Hverju reiddust goðin?

Fram hefur komið að það sem fyllti mælinn var rannsókn Fjármálaeftirlitisins á umsvifum Guðlaugs Þórs „styrkjakóngs“ Sjálfstæðisflokksins.

Gunnar var kominn nálægt innstu kviku kringum klíku spillingarinnar!

Þarna var hann greinilega farinn að nálgast n.k. bannsvæði valdaklíku tengdri Sjálfstæðisflokknum og jafnvel kominn inn fyrir „öryggissvæði“ varðhundanna.

Einn virtasti og besti lögfræðingur landsins, Andri Árnason, hefir tvívegis metið hæfi Gunnars. Andri hefur ekki verið í minnsta vafa um að Gunnar sé hæfur sem yfirmaður Fjármálaeftirlitisins og sem slíkur sýnt frábær störf við erfiðar aðstæður.

Við skulum minnast þess sem Eva Joly sagði á sínum tíma: Það megi alltaf búast við að þeir sem vilja verja spillinguna, bregðist illa við og beiti öllum tiltækum ráðum til að stöðva rannsókn.

Nú er líklega besti leikurinn í stöðunni að ríkisstjórnin segi stjórn Fjármálaeftirlitisins upp og skipi nýja stjórn auk þess að Gunnar verði þegar ráðinn aftur!

Hann er hæfur og til hans er borið fullkomið traust!

Goðin í Sjálfstæðisflokknum mega sleikja sárin eftir vandræðaganginn síðustu missera. Þeirra var möguleikinn að koma í veg fyrir bankahrunið en þeim bar ekki sú gæfa að forðast það. Kæruleysið og aðgerðaleysið var þeirra sem öll þjóðin hefur fengið að súpa seyðið af!


mbl.is Gunnar kærður til lögreglu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Guðjón Sigurþór. Ég tek undir hvert orð hjá þér í þessum pistli.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 1.3.2012 kl. 17:41

2 Smámynd: Kristinn Karl Brynjarsson

Hvernig má það vera að FME hafi verið að rannsaka mál Guðlaugs Þórs? Slíkar rannsóknir fara ekki í gang nema að rökstuddur grunur sé um glæpsamlegt athæfi. Sé uppi grunur um glæpsamlegt athæfi, þá hefur Gunnar ekki aflað þessara upplýsinga með ólögmætum hætti. Það segir sig því alveg sjálft að stjórn FME hefði ekki kært Gunnar fyrir ólögmæta upplýsingasöfnun.

Kristinn Karl Brynjarsson, 1.3.2012 kl. 20:59

3 identicon

Já maður á að vera rekinn ef maður fer ofan í saumana á fjárfestingum þingmanna (sjálfstæðismanna).    ;D

Þetta mál á eftir að verða sagt í Íslendingasögunni   :D

J.

Jonsi (IP-tala skráð) 1.3.2012 kl. 21:46

4 identicon

Jónas Kristjánsson segir að Gunnar hafi staðið sig mjög illa í embættinu, en þú segir að hann hafi staðið sig vel.

Hvernig hefur hann þá staðið sig?

V.Jóhannsson (IP-tala skráð) 1.3.2012 kl. 23:44

5 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Hafi Gunnar ekki farið formlega rétt eftir upplýsingum þá er það eitthvað sem erfitt kann, jafnvel ógerningur að verja.

Í réttarríkinu er mikil formfesta og þá þarf að fara rétt eftir verklagsreglum.

Var að spjalla við kunningja minn um þessi mál í morgun en hann er hæstaréttarlögmaður og þekkir þennan heim mjög vel.

Þar skiptir engu hvort um sé að ræða versta skúrk landsins eða einhvern annan: fara verður eftir reglum og venjum. Það má aldrei stytta sér leiðina.

Mér skilst að talið sé um að sá sem málið varðar, hafi beðið persónulega um upplýsingar. Ef svo reynist rétt vera, þá gengur það formlega ekki. Menn sem gegna mikilvægum trúnaðarstörfum mega ekki gerast „einkaspæjarar“.

Guðjón Sigþór Jensson, 2.3.2012 kl. 11:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 242985

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband