Hvað er í gangi?

Þetta er ótrúlegt. Getur verið að einhver hafi gripið fram fyrir hendur ráðherrans?

Gunnar Andersen virðist hafa komið við kaunin á spillingu í skjóli Sjálfstæðisflokksins þegar hann vildi rannsaka einn af gullkálfum Sjálfstæðisflokksins, Guðlaug Þór „styrkjakóng“.

Kannski þetta sé ekki rétt frétt.


mbl.is Ráðherra styður stjórn FME
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Arnórsson

Ég trúi akkúrat öfugt. Ég held að stjórn FME viti alveg nákvæmlega hvað hún er að gera og fær stuðning frá ráðherra. Þetta á eftir að koma í ljós alltsaman...

Óskar Arnórsson, 1.3.2012 kl. 17:28

2 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Ég er sammála Óskari. Þetta á eftir að koma í ljós.

Ég bið alla góða vætti um að réttlæti náist. Réttlæti er allra hagur, hvar sem fólki hefur verið komið fyrir í stjórnsýslunni. Það er engra hagur að hagnast á óréttlæti, því sök bítur sekan að lokum.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 1.3.2012 kl. 17:37

3 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Ég giska á að einhver allt annar gullkálfur hafi komið við sögu. En það hentar auðvitað að nefna sjalla - en varla er ætlast til þess að við trúum því að sjallar stjórni enn bak við tjöldin?

Kolbrún Hilmars, 1.3.2012 kl. 17:51

4 identicon

Þetta mál er stöðugt að gerast athyglisverðara, sérstaklega hvað varðar sjálfstæðismenn.  Út frá þessu mætti halda að árásir á Gunnar hafi stafað beint frá sjálfstæðismönnum sem halda í taumana á stjórnarformönnum fjármálaeftirlitsins...

Nýjustu fréttir herma að Gunnar var í því að rannsaka Guðlaug Þór Þórðarson, og Guðlaugur segist koma af fjöllum um þetta mál :)

Hérna er stórt hneyksli í afhjúpun og augljóst að ekki er öllum kátt hjá sjálfstæðismönnum og frammsókn. Uppgjör í vændum spái ég - hvað annað gæti útskýrt þetta fars?

J.

Jonsi (IP-tala skráð) 1.3.2012 kl. 21:01

5 Smámynd: Óskar Arnórsson

Þetta er reiptog á milli þeirra krafta sem vilja loka málinu og gleyma öllu og þeirra sem eru í aðstöðu að toga í heiðarlegu spottana af einhverjum krafti. Það eru ótrúlegustu menn sem taka hverja sönnun sem þeir ná í og láða vaða. Gunnar kallinn er engin engill. Og að hann skyldi ekki skilja að þessi stjórnarseta í fyrirtæki í skattaparadís myndi draga dilk á eftir sér, gerir hann ekki bara óhæfan, heldur ekkert sérlega gáfaðan....hvort hann sé óheiðarlegri enn gengur og gerist í þessum bransa, ég efast um það. Það er ekki nokkur leið að reka banka eða fjármálstofnun á einhverjum heiðarleika. Menn verða ekki langlífir í bransanum sem leifa sér að stunda heiðarleika af einhverju viti...

Óskar Arnórsson, 1.3.2012 kl. 22:02

6 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Óskar: hvað áttu við með: þeirra sem eru í aðstöðu að toga í heiðarlegu spottana?

Hvaða spottar eru heiðarlegri en aðrir?

Spurning er hvort þessi athugun á tengslum Guðlaugs Þórs hafi verið eftir óhefðbundnum leiðum. Hafi fyrrum forstjóri viljað gerast „einkaspæjari“ jafnframt að gegna trúnaðarstarfi þá gengur það ekki.

Allt verður að gerast í samvinnu við stjórn Fjármálaeftirlitisins og eftur þeim formlegu verklagsreglum sem tíðkast hafa.

Guðjón Sigþór Jensson, 2.3.2012 kl. 11:14

7 Smámynd: Óskar Arnórsson

Margir heiðarlegir vita nákvæmlega hvað er að ske í kringum þá enn geta ekki sannað neitt. Og þeir standa saman. Málið er að sjálfsögðu miklu stærra en það hafi eingöngu verið vegna Guðlaugs Þórs. Enn alla vega bregst Gunnar við eins og sá seki. Hann notar sambönd sín til að ná í gögn á ólöglegan hátt, sjálfsagt var ætlunin að styrkja eigin stöðu. Ég trúi að stjórn Fjármálaeftirlitsins sé í lagi og þetta hafi verið hárrétt ákvörðun hjá henni. Fólk er í misjöfnum stöðum í þessu kerfi, og er sumt heiðarlegt. Þeir sem vilja virkilega koma þessu bankahruni upp á borð eru þyrnir í augum þeirra sem vilja kæfa sem mest af málinu. Og menn standa saman í því, hvort sem það er með eða á móti. Eigin hagsmunir koma alltaf í fyrsta sæti...

Þessi "upplýsingasöfnun" Gunnars kom á eftir aðalmálinu. Það er greinilegt að hann er búin að missa allt traust meðal rannsakenda enda hefur hann kanski verið að rannsaka einhver mál sem hann persónulega er innblandaður í...þess vegna er hann líklegast rekinn...

Óskar Arnórsson, 2.3.2012 kl. 12:04

8 identicon

Hvað veldur því að landsbankastarfsmaður vill ólmur leka út gögnum um Guðlaug?  Því miður reyndi hann að koma gögnunum að röngum aðila sem getur ekker aðhafst.  Um fjölmiðla gildir annað.

Hérna er búið að leysa úr læðingi draug sem mun bíta einhvern, ekki alveg ljóst að svo stöddu hvort það séu stjórnarformenn, Gunnar, Guðlaugur eða ríkisstjórnin sjálf.

Verða fundarskjöl stjórnarformanna FME gerð opinber?  Hvar er að finna og ekki finna í þeim?

Jonsi (IP-tala skráð) 2.3.2012 kl. 16:47

9 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Fjármálaeftirlitið verður sem aðrar opinberar stofnanir að fara eftir viðhefðum venjum og reglum. Þannig virðist eins og Gunnar hafi ekki átt frumkvæði að fá þessar upplýsingar enda mjög ósennilegt að hann hafi óskað eftir þeim „prívat og persónulega“. Þarna verður að fara eftir ströngum samskiptareglum, þar sem Fjármálaeftirlitið fer fram á að fá tilteknar upplýsingar. Þá getur viðkomandi banki eða stofnun ekki átt frumkvæði að veita slíkar upplýsingar. Í öllum þessum samskiptum þarf að gæta fyllsta öryggis, þannig að upplýsingar fari ekki til annarra en til var ætlast og ekki aðrar upplýsingar en um var beðið.

Eitthvað virðist hafa farið öðru vísi en ætlað er.

Lofsvert er af fyrrum forstjóra að eiga af eigin hvötum að fara til lögreglu til að gefa skýrslu. Ekki þurfti að boða hann og þaðan af síður að leita hann uppi og færa jafnvel með valdi eins og lögreglu er heimilt.

Hversu lengi Guðlaugur Þór fær „að sprikla“ þangað til farið verður í sauman á fjármálum hans er væntanlega aðeins tímaspursmál. Hann var mjög iðinn við að leita til fyrirtækja og fékk þau sum til að greiða tugi milljóna í kosningasjóð hans og Sjálfstæðisflokksins sem er mjög ámælisvert.

Guðjón Sigþór Jensson, 2.3.2012 kl. 18:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (13.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband