Er Össur sífellt að skipta um skoðun?

Fyrir síðustu kosningar lagði Samfylkingin áherslu á stóriðjustopp. Nú virðist Össur hafa gengið fram fyrir skjöldu og tekið ákvörðun fyrir ríkisstjórnina að gefa út leyfi.

Alþjóðlegi gjaldeyrissjóðurinn hefur bent á að meginástæður fjárhagsvandræða Íslendinga sé stóriðjudraumarnir sem eru einfaldlega allt of stórir og umfangsmiklir fyrir litla þjóð. Það er merkilegt að Alþjóðlegi gjaldeyrissjóðurinn staðfestir sjónarmið Vinstri Grænna þegar umræður um Kárahnjúkavirkjunina stóðu sem hæst. Nú vill Össur sem sagt vaða enn út í þetta botnlausa fen án þess að búið sé að ganga frá öllum fjárhagsmálum og skuldbingingum við Imregíló, ítlaska verktakafyrirtækið. Lokareikningurinn er enn ókominn og við VG höfum lengi óttast að sá reikningur verði ekki nein gustuk. Þar óttumst við að þar verði vel smurt á enda voru útboðsgögn ónákvæm og verkið allt mun umfangsmeira og dýrara fyrir vikið. Alþjóðlegi gjaldeyrissjóðurinn hefur ábyggilega vitneskju um þessa staðreynd.

Kannski að nátttröllið Össur átti sig á afglöpunum og geysist nú fram og húðskammi iðnaðarráðherrann Össur fyrir þetta ótímabæra óðagot. Stóriðja bjargar engu, hún dregur kannski úr verkjunum um tíma en skítt er að bæta gráu ofan á svart. Nóg er komið af mistökum í efnahagsmálum Íslendinga.

Mosi

 


mbl.is Helguvík í gang 2011
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurbjörg

Er eitthvað að marka kosningaloforð Samfylkingarinnar síðustu?

Össur virðist vera með orkuna á heilanum og setur það í samhengi við stóriðju. Sagðist hann ekki ætla að verða næsti olíumálaráðherra Íslands?  Oft er sagt að öllu gamni fylgi alvara,.. kanski er það svo um þessi ummæli hans.

Sigurbjörg, 4.1.2009 kl. 00:14

2 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Þakka þér Sigurbjörg fyrir góða athugasemd.

Við þetta mætti bæta:

Einhverju sinni sagði Ólafur Thors á kosningafundi en hann var lengi þingmaður Gullbringu- og Kjósarsýslu, eitthvað á þá leið, að Alþýðuflokkurinn væri eins og harmonikka. Fyrir kosningar væri hún útdreginn full af kosningaloforðum en eftir kosningar heyrðist lítið um þau enda belgurinn ekki lengur þaninn. Einn kjósandi spurði Ólaf hvort hann hyggðist spila á þessa Alþýðuflokksharmónikku. „Jú en eftir kosningar“ svaraði þessi orðheppna þingkempa.

Samfylkingin varð eins og kunnugt er til við samruna Alþýðuflokks og hægri arm Alþýðubandalagsins og miðju Kvennaflokks. Vinstri armar þessara flokka sameinuðust aftur í Vinstri grænum en hægri armur Kvennaflokksins og sá fámennasti rann inn í Sjálfstæðisflokkinn.

Spurning hvort Geir Haarde hafi ekki verið að spila á Samfylkingarharmónikkuna síðustu misserin.

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 5.1.2009 kl. 16:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 38
  • Frá upphafi: 242985

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband