þessu fagnandi og hefur víða mátt sjá súluna veiða makríl sér til matar, jafnvel uppi við ströndina. Þannig hefi eg orðið vitni að því á ströndinni á Snæfellsnesi undanfarin sumur þar sem bæði súla sem háhyrningur hafa verið á makrílveiðum á ströndinni við Langaholt (Garða) á Snæfellsnesi.

Steingrímur J. og ráðuneytisfólkið hans er líklegt til að ná viðunandi samningum við Evrópusambandið sé allt með felldu. Samningar ganga út á að aðilar gefi eitthvað eftir til að liðka fyrir samningum og sýna gagnaðila skilning á mismunandi sjónarmiðum. Þar er mikilvægt að allar mikilsverðar upplýsingar liggi fyrir.

Því miður er nú svo komið fyrir okkur Íslendingum að þeir sem hafa hæst og stýra umræðunni eru andstæðingar núverandi ríkisstjórnar. Þessum aðilum er mikilvægast að spilla sem mest fyrir, gera okkar menn tortryggilega og nýta hvert tækifæri til að auka óvinsældir ráðamanna.

Þetta eru aðilarnir sem tengjast hrunmönnum beint eða óbeint og eru jafnvel aðilar að þeim skuggalegu skúmaskotum. Núverandi ráðamenn komu hvergi nærri bankahruninu en hafa kappkostað að leiða þjóðina út úr erfiðleikunum og tekist það að verulegu leyti.

Betur hefði tekist til hefði andófið gegn Icesave lögunum ekki komið til. Aldrei stóð til að við Íslendingar borguðu eina einustu krónu nema öll útistandandi útlán gamla Landsbankans væru afskrifuð sem var mjög óraunhæft. Í stað þess að skoða allar hliðar þess máls gaumgæfilega var valin sú leið að draga umræðuna inn í dramatískan og tilfinningaríkan táradal eins og ekki væri nein önnur skynsamleg lausn til. Auðvitað er gert ráð fyrir í milliríkjasamningum þeim möguleika að allt fari á versta veg sem ekki hefur reynst raunin.

Hefði Ólafur Ragnar undirritað Icesave lögin á sínum tíma væru þessi mál nú úr sögunni. En það var áróðursgildið sem vakti fyrir andstæðingum ríkisstjórnarinnar og Ólafur öðlaðist þannig fylgi þriðjungs þjóðarinnar á vægast sagt mjög vafasömum forsendum.

Enn á eftir að leiða þessi Icesave mál til lykta og ekki er líklegt að sú leið verði hagkvæmari þjóðinni þegar öll kurl verða dregin til grafar. Þjóðin átti mest undir því komið að komast sem fyrst út úr erfiðleikunum sem Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn stofnaði til með skammsýnni einkavæðingu bankanna og að ógleymdri Kárahnjúkavirkjuninni sem varð önnur meginrót og forsenda brasksins mikla.

Eg hefi trú á að stjórnvöld okkar finni réttu leiðina til hagstæðra samninga.

Góðar stundir.


mbl.is Enginn samningur betri en slæmur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 242984

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband