VG er lýðræðislegur flokkur

Þar sem lýðræði er að fullu virt, þar fá allir að setja fram skoðanir sínar. Sú var tíðin að í Sjálfstæðisflokkur var einn maður sem réð öllu með harðri hendi og ef einhver hafði aðra skoðun en foringinn, þá mátti hann taka pokann sinn og hverfa á braut. Man nokkur eftir þegar Ólafur F. Magnússon kom með tillögu á landsfundi Sjálfstæðisflokksins og „foringinn“ gerði lítið úr Ólafi sem sagði sig úr Sjálfstæðisflokknum að svo komnu máli ásamt nokkrum fleirum. Hefði verið betur að fleiri hefðu gert það enda var lýðræðið ekki upp á marga fiska hjá þeim stjórnmálaflokki sem lengi vel bar haus og herðar yfir aðra stjórnmálaflokka á Íslandi.

Ljóst er, að einhver erfiðasta ákvörðun um fjárlög eru nú. Eftir bankahrunið hafa tekjur ríkissjóðs skroppið mjög mikið saman og spurning er hvaða leið er farsælust. Margir telja rétt að ráðast á stærstu útgjaldaliðina en þess ber að gæta að þar er vegið að grunnstoðum samfélagsins. Mikil hætta er á því, að ef skorið er ótæpilega niður í heilbrigðismalum,menntamálum og samgöngumálum, verði það jafnvel til frambúðar. Margir óttast að við lendum þá í sama fari og Bandaríkin en harkalegur niðurskurður á kreppuárunum olli því að opinber heilbrigðisþjónusta nánast hrundi saman og hefur aldrei náð fyrra þjónustustigi enda náði einkarekin heilbrigðisþjónusta undirtökunum. Fyrir vikið standa borgarar þar vestra misjafnlega að vígi þar sem aðgengi að góðri heilbrigðisþjónustu í Bandaríkjunum er háð efnahag sem vinstri menn vilja alls ekki.

Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn hvetur íslensku ríkisstjórnina til að koma ríkisfjármálum sem fyrst í æskilegt horf, þ.e. hallalaus fjárlög. Þetta er auðvitað góðra gjalda vert en má ekki verða til þess að mismuna borgurunum þegar fram líða stundir. Við sem höfum borgað skattana okkar í áratugi teljum okkur eiga rétt á þeirri þjónustu sem við höfum kostað þegar við þurfum á henni að halda en ekki að þurfa að borga aleiguna okkar fyrir það sem við höfum kostað þó til.

VG er vel treystandi til að ráða fram úr þessum vanda. Það mun kannski taka eitthvað lengri tíma að komast upp úr þessum erfiðleikum sem léttúð Sjálfstæðisflokksins olli og leiddi til bankahrunsins. En auðvitað verður að vona það besta enda margt afbragðs gott fólk sem nú stýrir landsstjórninni sem hugsar meira um fólkið en braskarana.

Mosi


mbl.is Mikil átök hjá VG
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vendetta

Vendetta, 14.12.2010 kl. 18:30

2 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Hvernig ber að skilja þetta huldumaður?

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 14.12.2010 kl. 21:34

3 Smámynd: Vendetta

Það ber að skilja það þannig, að þótt VG virðist vera flokkur þar sem allir geta sagt allt er ekki þar með sagt að hann sé það útávið. Í mínum augum er VG kommúnísk-femínískur öfgaflokkur, sem fyrir alla muni ekki berst fyrir lýðræðislegu þjóðfélagi, ekki frekar en Talibanarnir í Afghanistan.

Svo er líka hægt að segja um VG það sem sagt var um Alþýðubandalagið sáluga: Þeir hafa svikið alþýðuna mest allra flokka. VG siglir undir fölsku flaggi jöfnuðar, þegar alþýðan upplifir ekkert nema ójöfnuð og yfirgang frá þeirra hálfu gagnvart sér, á meðan flokkurinn er eins og lúbarinn og auðmjúkur kjölturakki gagnvart krötunum í Samfylkingunni.

Í VG ríkir enn það viðhorf, sem ráðamenn í Kreml tömdu sér forðum daga: Að flokkurinn viti betur en þjóðin sjálf hvað þjóðinni er fyrir beztu. 

Vendetta, 14.12.2010 kl. 23:48

4 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Ertu þá að meina Vendetta að VG sé nokkurs konar afturganga Kommúnistaflokks Ráðstjórnarríkjanna?

Nei ætli það, fremur en Sjálfstæðisflokkurinn þó eitthvað megi sjá hliðstæður í ljósi sögunnar. Í báðum flokkunum er viðurkennt að málfrelsi, tillöguréttur og atkvæðaréttur kjörinna fulltrúa sé fyrir hendi og meirihlutinn ráði.

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 15.12.2010 kl. 08:33

5 Smámynd: Vendetta

VG hætta ekki að vera kommúnistar, þótt þeir skipti um nafn. Eftir fall kommúnismans í Evrópu biðu margir kommúnistaflokkar skipbrot og ýmist skiptu um nafn eða sameinuðust öðrum vinstriflokkum í nýjum flokki. En flokksforystan hætti ekki að láta sig dreyma um þjóðfélag þar sem ríkið ræður öllu og það er þannig sem þingmenn og trúnaðarmenn VG vilja helzt hafa Ísland í framtíðinni. Þannig ríki vil ég ekki sjá hér. En það eru ekki kommúnistarnir sem eru verstir, heldur öfgafemínistarnir, sem hafa töglin og hagldirnar í VG.

Þú ert sennilega of ungur til að muna þetta, en í byrjun 7. áratugsins á Íslandi urðu stakkaskipti í íslenzkum stjórnmálum. Viðreisnarstjórnin með Sjálfstæðisflokkinn í farabroddi ákvað að halda áfram hafta- og einokunarstefnu Stefaníu (sem var ríkisstjórn Framsóknarflokksins+). Með þessu fylgdi ólýsanleg spilling.

Síðan eftir 2000 ákváðu þessir tveir flokkar að fara yfir veginn og ofan í hinn skurðinn, sem var laissez-faire frjálshyggjan. Það er því óhætt að segja, að frá því um miðjan 6. áratuginn hafi hvorki Sjálfstæðisflokkurinn (íhaldið) né Framsókn (afturhaldið) gert íslenzka þjóðfélaginu neitt gagn, heldur þvert á móti skaðað Ísland verulega. Þessir tveir flokkar hafa verið ímynd spillingar og óréttlætis frá því að ég man eftir mér.

Þannig að vilja Íslendingar pest eða kóleru? Því að eins og Alþingi lítur út í dag, þá eru ekki aðrir möguleikar.

Vendetta, 15.12.2010 kl. 13:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 243004

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband