Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
21.5.2013 | 17:35
Framsóknarfélagarnir leggja á ráðin
Á myndinni eru tveir framsóknarmenn. Sá til vinstri er fæddur inn í Framsóknarflokkinn, kominn af einum síðasta hermangsbraskaranum og er í dag auðugasti þingmaðurinn sem telur sig gæta hagsmuna einhverra ótilgreindra heimila í landinu. Hann situr á fremur óvirðulegri stól en sá sem er hægra megin. Hann var sem ungur liðsmaður Framsóknarflokksins ekki sáttur við forystu flokksins og vildi gera hallarbyltingu með félögum sínum. Gömlu valdaklíkurnar gripu í taumana og Ólafur var með vinum sýnum hrakinn til samstarfs við vinstri menn. Það hliðarspor reyndist Ólafi mjög reynsluríkt og skilaði honum í formannssæti róttækasta flokks á þingi, Alþýðubandalagsins. Þar gegndi hann starfi fjármálaráðherra og reyndist þar hinn ötulasti, lét innleiða virðisaukaskatt og gott ef staðgreiðslukerfi skatta var ekki á tíma komið á hans tíma. Á þessum árum þótti vera saga til næsta bæjar á einu ári voru samþykkt um tugur fjáraukalaga en þá er ríkisbókhaldi hvers árs endanlega lokað. Hafa sunir nefnt þessi fjáraukalög syndakvittanir ríkisstjórna á hverjum tíma. En í huga launamanna þótti Ólafur sýna röggsemi þegar hann lét sem fjármálaráðherra og jafnframt yfirmaður skattamála innsigla eigur stórs verktakafyrirtækis vegna vangreiddra skatta. Forstjóri þess fyrirtækis vildi láta reyna á hvort verktaka væri vsk skyld og reiknaði aldrei vask í tilboð. Það var því furðu oft sem hann varð nánast áskrifandi að flestum stærri verkefnum. Forstjórinn sendi karlana á stóru tækjunum niður á Austurvöll til að baula á fjármálaráðherrann og mótmæla aðgerðum. Eru þetta sennilega ein fyrstu mótmæli á Íslandi sem voru vélvædd a.m.k.
Það þykir því við hæfi að forsetinn sitji á virðulegum armastól meðan Sigmundur Davíð verður nánast að láta sér nægja hornið á stólnum þeim óvirðulegri.
![]() |
Forsetinn fundar með Sigmundi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.5.2013 | 12:10
Lítt skiljanlegur forseti
Síðustu 4 árin hefi eg ekkert botnað í Ólafi Ragnari. Hann skammar Gordon Brown nú nýverið þegar FJÖGUR ÁR VORU LIÐIN FRÁ ÞVÍ HANN LÉT AF EMBÆTTI OG Í DAG ER MR. GORDON BROWN ALGJÖRLEGA VALDALAUS Í BRETLANDI!
Hefði Ólafur Ragnar verið hyggnari, hefði hann átt að setja gagnrýni sína fram fyrir fjórum árum en ekki núna þegar það skiptirengu máli máli. Eða telur Ólafur Ragnar vera orsakasamhengi í að Gordon Brown beitti sér á sínum tíma vegna aðgerðaleysis ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokksins í aðdraganda bankahrunsins og þeirra vogunarsjóða sem nú eiga stóra hluti í Arion og Íslandsbanka? Ekki sé eg orsakasamhengið þarna á milli.
Hins vegar er einkennilegt að Ólafur Ragnar sjái hve þvílíkur snillingur Sigmundur Davíð er! Að hann sé eini stjórnmálaforinginn sem telur færa leið að sækja stórfelldar fúlgur í hendur braskara til að borga vandræðaskuldir lánþega. Og kosningalofoðrin voru einhver þau þokukenndustu sem nokkru sinni hafa sést á Íslandi. Hefði verið auðveldara og gáfulegra að gefa frá sér kosningaloforð um gott veður framundan sem engum heilvita manni hefur dottið í hug.
Í mínum huga er Ólafur Ragnar beint og óbeint stuðningsmaður Framsóknarflokksins. Allar gerðir hans og ákvarðanir miðast við að allt komi Framsóknarflokknum vel. Hann leiddi stjórnarandstöðuna þegar hún var bæði reikul og ráðalaus. Með því að spinna upp einhverja furðulega söguskýringu um Icesave, tókst að draga fremur lítilsháttar mál niður í tilfinningalegan táradal en alltaf var ljóst að nægir fjármunir voru til, alla vega nokkurn veginn fyrir forgangskröfunum. Hins vegar var nánast engar umræður um miklu alvarlegra mál sem var þagað af braskaralýðnum sem tengist Framsóknarflokknum og Sjálfstæðisflokknum, nefnilega Magma málið. Með því var erlendum braskara leyft að kaupa á vildarkjörum afnot af náttúruauðlindum á Reykjanesskaga og er þetta meginskýringin hvers vegna svo hart er sótt að gjörnýta allan jarðhita sem þar er, langt umfram eðlileg afnot. Þarna telja jarðhitasérfræðingar verði með rányrkju jarðhitinn nánast eyðilagður með of mikillri nýtingu í stuttan tíma. Og hvert fer arðurinn? Auðvitað beina leið úr landi, fjármunir sem nema margföldum skuldunum kenddum við Icesave.
Ólafur Raganr hefði mátt ígrunda öll þessi mál margfalt betur. Hann hefur ekki staðið undir þeim væntingum sem eg taldi hann hafa að bjóða fyrir nær 17 árum þá hann bauð sig fram til þessarar vandasömu þjónustu. Hann hefði mátt stoppa Kárahnjúkavirkjunina sem eru stærstu afglöp íslenskra stjórnmálamanna í atvinnuuppbyggingu þar sem hvert starf í álbræðslu kostaði um 500 milljónir!
Nú hefur hann falið hinum brosandi Sigmundi Davíð myndun ríkisstjórnar með öðrum brosandi stjórnmálamanni, Bjarna Benediktssyni. Mætti þessi ríkisstjórn vera nefnd BROSKALLASTJÓRNIN.
![]() |
Forsetinn hreifst af Sigmundi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.5.2013 | 18:55
Broskallarnir
Þessi tilvonandi ríkisstjórn mætti gjarnan vera kennd við broskallana. Þeir félagarnir Bjarni Benediktsson og Sigmundur Davíð hafa verið brosandi út að eyrum í hvert sinn sem þeir sjá myndavél á lofti. Nú hafa þeir verið í þrjár vikur að finna leið til að draga þessa gömlu samstarfsflokka saman. Svo virðist að töluverðir hnökrar séu á enda kosningaloforð Sigmundar mjög óraunhæf. Sennilega reynir Bjarni að tryggja hag Sjálfstæðisflokksins og koma í veg fyrir að sér og SJálfstæðisflokknum verði ekki kennt um ef ekki tekst að efna loforðavaðal Sigmundar.
Því miður er reynslan sú, að allt of fáir gera sér ljóst að þegar verið er að hella sér út í skuldir, er verið að ráðstafa tekjunum fyrirfram. Framsóknarflokkurinn hefur að verulegu leyti byggt kosningamaskínu sína á einhverju gervigóðæri með lánum. Fyrir áratug beitti Framsóknaflokkurinn sér fyrir 110% lánum. Nú á að afskrifa eða færa niður höfuðstól lánanna. Það verður á kostnað þeirra sem lítið eða ekkert skulda. Eignir sparifjáreigenda og lífeyrissjóða rýrnuðu verulega í hruninu sem þessir tveir stjórnmálaflokka báru siðferðislega ábyrgð á.
Nú sjálfsagt fæðist lítil ríkisstjórnarmús. Byrjað verður að rífa sem mest niður sem ríkisstjórn Jóhönnu verið að beita sér fyrir hagræðingu í stjórnsýslu með fækkun ráðuneyta. Hagsmunir Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks ganga þvert á hagsmuni þjóðarinnar enda þarf að koma sem flestum vildarvinum að kjötkötlunum, kljúfa ráðuneyti og fjölga ráðuneytum með tilheyrandi kostnaði.
Við verðum að þrauka í 4 ár að bros broskallana gufi upp í alvöru lífsins. Það er ekki auðvelt að hefja hrunadansinn að nýju þó vilji sé fyrir því.
![]() |
Tíðinda er að vænta innan skamms |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.5.2013 | 23:15
Dapurleg reynsla af löglegu siðleysi
Því miður er það staðreynd að löglegt er að beita aðferðum við að losa sig við reynda starfsmenn með vafasömum og siðlausum aðferðum. Þetta ætti að vera hvatnig til flestra að losa tengsl sín við þau fyrirtæki sem beita svona aðferð til að hagræða í rekstri sínum. Auðvitað reyna fyrirtæki að fá ungt fólk sem oft hefur litla og jafnvel enga reynslu. Það er ódýrari vinnukraftur og auk þess unnt að krefjast meira af því en eldri og reyndari starfsmönnum. Sjálfur hefi eg reynslu af að leita mér vinnu í mínu fagi eftir að hafa misst vinnu vegna einkavæðingar opinberrar stofnunar árið eftirminnilega 2008. S.l. 4 ár er eg í nákvæmlega sömu stöðu nú í dag og fyrir 4 árum: ekkert starf í mínu fagi fengið þrátt fyrir marga tugi umsókna um laust starf. Í a.m.k. einu tilfelli var nemi ráðinn þrátt fyrir að í auglýsingu væri skýrt tekið fram að leitað væri að umsækjanda með tilskilin atvinnuréttindi! Og var þetta hjá opinberri stofnun! Nú er svo komið að eg er hættur að láta mig dreyma um nokkurt starf á mínu fagsviði enda kominn á sjötugs aldurinn, hver vill ráða gamlan sérvitring? Eg reyni að vinna mér í haginn við að hafa tekjur af öðru, t.d. ferðaþjónustu yfir sumartímann og ritstörfum.
Einkafyrirtækin eru sennilega rekin með enn þrengri sjónarmiðum en hjá því opinbera þar sem kunningsskapur og jafnvel pólitík kunna að skipta máli. Fólk á ekki að vera að skipta sér af neinu, helst halda kjafti og kjósa lýðskrumarana. Og ekki batnar það þegar broskarlarnir sem nú eru í stjórnarmyndunarleik, tekst það sem þeir stefna að. Ætli dragi úr klíkuskap og spillingu?
![]() |
Sagt upp eftir 25 ára starf |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.5.2013 | 18:35
Gömul verkefni slökkviliðsmanna
Þessi frétt minnir mig á árin þegar eg ólst upp í Austurbæ Reykjavíkur fyrir langt löngu. Víðast hvar voru tréstaurar, bæði fyrir rafmagn og síma. Mjög oft klifruðu kettir upp í staurana og treystu sér ekki niður. Varð þá að kalla í brunaliðið eins og slökkviliðið var gjarnan nefnt á þeim árum. Þetta var hin besta skemmtun og afþreying barna að horfa á liðsmenn Slökkviðiðsins koma með gamla stigabílinn með ekta bjöllu svo unnt var að senda mann upp í stigann til að bjarga köttunum. Hugðust margir strákar verða brunaliðsmenn þegar þeir yrðu stórir, ekki til að sinna brunaútköllum og slökkva elda, heldur að bjarga ólánssömum köttum úr timburstaurunum! Þessi áhugi fyrir starfi í Slökkviliðinu hefur sjálfsagt dofnað hraðfara eftir að rafmagn og sími var grafin í jörð og stálstaurar tóku við hlutverki tréstauranna vegna raflýsingar.
Segja má að þarna hafi slökkviliðið sinnt gömlu verkefni sem nú kemur sárasjaldan til en minnir á þennan horfna heim bernskunnar.
![]() |
Ketti bjargað af húsþaki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.5.2013 | 13:58
Gríðarleg breyting á umhverfi
Þegar slegið er upp Grand Inga má sjá út á hvað þessar framkvæmdir ganga:
Inga fossinn er tæpra 100 metra hár í Kongó ánni og er um 4 km breiður. Þarna falla yfir 40.000 rúmmetrar á sekúndu eða meira en 100 falt vatnsrennsli Þjórsár! Í vatnavöxtum hefur verið áætlað að yfir 70.000 tonn renni þarna á sekúndu. Þannig að þarna verður kjöraðstæður að byggja gríðarlega stórt vatnsorkuver, það stærsta sinnar tegundar í heiminum.
Áætlunin er að byggja virkjunina í a.m.k. 3 áföngum og eftir þann síðasta verði framleidd þarna um 39.000 MW í 52 túrbínum sem hver um sig framleiðir umtalsvert meira en allar túrbínur Kárahnjúkavirkjunar til saman! Er áætlað að um 500 milljónir heimila muni njóta góðs af þessari virkjun í mest allri Afríku. Dreifikerfið mun ná til Egyptalands í norðri, Nígeríu í vestri og Suður Afríku í suðri.
Áin fellur í raun í mörgum fossum og rennum, sumum neðanjarðar að hundruðum skiptir. Milli þeirra eru fjöldinn allur af hólmum, litlum eyjum og björgum. Sjálfsagt verður eftirsjá að þessum fossum en spurning hvort þurfi að ráðast í þessa gríðarlegu virkjun nema annað sé haft í huga t.d. stóriðja.
Sjálfsagt eru komnir til sögunnar stórhuga stjórnmálamenn í Afríku sem klifa á sama söngnum og kollegar þeirra á Íslandi: Að koma hjóli atvinnulífsins af stað.
Athygli vekur að kínverskir verktakar hafa þessa framkvæmd með höndum ásamt fleirum m.a. í Suður Evrópu. Fjárfestingar Kínverja í Austur Afríku kallar á þessa framkvæmd. Spurning hvort ekki verða gífurlegar breytingar eftir þessar framkvæmdir þegar mikil landflæmi hafa verið lögð undir uppistöðulón og ljótar rennur gegnum frumskóginn fyrir rafmagnslínur.
Heimildir auk netútgáfu Morgunblaðsins:
http://news.bbc.co.uk/2/hi/business/7358542.stm
http://www.worldwaterfalldatabase.com/waterfall/Inga-Falls-660/
http://en.wikipedia.org/wiki/Inga_dams
![]() |
Heimsins stærsta vatnsaflsvirkjun í Kongó |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.5.2013 | 13:09
Íþróttafrétt?
Hér er greinilega um grafalvarlegt sakamál að ræða þar sem íþróttamaður kemur við sögu. En tengslin við íþróttir er engin önnur.
Oft er vikið að fjármálum íþrótta og þau flokkuð sem íþróttir! Það væri eðlilegra að hafa undirflokk þar sem væri viðkomandi efni væri.
![]() |
Danilovic í lífshættu eftir árás |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.5.2013 | 12:02
Raunhæfar forsendur
Fjölgun ferðamanna til Íslands hefur verið gríðarleg á undanförnum árum. Flestir koma hingað til að skoða náttúru landsins og sérstöðu hennar. Ísland er auk þess vel í sveit sett með meðallangar ferðir frá Evrópu.
Nú ber að að vara við of mikillri bjartsýni að telja að uppgangur verði áframhaldandi eins og verið hefur undanfarin ár. Ýmislegt getur komið til að Ísland falli í vinsældum ferðafólks og það leiti annað. Þannig ber að gjalda varhug við að gengið sé öllu lengra við að fórna náttúru landsins í þágu stóriðjunnar. Hingað kemur fólk yfirleitt ekki til að skoða stíflur, uppistöðulón og rafmagnslínur og þaðan af síður álbræðslur nema kannsi örfáir.
Þá skiptir gríðarlegu máli hvernig við tökum á móti ferðamönnum og hvernig ástandið er og aðstæður eru t.d. á ferðamannastöðum, gististöðum, farartækjum og vegum þar sem ferðafólkið fer um. Hvalveiðar geta t.d. skipt máli og getur verið ákvörðunarástæða hvort fólk komi hingað. Þannig eru Bandaríkjamenn viðkvæmir fyrir hvalveiðum. Nú eru t.d. hrefnuveiðimenn nánast að keppa um að veiða sömu dýrin og verið er að sýna útlendingum! Menn geta ekki bæði sleppt og haldið.
Eg hefi reynslu meira en 20 sumur sem leiðsögumaður erlendra ferðafólks hér á landi. Því miður virðist vera nokkuð gullgrafaraæði ríkt í þessari atvinnugrein, sumir hafa reist sér hurðarás um öxl og ná ekki að standa í skilum við banka vegna óraunhæfra framkvæmda. En sem betur fer eru mörg ferðaþjónustufyrirtæki sem hafa byggt upp starfsemi sína í áföngum, ekki framkvæmt nema fyrir lágmarkslánsfé. Má nefna t.d. Ferðaþjónustu bænda sem byrjaði starfsemi sína nánast á engu en hefur byggst upp smám saman og er í dag ein af traustustu stoðum íslenskrar ferðaþjónustu.
Margir athafanmenn vilja koma á fót stórum hóteleiningum t.d. gamla Landssímahúsið við Austurvöll. Þar er aðkoma fyrir hópferðabíla, aðföng og þjónustu meira og minna allan sólarhringinn mjög torveld.
Þessi fyrirtæki þarf að reka meira og minna allt árið og margir virðast hafa yfirsést það.
![]() |
Ekki fráleitt að fá 2 milljónir gesta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.5.2013 | 21:38
Hverjir kom okkur út úr hruninu?
Svo virðist sem ýmsir hafi gleymt því gjörsamlega hverjir það voru sem komu okkur út úr hruninu. Er virkilega til þjóð sem launar björgunarstarfið með lygum og blekkingum?
Svo virðist sem hrunflokkarnir séu aftur að reyna að komast til valda til að skara að eigin köku.
Illugi þingmaður Sjálfstæðisflokksins var kannski ekki sá aðili sem telst vera fulltrúi braskaranna en hann tekur að sér málssvörn þeirra með því að snúa út úr orðum Steingríms.
Nú byrjar brall braskaranna á ný með tilheyrandi blekkingum og spillingu.
![]() |
Skynsamari en Steingrímur telur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.5.2013 | 21:20
Ferðamannakort
Mjög skynsamleg leið væri að ferðamenn kaupi sér ferðamannakort sem væri verðlagt með hliðsjón af hve löng dvöl þess er löng. Þannig ættu þeir sem koma hingað með skemmtiferðaskipum og dvelja hér kannski í Reykjavík og aftur á Akureyri dag á hvorum stað, fara í dagsferð að greiða lægsta gjald. Þeir sem dvelja 2 vikur eða jafnvel lengur, greiði hærra gjald. Innifalið í þessu korti væri aðgangur að þjóðgörðum,friðlöndum og þeirri þjónustu sem þar er boðið upp á þ. á m. salernisþjónustu.
Gjaldið væri frá 10-30 Evrur fyrir hverja Íslandsferð og er aðalmálið að sem flestir og helst allir sætti sig við það. Gjald sem þetta er víða innheimt og er reynsla mín af ferðaþjónustu sem leiðsögumaður meira en 20 sumur að mörgum þyki einkennilegt að ekkert skuli vera innheimt.
Sá sem vill skoða söfn sem innheimta aðgangseyrir eins og byggðasöfn greiði álag og væri þá aðgangseyrir eðlilega innifalinn.
Auðvitað gengur illa að hver aðili rukki fyrir sig. Þannig hefur verið krafist 200 króna gjalds fyrir not á salernum á Hakinu við Þingvöll. Og ekki er ásættanlegt að verið sé að rukka fyrir aðgang að Hveraröndinni, Grjótagjá, og Dettifossi þar sem salernisaðstaða er annað hvort engin eða ófullnægjandi. Við Dimmuborgir er aðstaðan góð en þyrfti að bæta með hliðsjón af fjölgandi ferðamönnum.
Hagræðið við að innheimta gjaldið einu sinni er augljóst. Það fylgir töluverður kostnaður að innheimta gjald og gæti eg vel trúað að tekjurnar geri lítt betur en að standa undir þeim kostnaði.
![]() |
Stjórnvöld sjái um gjaldtöku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Siðvæðing í stjórnmálum
Nýjustu færslur
- 24.11.2014 Hvar er jafnréttið?
- 7.11.2014 Er réttarríki á Íslandi?
- 27.10.2014 Byssumálið: krefjumst opinberrar rannsóknar
- 8.10.2014 Sekur eða saklaus?
- 8.9.2014 Jón og séra Jón
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
-
Aðalsteinn Sigurgeirsson
-
Alfreð Símonarson
-
Andrea J. Ólafsdóttir
-
Andrés Kristjánsson
-
Andri Geir Arinbjarnarson
-
Anna Benkovic Mikaelsdóttir
-
Arnar Pálsson
-
Axel Jóhann Hallgrímsson
-
Ágúst H Bjarnason
-
Ágúst Ólafur Ágústsson
-
Árni Þór Sigurðsson
-
Ásgeir Eiríksson
-
Ásgeir Rúnar Helgason
-
Baldur Hermannsson
-
Baldur Kristjánsson
-
Baldvin Jónsson
-
Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
-
Berglind Steinsdóttir
-
Birgir R.
-
Bjarki Steingrímsson
-
Bjarni Harðarson
-
Bjarni Kristjánsson
-
Björgvin Björgvinsson
-
Björgvin Guðmundsson
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
busblog.is
-
Bwahahaha...
-
Dagný
-
Einar Ólafsson
-
Gammur drils
-
Guðfríður Lilja
-
Guðjón Baldursson
-
Guðjón Petersen
-
Guðmundur Steingrímsson
-
Guðsteinn Haukur Barkarson
-
Halldór Sigurðsson
-
Hallvarður Ásgeirsson
-
Haraldur Haraldsson
-
Heidi Strand
-
Helga Auðunsdóttir
-
Helgi Þór Gunnarsson
-
Herdís Þorvaldsdóttir
-
Hilmar Gunnlaugsson
-
Hjörleifur Guttormsson
-
Hlynur Hallsson
-
Hrannar Björn Arnarsson
-
Hvíti Riddarinn
-
Högni Snær Hauksson
-
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
-
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
-
Jakob Falur Kristinsson
-
Jens Guð
-
Jón Bjarnason
-
Jón Halldór Guðmundsson
-
Jón Ingi Cæsarsson
-
Kaffistofuumræðan
-
Karl Tómasson
-
Kjartan Pétur Sigurðsson
-
Kristbjörg Erla Hreinsdóttir
-
Kristbjörn Árnason
-
Lára Hanna Einarsdóttir
-
Lára Stefánsdóttir
-
Loftslag.is
-
Lúðvík Júlíusson
-
María Anna P Kristjánsdóttir
-
María Kristjánsdóttir
-
Máni Ragnar Svansson
-
Morgunblaðið
-
Ólafur Ingólfsson
-
Ólafur Þór Gunnarsson
-
Ólafur Örn Jónsson
-
Ómar Bjarki Smárason
-
Ómar Ragnarsson
-
Ósk Vilhjálmsdóttir
-
Perla
-
Pjetur Hafstein Lárusson
-
Rúna Guðfinnsdóttir
-
Sigurður Hreiðar
-
Sigurður Ingólfsson
-
Sigurjón Þórðarson
-
Steingrímur Helgason
-
Svanur Jóhannesson
-
Sveinn Atli Gunnarsson
-
Theo
-
Torfusamtökin
-
Trausti Jónsson
-
Umhverfis- og náttúrufræðifélag Mosfellsbæjar
-
Úrsúla Jünemann
-
Valdís Jóhanna Guðbjartsdóttir
-
Vefritid
-
Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock)
-
Þorsteinn Briem
-
Þorsteinn Erlingsson yngri
-
Þorsteinn Siglaugsson
-
Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
-
Ævar Rafn Kjartansson
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.6.): 10
- Sl. sólarhring: 11
- Sl. viku: 17
- Frá upphafi: 243912
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar