16.12.2008 | 09:58
Mótmælin á Austurvelli
Síðasta laugardag voru mótmælin á Austuvelli mjög sérstök: þögn í 17 mínútur og Hörður Torfason skipuleggjandi mótmælanna las ártölin frá og með 1991 og upp úr með mínútu millibili. Þá hringdi vekjaraklukka á tröppu þinghússins. Hörður kallaði hátt og snjallt: Þjóðin er vöknuð!
Þetta var áhrifamikið.
Við hjónin höfðum haldið á sitt hvoru spjaldinu. Á þeim stóð: Það á að segja satt og Öll spilin á borðið. Eftir fundinn gengum við um bæinn. Ákváðum að skilja spjöldin eftir sitt hvoru megin við aðalinnganginn að Stjórnarráðshúsinu. Tókum meðfylgjandi mynd til minningar. Gengum síðan upp Bakarastíg eða öllu heldur Bankastræti og áfram Laugaveg og um Skólavörðuholtið. Neðarlega á Skólavörðustíg var Lúðrasveitin Svanur að spila. Þá gengum við niður að Stjórnarráðshúsinu: spjöldin höfðu verið fjarlægð!
Nú má reikna með að á nýju ári verði mótmælin kröftugri. Þá bætist í hópinn margir þeir sem núna eru að vinna síðustu vikurnar sínar áður en uppsögn starfa tekur gildi. Ríkisstjórnin er reikul og ráðlítil enda vandinn gríðarlegur. Braskaranir sem ríkisstjórnin er fulltrúi fyrir vænta þess að með þrásetunni verði þeim fremur hlíft og þá geta þeir reitt e-ð í kosningasjóðina í næstu kosningum. Spillingin heldur áfram í stað þess að hún verði upprætt í samfélaginu eins og þörf væri á. Kannski ætti að fá prest til að halda ræðu þar sem hann biður guð að blessa ríkisstjórnina eins og reyndar allir prestar landsins hafa verið að stunda baki brotnu. Kannski Örn Bárður Jónsson sóknarprestur væri heppilegur enda átti hann óbeint þátt í einhverri einkennilegustu deilu sem komið hefur upp við Davíð seðlabankastjóra. Örn ritaði frábæra grínsögu: Íslensk fjallasala og birtist í Lesbók Morgunblaðsins. Með þessari sögu varð Örn þjóðkunnur um allt Ísland en þurfti að gjalda fyrir því þáverandi forsætisráðherra beitti sér fyrir því að hrekja Örn úr starfi sem hann gegndi þá. Góð saga getur því verið dýr. Stjórnmálamenn þola ekki alltaf gagnrýni jafnvel þó hún sé sett fram sem grín. Gott hefði verið að þjóðin hefði þá vaknað af blundi eftir að hafa Davíð sem forsætisráðherra þá nær áratug. Þá hefði verið mikil líkindi til að forða þjóðinni frá þeirri fjárhagslegu kollsteypu sem við höfum lent í.
Fyrir um aldafjórðung var fjármálamaður nokkur í Reykjavík fundinn sekur um fjársvik. Fyrirtæki hans , Ávöxtun var á svipuðum miðum og íslenskir braskarar og útrásarlýður hefur verið að stunda á undanförnum árum. Ávöxtunarmaðurinn sat inni í tukthúsi um nokkra hríð og tók út sína refsingu. En refirnir ganga lausir og hafa haft þjóðina að fíflum að undanförnu. Þeir hafa með fagurgala og falsi sölsað undir sig megineignir þjóðarinnar og við skattborgaranir verðum að gangast í ábyrgð fyrir þá bví þeir hafa komið að því er virðist vera öllum fjármunum undan í skjóli myrkurs - og ríkisstjórnarinnar.
Það er því þess vegna sem okkur Íslendingum sem teljum að á rétti okkar hefur verið brotið sé mjög mikilvægt að halda áfram mótmælum með nýjum og harðorðari skiltum. Af hverju tekur rúman klukkutíma að samþykkja nýjar álögur á landsmenn en það virðist ætla að taka heilu mánuðina að afnema ranglæti sjálftökuliðsins í Stjórnarráðinu.
Skundum á Austurvöll eftirleiðis á hverjum laugardegi og krefjumst afsagnar fulltrúa spillingarinnar og þar með brottför þeirra úr Stjórnarráðshúsinu!
Mosi
Um bloggið
Siðvæðing í stjórnmálum
Nýjustu færslur
- 24.11.2014 Hvar er jafnréttið?
- 7.11.2014 Er réttarríki á Íslandi?
- 27.10.2014 Byssumálið: krefjumst opinberrar rannsóknar
- 8.10.2014 Sekur eða saklaus?
- 8.9.2014 Jón og séra Jón
Færsluflokkar
Bloggvinir
- Aðalsteinn Sigurgeirsson
- Alfreð Símonarson
- Andrea J. Ólafsdóttir
- Andrés Kristjánsson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Anna Benkovic Mikaelsdóttir
- Arnar Pálsson
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Ágúst H Bjarnason
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Þór Sigurðsson
- Ásgeir Eiríksson
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Baldur Hermannsson
- Baldur Kristjánsson
- Baldvin Jónsson
- Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
- Berglind Steinsdóttir
- Birgir R.
- Bjarki Steingrímsson
- Bjarni Harðarson
- Bjarni Kristjánsson
- Björgvin Björgvinsson
- Björgvin Guðmundsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- busblog.is
- Bwahahaha...
- Dagný
- Einar Ólafsson
- Gammur drils
- Guðfríður Lilja
- Guðjón Baldursson
- Guðjón Petersen
- Guðmundur Steingrímsson
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Halldór Sigurðsson
- Hallvarður Ásgeirsson
- Haraldur Haraldsson
- Heidi Strand
- Helga Auðunsdóttir
- Helgi Þór Gunnarsson
- Herdís Þorvaldsdóttir
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjörleifur Guttormsson
- Hlynur Hallsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hvíti Riddarinn
- Högni Snær Hauksson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
- Jakob Falur Kristinsson
- Jens Guð
- Jón Bjarnason
- Jón Halldór Guðmundsson
- Jón Ingi Cæsarsson
- Kaffistofuumræðan
- Karl Tómasson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Kristbjörg Erla Hreinsdóttir
- Kristbjörn Árnason
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Lára Stefánsdóttir
- Loftslag.is
- Lúðvík Júlíusson
- María Anna P Kristjánsdóttir
- María Kristjánsdóttir
- Máni Ragnar Svansson
- Morgunblaðið
- Ólafur Ingólfsson
- Ólafur Þór Gunnarsson
- Ólafur Örn Jónsson
- Ómar Bjarki Smárason
- Ómar Ragnarsson
- Ósk Vilhjálmsdóttir
- Perla
- Pjetur Hafstein Lárusson
- Rúna Guðfinnsdóttir
- Sigurður Hreiðar
- Sigurður Ingólfsson
- Sigurjón Þórðarson
- Steingrímur Helgason
- Svanur Jóhannesson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Theo
- Torfusamtökin
- Trausti Jónsson
- Umhverfis- og náttúrufræðifélag Mosfellsbæjar
- Úrsúla Jünemann
- Valdís Jóhanna Guðbjartsdóttir
- Vefritid
- Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock)
- Þorsteinn Briem
- Þorsteinn Erlingsson yngri
- Þorsteinn Siglaugsson
- Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
- Ævar Rafn Kjartansson
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Allir laugardaga teknir fá fyrir mótmæli hjá mér
Kveðja
Æsir (IP-tala skráð) 16.12.2008 kl. 10:32
Hverjir eru fulltrúar spillingarinnar?
Verður Hörður Torfason næsti forsætisráðherra?
Ef hann verður það ekki mun hann þá mótmæla því, þangað til sá sem tekur við gefst upp?
Jón Halldór Guðmundsson, 16.12.2008 kl. 10:57
Ég trúi ekki að það sé ekki til fólk hér á landi sem er heiðarlegt og duglegt og gæti stjórnað landinu betur en þetta sjálftökugengið sem hefur verið við stjórn allt of lengi.
Úrsúla Jünemann, 16.12.2008 kl. 11:49
Sæll Mosi, skemmtileg færsla og æsingalaus. Mér hefur oft orðið hugsað til manna eins og örsagnahöfundarins, sem í raun var sprengdur í loft upp að ósekju, og fjármálamanna fyrri tíðar sem voru dæmdir okrarar fyrir útlán á vöxtum sem þó voru aðeins helmingur þess sem nú eru löglegir stýrivextir Seðlabanka Íslands.
En -- Bankastræti hér fyrrum Bakarabrekka.
Í annan stað? Viltu senda mér tölvupóst? Póstfangið mitt er í símaskránni. Ég þarf að fá leiðbeiningar hjá þér.
Sigurður Hreiðar, 16.12.2008 kl. 12:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.