Hrikalegt

Hvers vegna í ósköpum er gjaldskrá hjúkrunarheimilis tekjutengd? Er eitthvað réttlæti í því að mismuna fólki eftir efnahag hvort sem það eig e-ð sparifé, lífeyri eða hafi einhverjar tekjur?

Þessi fjárhæð 240 þús. er mjög vel smurð svo ekki sé meira sagt. Því miður er einkavæðing þjónustu sem hefur verið hluti af samfélagsþjónustu okkar eitthvað sem okkur venjulegum Íslendingum er ekki að skapi. Er hægt að hafa fólk að féþúfu af þeim sem reka þessa starfsemi?

Sjálfsagt er fyrir flesta Íslendinga að kvíða þeim tíma þegar við verðum eldri og lasburða, vera algjörlega háð öðrum þar sem allt er sett undir mælistiku fjármagnsins. Makinn þarf auðvitað að hafa tækifæri að geta framleitt sér og hafa áhyggjulaust líf. 

Mosi


mbl.is Eiginkonurnar settar út á götu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristján P. Gudmundsson

Ég held, að Sjálfstæðisflokkurinn megi þakka fyrir að vera sendur í frí. Brátt tekur við stjórn vinstri flokka allrahanda og þá getur fólk, sem lagt hefur fyrir til að eiga áhyggjulaust ævikvöld farið að biðja fyrir sér og sínum. Ekki var ástandið gott, er Sjallar og Samfó slitu sambúð, en það verður enn verra árið 2013, er VG og SF hrökklast frá, held ég því miður fyrir aldna sem unga.

Með kveðju, KPG.

Kristján P. Gudmundsson, 16.3.2009 kl. 17:09

2 Smámynd: Hilmar Gunnlaugsson

Það er ekki réttlæti í að mismuna nokkrum manni. Svo virðist að hægt sé að hafa menn eins og Stefán að féþúfu ef þeir hafa nóg á milli handana. Þessu þarf að breyta.

Hilmar Gunnlaugsson, 16.3.2009 kl. 20:45

3 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Tek undir með Kristjáni að fáum stjórnmálaflokkum er jafn hollt að komast í langt frí frá Stjórnarráðinu og Sjálfstæðisflokknum. Varðandi þessa hrakspá þína Kristján, þá má geta þess að svonefnd Þjóðarsátt var gerð ári áður en Sjálfstæðisflokkurinn komst með tærnar inn í Stjórnarráðið. Þeirri vinstri stjórn sem þá var við völd, hafði tekist það óvenjulega: að koma á góðum sáttum milli verkalýðshreyfingarinnar og vinnuveitenda á traustum og varanlegum grunni. Það var svo barnaskapurinn í Jóni Baldvin að slíta þeirri stjórn og fá Davíð lyklana að Stjórnarráðinu. Tilgangurinn var að samþykkja aðild að EES. Því miður var ekki gengið nógu vel frá þeim málum sem komu okkur síðan í koll í fyrra að aldrei mun gleymast. Ríkisstjórn Samfylkingar og VG á eftir að sýna kosti sína betur og sanna. Á hálfum öðrum mánuði hefur meira verið gert í endurreisninni en hálft áriuð áundan. Sjálfstæðisflokkurinn var gjörsamlega meðvitundarlaus á fullri ferð í brimrótið. Þar var ekkert aðhafst en látið reika á reiðanum. Sjálfstæðisflokkurinn getur að því virst vera, aðeins stýrt landinu þegar vel árar.

Samála þér Hilmar að þessu fyrirkomulagi um hversu langt megi ganga að innheimta úr hendi aldraðra og lasburða verður að breyta. Þar verður að setja einhver skynsamleg og sanngjörn mörk.

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 17.3.2009 kl. 09:36

4 Smámynd: Kristján P. Gudmundsson

Guðjón, þetta er rétt hjá þér með þjóðarsáttina, hún var gerð í tíð vinstri stjórnar og blessuð sé minning þeirra manna, sem komu þar að og fallnir eru frá. Komi álíka heiðursmenn aftur til áhrifa , þá skiptir mig engu, hvaða flokksskírteini þeir bera. Aðalatriðið er að bjarga þjóðinni frá frekari áföllum og laga það, sem úr skorðum er gengið, þá mega allir vel við una.

Með kveðju, KPG.

Kristján P. Gudmundsson, 20.3.2009 kl. 09:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 45
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 44
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband