Tilkynning um úræðaleysi Sjálfstæðisflokksins?

Síðastliðið ár hefur verið sannkallað martraðarár fyrir þá sem sýnt hafa af sér ráðdeildarsemi og sparsemi á Íslandi. Við höfum horft upp á að sparifé okkar hefur rýrnað um nálægt 50% hvort sem það er sparnaður sem viðhöfum náðaðöngla saman til efri áranna gegnum hlutabréf eða á innistæðureikningum íslenskra lánastofnana. Við sitjum uppi með meira en 50% rýrnun á hlutabréfum, jafnvel meir og íslenska krónan er sáralítils virði.

Fyrir nokkrum misserum afnam eða lækkaði stórlega Seðlabankinn svonefnda bindiskyldu íslenskra viðskiptabanka með skelfilegum áhrifum. Fyrir 5 árum var ákveðið að fara í framkvæmdir við Kárahnjúkavirkjun sem á engan veginn samsvarar hvað smáþjóð eins og Íslendingar geta leyft sér. Við bíðum eftir lokareikningnum frá Impregíló sem ábyggilega á eftir að koma sér ill á ögurstund en kemur þeim sem sýnt hefur raunsæi á þetta mál ekki á óvart. Við þessu öllu var varað sterklega í ræðu og riti á sínum tíma.

Við höfum á undanförnum árum horft upp á sannkallaða gerviveröld á sviði hágengi íslensku krónunnar sem vissulega átti þátt í að draga úr þróttinum úr útflutningsgreinum og ferðaþjónustu á Íslandi. Við tók gegndarlaus og stjórnlaus innflutningur, spákaupmennska og það sem verra er gegndarlaust brask á fjármunum og ótrúlegasta kaupæði sem gengið hefur yfir þjóðina frá upphafi vega.

Nú er greinilega komið að vatnaskilum. Krónan hefur fallið niður úr öllu valdi gagnvart erlendu gjaldmiðlum á nokkrum mánuðum. Hlutabréf hafa fallið mjög mikið, jafnvel í þeim fyrirtækum sem búast mátti við að myndu spjara sig vel á umbrotatímum. Og íslenskur viðskiptabanki sem annars er talinn vera sæmilega vel staddur er jafnvel þjóðnýttur.

Hvað Geir Haarde forsætisráðherra sem lítið hefur aðhafst að undanförnu hefur að boða þjóðinni er kannski í augnablikinu spennandi. En hann hefur fram að þessu tekið þá ákvörðun að gera nánast ekkert, ekki nokkurn skapaðan hlut annað en að lýsa yfir þjóðnýtingu Glitnis og einnig að heimurinn standi frammi fyrir mestu efnahagsþrengingum síðan 1914 eða í 94 ár, hvernig sem beri að skilja það..

Það kæmi því ekki Mosa á óvart að Geir Haarde segi af sér kl. 16.00 fyrir sig og ráðuneyti sitt. Hann og flokkur hans er gjörsamlega að missa tiltrú þjóðarinnar. Sjálfstæðisflokkurinn sem þó hefur stýrt landinu í 17 ár, getur hins vegar ekki stýrt landina á tímum þegar miklir erfiðleikar steðja að þjóðinni.

Við skulum hafa í huga gamalt orðtæki: Allt er betra en íhaldið!

Mosi


mbl.is Forsætisráðherra flytur ávarp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 7
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 242975

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 39
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband