26.1.2010 | 19:26
Exista: gróðrarstía spillingar?
Þegar fréttist, að stjórn Exista hefði aukið hlutafé í fyrirtækinu um hvorki meira né minna en 50 milljarða króna fyrir nokkrum misserum, þá urðu margir forviða að ekki væri meira sagt. Í ljós kom að þessi mikla hlutafjáraukning var fyrst og fremst í blekkingarskyni og að styrkja þá stjórn í sessi sem hafði náð undirtökunum í félaginu. Grunur þeirra sem voru vantrúaðir á raunverulega aukingu hlutafjár í fyrirtækinu reyndist síðar á rökum reistur þegar í ljós kom að ekki ein einasta króna hefði verið greidd til félagsins heldur einhver hlutabréf í einhverju huldufyrirtæki sem enginn kannaðist við. þau voru eðlilega bókfærð sem raunveruleg eign þó verðgildi þeirra væri nánast einskis virði!
Svona uppákoma varð skattyfirvöldum og Fjármáleftirliti tilefni að skoða nánar þetta fyrirtæki. Exista byggir á tveim stoðum: Annarsvegar Samvinnutryggingum sem voru reknar af SÍS veldinu sem sjálfstætt fyrirtæki og Brunabótafélagi Íslands sem var elsta starfandi fyrirtæki á sviði trygginga á Íslandi. Brunabótafélagið skilaði eigendum sínum, ríkinu og sveitarfélögunum hagnað á hverju einasta ári í rúm 90 ár sem það starfaði auk þess sem brunavarnir voru kostaðar af félaginu. Þetta blómlega fyrirtæki var í einkavæðingarbrjálæði því sem geysaði um aldamótin síðustu, komið í hendurnar á Framsóknarmafíunni sem sameinaði það aftur Samvinnutryggingum og nefndi Vátryggingarfélag og síðar Exista. Þar fór gott fyrirtæki í hundskjaft!
Sú valdaklíka sem ráðið hefur þessu fyrirtæki hefur lítt hugsað um annað en að skara að sinni köku og hafa beitt hverjum þeim ráðum til að koma betur ár sinni fyrir borð á kostnað annarra hluthafa sem og alls hins íslenska samfélags. Sumir í stjórn þessa fyrirtækis hafa gerst umdeildir kaupsýslumenn og hafa beitt mjög óvenjulegum ráðum að koma eignum undan fyrirtækinu sem og Kaupþing banka sem hafði einnig verið spyrtur saman inn í þessa svikamyllu.
Nú er komið að þeim tímapunkti að lögreglurannsókn fer fram undir stjórn sérstaks saksóknara í bankahruninu. Mjög líklegt er að ákært verði í þessu máli enda sök nokkuð augljós um ýms hegningarlagabrot en það sem verið er að gera núna er að yfirvöld eru eðlilega að afla frekari sannanna og treysta betur væntanlega ákæru á hendur þeim sem málið varða.
Bankahrunið á Íslandi er ákaflega ógeðfellt og viðurstyggilegt fyrirbæri í sögu Íslands. Sérstaklega dapurlegt er til þess að hugsa hve þessir samborgarar okkar sem hafa átt þátt í hruninu hafi litið á frelsi sitt til athafna með mikilli léttúð og engri samfélagslegri ábyrgð. Verknaður þeirra er augljóslega bundinn við að auðga eigin hag sem mest og best án nokkurs minnsta tillit til annara hagsmunaaðila í samfélaginu. Kann sá verknaður að vera að einhverju leyti löglegur en gjörsamlega siðlaust.
Mosi
Exista rannsakað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Siðvæðing í stjórnmálum
Nýjustu færslur
- 24.11.2014 Hvar er jafnréttið?
- 7.11.2014 Er réttarríki á Íslandi?
- 27.10.2014 Byssumálið: krefjumst opinberrar rannsóknar
- 8.10.2014 Sekur eða saklaus?
- 8.9.2014 Jón og séra Jón
Færsluflokkar
Bloggvinir
- Aðalsteinn Sigurgeirsson
- Alfreð Símonarson
- Andrea J. Ólafsdóttir
- Andrés Kristjánsson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Anna Benkovic Mikaelsdóttir
- Arnar Pálsson
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Ágúst H Bjarnason
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Þór Sigurðsson
- Ásgeir Eiríksson
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Baldur Hermannsson
- Baldur Kristjánsson
- Baldvin Jónsson
- Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
- Berglind Steinsdóttir
- Birgir R.
- Bjarki Steingrímsson
- Bjarni Harðarson
- Bjarni Kristjánsson
- Björgvin Björgvinsson
- Björgvin Guðmundsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- busblog.is
- Bwahahaha...
- Dagný
- Einar Ólafsson
- Gammur drils
- Guðfríður Lilja
- Guðjón Baldursson
- Guðjón Petersen
- Guðmundur Steingrímsson
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Halldór Sigurðsson
- Hallvarður Ásgeirsson
- Haraldur Haraldsson
- Heidi Strand
- Helga Auðunsdóttir
- Helgi Þór Gunnarsson
- Herdís Þorvaldsdóttir
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjörleifur Guttormsson
- Hlynur Hallsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hvíti Riddarinn
- Högni Snær Hauksson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
- Jakob Falur Kristinsson
- Jens Guð
- Jón Bjarnason
- Jón Halldór Guðmundsson
- Jón Ingi Cæsarsson
- Kaffistofuumræðan
- Karl Tómasson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Kristbjörg Erla Hreinsdóttir
- Kristbjörn Árnason
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Lára Stefánsdóttir
- Loftslag.is
- Lúðvík Júlíusson
- María Anna P Kristjánsdóttir
- María Kristjánsdóttir
- Máni Ragnar Svansson
- Morgunblaðið
- Ólafur Ingólfsson
- Ólafur Þór Gunnarsson
- Ólafur Örn Jónsson
- Ómar Bjarki Smárason
- Ómar Ragnarsson
- Ósk Vilhjálmsdóttir
- Perla
- Pjetur Hafstein Lárusson
- Rúna Guðfinnsdóttir
- Sigurður Hreiðar
- Sigurður Ingólfsson
- Sigurjón Þórðarson
- Steingrímur Helgason
- Svanur Jóhannesson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Theo
- Torfusamtökin
- Trausti Jónsson
- Umhverfis- og náttúrufræðifélag Mosfellsbæjar
- Úrsúla Jünemann
- Valdís Jóhanna Guðbjartsdóttir
- Vefritid
- Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock)
- Þorsteinn Briem
- Þorsteinn Erlingsson yngri
- Þorsteinn Siglaugsson
- Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
- Ævar Rafn Kjartansson
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.