Virðingaverð hvatning

Byskupinn okkar hvetur sóknarpresta og djákna að kaupa skýrsluna um bankahrunið. Sjálfsagt hafa Íslendingar sjaldan eða jafnvel aldrei staðið frammi fyrir jafnmiklum erfiðleikum vegna þessara gríðarlegu umskipta í sögu sinni. Þá var bönkunum breytt í ræningabæli í aðdraganda hrunsins og siðleysi alls ráðandi.

Sem yfirsálnahirðir þorra þjóðarinnar þá vill byskupinn okkar greinilega hvetja undirmenn sína til umræðu um þessi mál. Til þess að sú umræða verði byggð sem mest á rökum þá kemur þessi hvatning til, að gera skýrsluna sem mest aðgengilega fyrir sem flesta. Þá er meira en líklegt að sem flest og vonandi öll bókasöfn landsmanna hafi frammi eintak, bæði til afnota á söfnunum sem og til útláns.

Herra byskup Karl Sigurbjörnsson á allt lof skilið. Þökk sé víðsýni hans.

Mosi

Post scriptum: Sjálfsagt rekur einhvern í rogastans að hnjóta um orðið byskup ritað með „y“. Áhöld eru um hvort er upprunalegra en afburða fræðimenn á borð við Jón Sigurðsson (1811-1879) og Pál Eggert Ólason (1883-1949) rituðu að jafnaði „byskup“ en ekki „biskup“. Að sjálfsögðu má rökræða lengi um hvort sé réttara og upprunalegra í íslenskri málnotkun.


mbl.is Söfnuðir kaupi rannsóknarskýrslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég sé ekki betur en að biskup sé hér með pr stunt... koma í helgidóminn og leggjast á bæn... hlægilegt alveg

DoctorE (IP-tala skráð) 9.4.2010 kl. 11:30

2 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Hvað áttu við? Mér finnst að þú mættir rökstyðja þetta betur hvað þú ert að meina eða sleppa að rita aths.

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 9.4.2010 kl. 12:09

3 identicon

Þetta er augljóst pr stunt.. kemur mjög vel fram í fréttinni að ætlunin er að nota skýrslu sem gulrót til kirkjusóknar...
Hvað er kirkjan að sólunda peningum í þetta... væri ekki nær að gefa MAT til þurfandi... kirkjan situr jú á þúsundum milljónum árlega, skrauthallir um allan bæ, prestar hálaunamenn....
Getur það verið að biskupinn sé með hærri laun er forsætisráðherra, er það vitrænt... er það samkvæmt biblíu.


DoctorE (IP-tala skráð) 9.4.2010 kl. 12:40

4 Smámynd: Magnús V. Skúlason

Miðað við þessi viðbrögð hjá DoctorE þá veltur maður því fyrir sér hvort að hann sé nefndur á nafn í þessari blessuðu skýrslu?

Magnús V. Skúlason, 9.4.2010 kl. 12:50

5 identicon

Frábært framtak hjá biskupi.

Guðmundur Brynjólfsson (IP-tala skráð) 9.4.2010 kl. 12:52

6 identicon

Já Magnús.. ég er í skýrslunni.. þess vegna vill ég ekki að biskup sólundi peningum í hana... það gæti komist upp um mig... það gæti líka komist upp að ég er anti-kræst... .aðeins ríkiskirkjan gæti framið særingar bla

Það er zero raunveruleg ástæða til að kaupa þessa skýrslu til að hafa í kirkjum.. við höfum internetið, það verður fjallað um skýrsluna í öllum fjölmiðlum... hlægilegt að kirkjan ætli að taka brauð úr munni hungraðra til þess að auglýsa sjálfa sig...

DoctorE (IP-tala skráð) 9.4.2010 kl. 13:03

7 Smámynd: halkatla

það væri frábært ef fólk myndi nota þetta tækifæri einmitt til þess að mæta "í helgidóminn, og leggjast á bæn" (sérstaklega Doctor E) því þess þurfa allir með og það er alltof lítið fjallað um slíkt, ég fagna þessu sem biskupinn yfir Íslandi hefur nú gert, hann er að auglýsa boðskap og lífsstíl, ekki einhverja söluvöru - ef einhver vill gráta yfir skýrslunni þá er miklu betra að vera í kirkju heldur en heimafyrir

halkatla, 9.4.2010 kl. 13:50

8 identicon

Hvaða boðskapur er það... að hann sé með milljón á mánuði( Biskup ); Það er algerlega andstætt biblíu, prestar eru líka hálaunamenn, margir með milljón eða jafnvel meira.
Hvaða boðskap erum við að tala um eiginlega... ég veit ekki betur en að biblían segi að menn sem vilja vera alvöru kristnir VERÐI að selja ALLT sem þeir eiga og gefa fátækum...
Já meira að segja biskup og prestar fara ekki eftir biblíu... hafna pörtum sem skaða lífsgæði þeirra

DoctorE (IP-tala skráð) 9.4.2010 kl. 13:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 242938

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband