13.11.2008 | 12:57
Góð rök hagfræðings
Jón Daníelsson á sérstakar þakkir skildar fyrir að skrifa í bresk dagblöð og útskýra fyrir Bretum hversu vafasöm rök breskra og hollenskra stjórnvalda gagnvart okkur Íslendingum er. Við getum ekki tekið á okkur allar fjármálasyndir heimsins þó svo við gjarnan vildum.
Í gær var sýnt í sjónvarpinu frá raunum þýsks sparifjáreiganda í samskiptum hans við Kaupþing. Raunalegt er ef þessi maður fær ekki fé sitt aftur. Eiginlega erum við Íslendingar í svipuðum sporum og hinir erlendu sparifjáreigendur. Við sem komin erum á miðjan aldur höfum tapað öllum okkar sparnaði sem við lögðum í að kaupa hlutabréf í bönkunum og fleirum fyrirtækjum. Innistæður okkar á peningamarkaðsreikningum hafa verið skertar verulega. Arðurinn af þessum áratuga sparnaði okkar sem við töldum okkur geta lifað af á efri árum er nánast allt farið. Sparnaður og ráðdeildarsemi hefur verið tekið frá okkur í þágu græðginnar.
Og ekki má gleyma yngri kynslóðinni sem hefur tekið rándýr lán. Nú hafa þau hækkað langt umfram það sem sanngjarnt hefði einhvern tíma talist.
Bretar hafa löngum verið þekktir að vera mjög sanngjarnir, fair gagnvart öðrum. Nú vilja þeir hins vegar refsa heilli þjóð fyrir græðgi nokkurra fjárglæframanna. Nú á að binda ekki aðeins núverandi kynslóð heldur um ókomna tíð börnin okkar, barnabörn og jafnvel enn fleiri kynslóðir í endalausa skuldasúpu. Ef Gordon Brown og stjórn hans áttar sig ekki á þessu, eru þeir ekki sjálfir orðnir þessari sömu græðgi að bráð? Fjármálaeftirlit hjá Bretum virðist ekki vera upp á marga fiska ef þeir hafa sofið sjálfir að feigðarósi.
Mosi
Ísland stendur frammi fyrir gjaldþroti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Siðvæðing í stjórnmálum
Nýjustu færslur
- 24.11.2014 Hvar er jafnréttið?
- 7.11.2014 Er réttarríki á Íslandi?
- 27.10.2014 Byssumálið: krefjumst opinberrar rannsóknar
- 8.10.2014 Sekur eða saklaus?
- 8.9.2014 Jón og séra Jón
Færsluflokkar
Bloggvinir
- Aðalsteinn Sigurgeirsson
- Alfreð Símonarson
- Andrea J. Ólafsdóttir
- Andrés Kristjánsson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Anna Benkovic Mikaelsdóttir
- Arnar Pálsson
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Ágúst H Bjarnason
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Þór Sigurðsson
- Ásgeir Eiríksson
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Baldur Hermannsson
- Baldur Kristjánsson
- Baldvin Jónsson
- Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
- Berglind Steinsdóttir
- Birgir R.
- Bjarki Steingrímsson
- Bjarni Harðarson
- Bjarni Kristjánsson
- Björgvin Björgvinsson
- Björgvin Guðmundsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- busblog.is
- Bwahahaha...
- Dagný
- Einar Ólafsson
- Gammur drils
- Guðfríður Lilja
- Guðjón Baldursson
- Guðjón Petersen
- Guðmundur Steingrímsson
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Halldór Sigurðsson
- Hallvarður Ásgeirsson
- Haraldur Haraldsson
- Heidi Strand
- Helga Auðunsdóttir
- Helgi Þór Gunnarsson
- Herdís Þorvaldsdóttir
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjörleifur Guttormsson
- Hlynur Hallsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hvíti Riddarinn
- Högni Snær Hauksson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
- Jakob Falur Kristinsson
- Jens Guð
- Jón Bjarnason
- Jón Halldór Guðmundsson
- Jón Ingi Cæsarsson
- Kaffistofuumræðan
- Karl Tómasson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Kristbjörg Erla Hreinsdóttir
- Kristbjörn Árnason
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Lára Stefánsdóttir
- Loftslag.is
- Lúðvík Júlíusson
- María Anna P Kristjánsdóttir
- María Kristjánsdóttir
- Máni Ragnar Svansson
- Morgunblaðið
- Ólafur Ingólfsson
- Ólafur Þór Gunnarsson
- Ólafur Örn Jónsson
- Ómar Bjarki Smárason
- Ómar Ragnarsson
- Ósk Vilhjálmsdóttir
- Perla
- Pjetur Hafstein Lárusson
- Rúna Guðfinnsdóttir
- Sigurður Hreiðar
- Sigurður Ingólfsson
- Sigurjón Þórðarson
- Steingrímur Helgason
- Svanur Jóhannesson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Theo
- Torfusamtökin
- Trausti Jónsson
- Umhverfis- og náttúrufræðifélag Mosfellsbæjar
- Úrsúla Jünemann
- Valdís Jóhanna Guðbjartsdóttir
- Vefritid
- Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock)
- Þorsteinn Briem
- Þorsteinn Erlingsson yngri
- Þorsteinn Siglaugsson
- Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
- Ævar Rafn Kjartansson
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 25
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 24
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Blessaður Guðjón.
Gott blogg hjá þér sem þyrfti sem fyrst að komast inní umræðuna. Þú mættir vinna þetta betur og senda þetta sem blaðagrein. Þú ert akkúrat að koma með kjarna málsins. Það er látið líta svo út að Íslendingar hafi grætt en vesalings útlendingarnir hafi bara tapað. Ekki það að ég finni ekki til með þeim, en mín samúð hefur minnkað mikið þegar ég gerði mér grein fyrir málflutningi þessa fólks. Þetta er fólkið sem tók extra áhættu og setti peninga sína inná netið, af öllum stöðum, í útlendum banka, í einkaeigu á tímum alþjóðlegrar fjármálakreppu. Fyrir hvað?; 2% meiri vexti og svo kemur það til örríkis og heimtar greiðslur bara vegna þess að stjórnvöld viðkomandi lands ( sem fóru með leyfið og eftirlitið um baktryggingar o.s.fr. ) sögðu því að gera það. Hvað kemur þjóðernið því við þegar einkabanki fer á hausinn. Akkúrat ekkert en EES samningurinn gerir málið flóknara og það var auðvelt að benda á smáþjóðina. En enginn virðist spyrja þetta fólk um dómgreind þess og ábyrgð á sínum fjárfestingum. Hvaða vitleysingur leggur æfisparnað sinn inná erlendan netbanka. Netið er fullt af svona gylliboðum og það er aðeins bjálfar sem kasta sér á þau. Leitt að segja það en það er bara svoleiðis.
En þetta eru útlendingar og íslenska minnimáttarkenndin sem hrjáir svo marga fjölmiðlamenn brýst út í spurningunni "how do you like Iceland". og svo er grátið með. Engar gagnrýnar spurningar eins og sást bestí Silfri Egils þegar Hollenskur fjárkúgari fékk að vaða þar uppi með innheimtuaðgerðir sínar. Ekkert að þessu liði dettur í hug að taka í viðtal íslenska ellilífeyrisþega sem hafa tapað stórum hluta eða kanski öllum sínum sparnaði. En auðvitað. Það er ekki hægt að byrja á að spyrja þetta fólk "How do you like Iceland". Flest af því talar ekki útlensku. Og það er ekki hægt að biðja það að tala illa um þjóð sína, kanski hnítir það í fjármálamennina en ekki þjóð sína.
Kveðja að austan.
Ómar Geirsson (IP-tala skráð) 13.11.2008 kl. 15:18
Það er nú svona með syndirnar, Mosi minn góður. Frægt er þegar Jesús heitinn Kristur leit upp frá því sem hann var að skrifa í sandinn og sagði: „Sá yðar sem syndlaus er kasti fyrstur steini á hana.“ Hún var konan sem staðin var að hórdómi, eins sjálfsagt eins og aðrar konur í hennar sporum sem drýgðu hór einar og sjálfar, karlar komu þar víst hvergi nærri. Mér hefur oft dottið þessi dæmisaga í hug í öllum þessum darraðardansi.
Já, víst er að sparnaður margra þeirra sem komnir eru á efri ár er að litlu eða engu orðinn. En það gerir hlut útlendinganna sem lögðu í íslensku bankana ekkert bærilegri. Mér finnst að þeir eigi að fá sitt og þykir í dæmi Bretanna sem þeir hafi sjálfir lagt stein í þá götu með frystingu eigna bankanna þar í landi. Ef þær hefðu strax fengist innleystar hefðu eigendur Ísbjargarreikninga líklega strax fengið pundin sín og pensin. - Ég held að ýmist hafi ýmsu verið logið að okkur í þessari sögu og þagað yfir því sem ekki var logið til um. -- Þeir sem yngri eru geta kannski unnið ögn upp í ellisjóðinn sinn aftur, ef þeir eru þá ekki skuldum vafnir í verðbólguskuldum eða gjaldeyris, sem þeir stofnuðu til margir hverjir í góðri trú á sínum tíma að ráði fólks sem þeir treystu.
Sigurður Hreiðar, 14.11.2008 kl. 11:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.