19.10.2010 | 14:02
Hvaða breytingar hefur þetta í för með sér?
Líklega er meginhugsunin á bak við þessa ákvörðun að hvetja lánastofnanir að fara varlegar í útlánum sínum. Áður fyrr lánuðu bankar almennt ekki umfram 50% af fasteignamati eigna, íbúða og jarðaparta. Meðan þessi útlánastefna var virt, höfðu lánastofnanir betri tryggingu fyrir útistandandi lánum.
Vonandi munu bankar taka upp varkárari útlánastefnu en verið hefur.
Þá er mjög sennilegt að eftirleiðis færist aukin harka í innheimtu á vangreiddum skuldum, gripið verði til fleiri kyrrsetningar en verið hefur. Allt hefur þetta aukið álag á dómstólana.
Sú gegndarlausa útlánastefna fjármálafyrirtækja eftir einkavæðingu bankanna var skelfileg. Í framhaldsskólum landins birtust útsendarar útrásarvíkinganna, buðu framhaldsskólanemendum ýmsan varnig og jafnvel fríðindi í þeim tilgangi að gera þessa nemendur að viðskiptavinum bankanna. Góðærið var fjármagnað með botnlausum lánum sem allt of margir eiga í fullt í fangi með að standa í skilum með.
Sjálfsagt má sitt hvað gott segja um þessa ákvörðun ríkisstjórnarinnar, þ.e. ef þessi ráðstöfun gagnast einhverjum. Mun árangursríkara væri að sem flestir temji sér hagfræði Bjarts í Sumarhúsum. Hann önglaði saman með mikillri vinnu og ítarlegum sparnaði, kom sér upp jörð að vísu ekki góðri og nokkrum gripum. Honum farnaðist vel uns þingmaðurinn náði að telja honum trú um að taka lán í bankanum, stækka bæinn og fjölga í bústofninum. Hann framleiddi auðvitaðmeira en það sem var afdrifaríkt var að vegna verðfalls erlendis, fékk hann ekkert fyrir dilkana að hausti og gat ekki staðið í skilum. Er þetta ekki svipuð staða eins og blasir við flestum þeim sem nú eiga í erfiðleikum?
Mosi
![]() |
Skuldir fyrnist á tveimur árum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:05 | Facebook
Um bloggið
Siðvæðing í stjórnmálum
Nýjustu færslur
- 24.11.2014 Hvar er jafnréttið?
- 7.11.2014 Er réttarríki á Íslandi?
- 27.10.2014 Byssumálið: krefjumst opinberrar rannsóknar
- 8.10.2014 Sekur eða saklaus?
- 8.9.2014 Jón og séra Jón
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
-
Aðalsteinn Sigurgeirsson
-
Alfreð Símonarson
-
Andrea J. Ólafsdóttir
-
Andrés Kristjánsson
-
Andri Geir Arinbjarnarson
-
Anna Benkovic Mikaelsdóttir
-
Arnar Pálsson
-
Axel Jóhann Hallgrímsson
-
Ágúst H Bjarnason
-
Ágúst Ólafur Ágústsson
-
Árni Þór Sigurðsson
-
Ásgeir Eiríksson
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Baldur Hermannsson
-
Baldur Kristjánsson
-
Baldvin Jónsson
-
Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
-
Berglind Steinsdóttir
-
Birgir R.
-
Bjarki Steingrímsson
-
Bjarni Harðarson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Björgvin Björgvinsson
-
Björgvin Guðmundsson
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
busblog.is
-
Bwahahaha...
-
Dagný
-
Einar Ólafsson
-
Gammur drils
-
Guðfríður Lilja
-
Guðjón Baldursson
-
Guðjón Petersen
-
Guðmundur Steingrímsson
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Halldór Sigurðsson
-
Hallvarður Ásgeirsson
-
Haraldur Haraldsson
-
Heidi Strand
-
Helga Auðunsdóttir
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Herdís Þorvaldsdóttir
-
Hilmar Gunnlaugsson
-
Hjörleifur Guttormsson
-
Hlynur Hallsson
-
Hrannar Björn Arnarsson
-
Hvíti Riddarinn
-
Högni Snær Hauksson
-
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
-
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Jens Guð
-
Jón Bjarnason
-
Jón Halldór Guðmundsson
-
Jón Ingi Cæsarsson
-
Kaffistofuumræðan
-
Karl Tómasson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Kristbjörg Erla Hreinsdóttir
-
Kristbjörn Árnason
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Lára Stefánsdóttir
-
Loftslag.is
-
Lúðvík Júlíusson
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
María Kristjánsdóttir
-
Máni Ragnar Svansson
-
Morgunblaðið
-
Ólafur Ingólfsson
-
Ólafur Þór Gunnarsson
-
Ólafur Örn Jónsson
-
Ómar Bjarki Smárason
-
Ómar Ragnarsson
-
Ósk Vilhjálmsdóttir
-
Perla
-
Pjetur Hafstein Lárusson
-
Rúna Guðfinnsdóttir
-
Sigurður Hreiðar
-
Sigurður Ingólfsson
-
Sigurjón Þórðarson
-
Steingrímur Helgason
-
Svanur Jóhannesson
-
Sveinn Atli Gunnarsson
-
Theo
-
Torfusamtökin
-
Trausti Jónsson
-
Umhverfis- og náttúrufræðifélag Mosfellsbæjar
-
Úrsúla Jünemann
-
Valdís Jóhanna Guðbjartsdóttir
-
Vefritid
-
Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock)
-
Þorsteinn Briem
-
Þorsteinn Erlingsson yngri
-
Þorsteinn Siglaugsson
-
Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
-
Ævar Rafn Kjartansson
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.3.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Það má líka bæta því við að það er verið að þvinga bankana að samningaborðinu með þessum lögum. Það er mun heillavænna fyrir margar fjölskyldur og einstaklinga að fara í þrot með allt sitt í dag í stað þess að gerast þrælar bankanna, bundnir í átthagafjötra um alla æfi. Nú er viðskiptamódelið einfaldlega þannig að bankinn þinn verður að koma með lausn sem er betri fyrir þig en gjaldþrot.
Mér líst vel á þetta. Vonandi kemst núna einhver skriður á úrlausn skuldamála fjölskyldna og einstaklinga í landinu gagnvart bönkunum.
Kristinn (IP-tala skráð) 19.10.2010 kl. 14:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.