Hvað með ókeypis í strætó?

Þegar fréttir berast úr Kópavogi stórbokkanna leggja flestir við hlustir: Nú heyrist að atvinnulausir fái frítt á bókasafnið í hálft ár og frítt í svitastöðvarnar. Hvers vegna ekki að bjóða upp á ókeypis kort í strætó?

Fátt kemur bæði atvinnulausum sem skynsömu fólki betur að gagni en taka sér far með strætisvögnum. En fargjöldin hafa verið spennt upp úr öllu valdi enda telur Sjálfstæðisflokkurinn með allt of mörgum fulltrúum í stjórn Strætó, að þessi rekstur „eigi að standa undir sér“. Satt best að segja hefur það hvergi í veröldinni tekist að láta almenningssamgöngur standa undir sér algjörlega.

Svona geta Sjálfstæðisflokksmenn verið gjörsamlega lokaðir fyrir staðreyndum. Sumir eru meira að segja uppteknir við að storka nágrannasveitarfélögum með því að koma sér upp upp vatnsveitu að þeir höggva í burtu heilu skógana í nær skóglausu landi eða með óskynsamlegri hafnarstarfsemi og sinnuleysi vegna umhvefismála.

Mosi


mbl.is Atvinnulausum boðið á bókasafnið og í ræktina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Berglind Steinsdóttir

Getur ekki verið að almenningssamgöngur standi undir sér ef maður reiknar með mengun, slit á vegum, mannslíf, heilbrigðiskostnað og kostnað við mannvirki á gatnamótum? Er eðlilegt að mæla kostnaðinn bara út frá fargjöldum á móti rekstrarkostnaði farartækisins sjálfs og launa bílstjóranna og yfirbyggingar?

Berglind Steinsdóttir, 3.3.2009 kl. 21:18

2 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Þarna erum við sammála Mosi /en af hverju var ekki frítt á strætó þegar R listin var við völd i R.vik í 12 ár /Kveðja Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 4.3.2009 kl. 17:56

3 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Berglind: Sjálfsagt gætum við reiknað fjöldann allan af málum sem við gætum sparað á móti. Einu mætti bæta við sem mörgum finnst ekki skipta miklu: Sunnarlega í Mosfellssveit eru grjótnámur þar sem verið er að eyðileggja fagurt stuðlaberg. Þarna er sótt hráefni í malbikið sem nagladekkin eiga drjúgan þátt í að spæna upp. Hef lengi verið að reyna að fá þetta stuðlaberg friðað en án árangurs.

Nú væri gott að fá „aðgerðarsinnana“ að vekja athygli á þessu!

Haraldur: Þessari hugmynd var komið á framfæri en ekki þótti rétt að „storka“ Sjálfstæðisflokknum. Það er nefnilega svo að í 7 manna stjórn Strætó eru 5 frá Sjálfstæðisflokknum! Þeir hefðu aldrei samþykkt svona „vitleysu“ að gefa frítt í Strætó.

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 5.3.2009 kl. 11:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 242940

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband