Jón Bjarnason á réttri leið

Líklegt er rétt ákvörðun að veiða eitthvað meira en Hafrannsókn hefur lagt til. Veiðireynsla sjómanna bendir til að meira sé af fiski í sjónum en talið hefir verið. En sjálfsagt er að fara með ítrustu varfærni og ef rökstuddar vísbendingar koma fram að þetta hafi ekki verið rétt ákvörðun, verður að afturkalla heimildirnar.

Athygli vekur að ráðherra vilji að útgerðarmenn greiði fyrir þennan aukakvóta. Þetta á að vera greiðsla fyrir tímabundinn afnotarétt en ekki sala á kvóta eins og sumir virðast leggja skilning í ákvörðun ráðherrans.

Mjög mikilvægt er að kvóti sé ekki gerður að féþúfu eins og því miður var ákveðið á sínum tíma. Fyrst var heimilt að veðsetja kvóta og síðan selja.

Auðvitað á kvóti að ganga aftur til úthlutunaraðila ef hann er ekki lengur notaður af útgerðarmönnum. Kvóti á að vera tengdur afnotarétti en ekki vera andlag eignarréttar eins og því miður varð og má segja að sé undanfari þeirrar miklu kollsteypu sem bankahrunið er afleiðing af. Kvótabraskið er eitt hrikalegasta hneyksli Íslandssögunnar og er þeim til mikils vansa sem ákváðu á sínum tíma að unnt væri að gera sameign þjóðarinnar að féþúfu.

Með von um að þessi ákvörðun létti okkur róðurinn í þeim efnahagslegu erfiðleikum sem nú er við að etja í samfélaginu.

Mosi


mbl.is Hyggst selja aukinn kvóta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Get verið sammála þér að vissu leyti. Ætti ekki að vera hægt að leigja kvóta frá sér nema sérstakar ástæður komi upp (t.d. ef bátur sekkur og eigandi er ekki búinn að fjárfesta strax í nýjum báti, bara dæmi). Í dag er ekki heimilt að veðsetja kvóta og það er ekki gert. Mér finnst hins vegar ósanngjarnt fyrir þá sem komu inní kerfið fyrir 5-10 árum, þurftu að kaupa sig inní kerfið á þágildandi reglum, þ.e.a.s. að kaupa kvótahlutdeild, svo undanfarin ár er búið að skerða kvótann þvílíkt og hefur það bitnað á mörgum litlum útgerðum. Svo þegar það á að auka veiðiheimild þá þurfa þessir sömu menn að borga meira, mér finnst þetta afar ósanngjarnt. Ég held að það sé mjög erfitt að breyta kvótakerfinu eitthvað mikið í dag, ekki nema ríkið kaupi bara kvótann af öllum og leigji svo út, sanngjarnasta leiðin.

 P.s. tek fram að ég er ekki kvótaeigandi, né neinn í minni fjölskyldu :)

Kv. Gunnar.

Gunnar Jóhannsson (IP-tala skráð) 15.10.2010 kl. 00:52

2 Smámynd: Helgi Þór Gunnarsson

Sæll Guðjón, ég er sammála þér með að bankahrunið byrjaði þegar þeir leifðu veðsetningu kvótans. En þú segir að fyrst hafi þeir leyft veðsetningu og svo sölu, ég man ekki betur en að sala á kvóta hafi verið komin á undan veðsetningunni. Þeir leifðu fyrst eftir að kvótakerfið var sett á 1984, skipti á aflaheimildum, svo voru þeir farnir fljótlega eftir það að bralla með kvótann, ég veit bara að það fór ekki hátt í þjóðfélaginu.

Kær kveðja frá Eyjum.

Helgi Þór Gunnarsson, 15.10.2010 kl. 06:38

3 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Bestu þakkir fyrir góðar athugasemdir.

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 19.10.2010 kl. 16:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 242949

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband