Góðra gjalda vert


Þessi þjóðgarðsstofnun er góðra gjalda verð. En athygli vekur að mörkin eru dregin nokkuð stórkarlalega: Langisjór er undanskilinn enda hyggst ríkisstjórnin hygla stóriðjunni með því að að fórna honum. Lónsöræfi fyrir austan Vatnajökul er nokkuð opið svæði enda er einhver jarðhiti. Ádtæðan er að ríkisstjórnin er búin að hafa þau af Stafafellsbændum með þjóðlendubramboltinu umdeilda og þó svo þeim Stafafellsmönnum voru seld öræfin af landssjóði eins og ríkissjóður nefndist í þann tíð, þá telur ríkisstjórnin það engu skipta. Allri orku skal halda í opinberri eigu til að ráðstafa til stóriðjunnar enda er það eini aðilinn sem núverandi ríkisstjórn virðist vilja standa reikningsskap gjörða sinna.

Um hraukana í Kringilsárrana er það að segja, að þeir voru friðlýstir fyrir nokkrum áratugum. Sá eiður til friðlýsingar var ekki metinn meira virði en svo að þeir voru ofurseldir eyðileggingunni miklu sem fylgir virkjanabramboltinu við Kárahnjúka. Vel hefði verið að verki staðið ef sú virkjun hefði aldrei byggð verið en þjóðgarður þessi teygður niður fyrir Dimmugljúfur og allir fossar Jökulánna á Brú og í Fljótsdal hefðu verið friðlýstir. Nú er það ekki lengur raunhæft og við sitjum uppi með mun minni fjölbreytni en upphaflega hefði verið fyrir hendi.

Það er því góðra gjalda vert að lýsa þjóðgarð einungis jökulhvelfið stóra og nærliggjandi fjöll sem hvort sem er verður ekki unnt að fórna á altari stóriðjunnar.

En greinilegt er einhver kotungsbragur á öllu þessu máli. Veita hefði þurft margfalt meira fé í þetta gríðarlega verkefni og það verður ekki auðvelt þegar virkjanafíknin veður uppi á nærliggjandi svæðum.

Mosi


mbl.is „Stór áfangi í náttúruvernd"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til mikils að vinna

Þegar verð á olíu hækkar upp úr öllu valdi og rafmagnsverð fer væntanlega sömu leið í kjölfarið, þá er eðlilegt að sem flestir landsmenn vilji gjarnan hafa aðgang að nægu og góðu heitu vatni.

Á undanförnum árum hefur komið í ljós, að jarðhita er víða að finna en á þeim hluta landsins þar sem yfirborðshti hefur verið þekktur. Jafnvel á eldri hluta landsins, blágrýtissvæðinu hefur jarðhiti fundis, íbúum til mikilla hagsbóta. En það er með jarðhitann sem önnur gæði: þau eru takmörkuð auðlind og eyðist þegar af er tekið. Ljóst er er að ekki gengur að taka meira en fyrir er. Í Mosfellsbænum þar sem mjög mikill yfirborðshioti var áður, var virkjað sem kunnugt er. Um tíma var gengið mjög nærri þessari auðlind, grunnvatn lækkaði mjög mikið og dæla þurfti vatninu frá miera dýpi en áður hafði þekkst. Er nú svo komið að Reykjaveitan er sett í hvíld yfir sumartímann til að jarðhitinn neanjarðar nái að jafna sig. Þetta er mögulegt eftir að Nesjavallavirkjun kom í gagnið og nú mun brátt koma til heitavaitnsmiðlunar frá Hellisheiðarvirkjun.

Fjárveitingar eru fremur smáar til hvers verkefnis. En óhætt er að þeim sé skipt bróðurlega og systurlega milli sveitafélaga úti á landsbyggðinni sem enn njóta ekki hitaveitu.

Fróðlegt verður að fylgjast með hvernig til tekst.

Mosi 


mbl.is 172 milljónir til jarðhitaleitar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er stóriðjan með íslensku ríkisstjórnina í vasanum?

Frestun framkvæmda: á það aðeins við á höfuðborgarsvæðinu?

Fyrir nokkrum árum var Landsíminn seldur. Þáverandi ríkisstjórn gaf út yfirlýsingar um að nýta skyldi fjármunina miklu m.a. að byggja hátæknisjúkrahús og hefja framkvæmdir við Sundabraut. Hvorugt er komið lengra en á teikniborðið. Nú á að fara að spara og gefið í skyn að engir fjármunir séu til að nýta í þessar framkvæmdir. Já það er einkennilegt þegar rætt er um að spara og draga úr þenslu þá skulu alltaf hugmyndirnar um slíkt vera tengt höfuðborgarsvæðinu. Er það ekki mjög merkilegt?

Ekki er sparað þegar grafin eru göngu úti á landsbyggðinni. Ekki er sparað þegar ráðast á í nýjar virkjanir og ný fjárfetsingarævintýri. Þar ræður stóriðjan för enda virðist stóriðjan hafa ríkisstjórnina eins og hún leggur sig í vasanum.

Það má spyrja frómrar spurningar: til hvers var verið að selja Landsímann á sínum tíma? Var það vegna þessa að meira skipti að selja og koma þessu mikilvægafyrirtæki í hendurnar á vildarvinum Sjálfstæðisflokksins Símann fremur en að efna þau fyrirheit sem til stóðu?

Við Íslendingar sitjum uppi með einkennilega ríkisstjórn ekki aðeins einkennilegra heldur öllu fremurhóp viðsjárverða stjórnmálamanna. Þeir hafa komist upp með alls konar lygar og ómerkilegheit sem eru þeim ekki til mikillar framdráttar. Þeir hafa jafnvel um sig trúði, fyrrum tugthúslim til að slá ryki í þá sem kannski gætu fylgt þessum ótrausta stjórnmálaflokki að málum. Þeir segja eitt í dag en framkvæma allt annað á morgun.

Nú miklast þeir sig af því að hyggjast koma á fót stærsta þjóðgarði Evrópu á fót. Með brögðum hafa þeir þó undanskilið ýms þau landsvæði sem efalaust eru hluti af stærri heild merkilegra náttúruundra. Þannig eru undanskilin Langisjór, Kverkárrani og helst af öllu hefði þurft að taka allt Kárahnjúkasvæðið með  Dimmugljúifrum með. Eins og kunnugt er, hefur Sjálfstæðisflokknum með Framsóknarflokknum tekist að eyðileggja nánast allar þessar merku jarðfræðiminjar með sínu glapræði. Og þessi stjórnmálaöfl ætla sér einnig að leggja Langasjó undir stóriðjuna. Ekkert er  heilagt! Hvers vegna? Það skyldi þó ekki vera að stóriðjan er með íslensku ríkisstjórnina í vasanum?

Ýmislegt bendir til slíks:

Í fyrrasumar kom Alþingi Íslendinga saman til sumarþings. Meginverkefni þingsins var málefni skattaumhverfi stjóriðjunnar á Íslandi. Í árdaga stóriðju á Íslandi var lagður á álbræðsluna í Straumsvík sérstakur skattstofn: framleiðslugjald á hvert framleitt tonn af áli. Nú hefur Sjálfstæðisflokkurinn lagt sig sérstaklega fram að lækka stórlega tekjuskatt á fyrirtækin í landinu sem er góðra gjalda vert en nú er svo komið að tekjusakttur á fyrirtæki er óvíða jafn lágur og hér á landi. Hins vegar er tekjuskattur á einstaklinga óvíða jafn hár og hér á landi og kikna láglaunahópar undan skattpíningu Sjálfstæðisflokksins.

Það eru því engin undur og stórmerki að stóriðjan vildi gjarnan fá hagstæðara skattumhverfi. Og þegar í ljós kom að álbræðslan í Straumvík sparar sér um hálfan milljarð á ári með lægri skattgreiðslum þá var frumvarp samið en það var látið daga uppi fyrir síðustu þingkosningar til að draga ekki óþarflega mikla athygli að því! Svo var þettafrumvarp samþykkt og rann í gegn þó svo þar hefði verið fyllileg ástæða að leggja á stóriðjuna og einnig alla mengandi starfsemi sérstakt umhverfisgjald sem nýta mætti til skógræktar og annara ráðstafan til að binda koltvísýring og önnur mengandi lofttegundir og efni.

Því miður hefur lítið sem ekkert heyrst frá ríkisstjórninni um þessi mál. Kannski hún þegir þunnu hljóði enda er það ekki stóriðjunni að skapi að lagðar séu nýjar álögur sem í eðli sínu auka kostnað og  draga þar með úr ofsagróða fyrirtækjanna. Hér nýtur stóriðjan sérkjara í skjóli vinveittrar ríkisstjórnar sem jafnvel bregður sér á leik eins og sjá mátti í Morgunblaðinu núna í morgun. Þar mátti sjá a.m.k. tvo ráðherra og einn bæjarstjóra Sjálfstæðisflokksins munda skóflur sínar til að greiða götu þessarar mengandi starfsemi á vildarkjörum á Suðurnesjum!

Séð hefur Mosi annað eins! Nú er smám saman komið nóg af því góða. 

Mosi


mbl.is Fresta nýja spítalanum?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óviðeigandi yfirlýsing alþingismanns

Einkennilegt er að þingmaður í meirihlutastjórn láti fara frá sér yfirlýsingu sem felst í gagnrýni á mikilsverðasta ráðherra samstarfsflokksins. Eiga ráðherrar ekki málfrelsi og mega þeir ekki hafa aðrar skoðanir á málum en Sigurður Kári?

Þetta svonefnda Baugsmál var pólitískt klúður frá upphafi til enda. Það á eftir að verða Sjálfstæðisflokknum til mikilla vandræða. Til þess var efnt af skammsýni og ótrúlegu offorsi. Mög mál ættu að hafa fengið meiri athygli þar sem tilefnið var ærið.

Ekki er útséð  að nokkur hafi hborið tjón af þessumáli nema skattborgarar landsins. Þeir þurfa að borga búsann. Þessi málarekstur hefur kostað offjár, þetta dekurmál eins af forystumönnum Sjálfstæðisflokksins.

Mosi 


mbl.is Sigurður Kári: Yfirlýsing ráðherra óheppileg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 7. júní 2008

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Okt. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.10.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband