Bruðl og sýndarmennska

Þessi lofvarnarsamningur íslensku ríkisstjórnarinnar við erlend ríki að fá hingað herþotur er með öllu óskiljanlegur. Þetta mál er sett fram í algjöran forgang þó svo að margt annað sé mjög ámælisvert hjá ríkisstjórninni og hún ætti að sjá sóma sinn í að forgangsraða málum betur.

Heilbrigðismálin eru ekki í nógu góðu lagi. Menntamálin eru heldur ekki í nógu góðu lagi. Ýmsir málaflokkar á sviði velferðar og félagsmála eru áratugum á eftir. Málefnum eldri borgara mættu vera mun betur sinnt og hagsmunir þeirra betur tryggðir. Umhverfismál og náttúruvernd eru öll meira og minna í skötulíki. Og þegar kemur að efnahagsmálunum þá tekur steininn úr. Í þeim verkefnum tekur ríkisstjórnin ekki á neinn hátt af skarið og hefði verið strax ástæða til að skipa Seðlabankanum að lækka stýrivexti.

Flug herflugvéla í íslenskri lofthelgi er hneyksli á friðartímum. Fyrir nokkrum árum þegar enn voru gamlar bandarískar herþotur gerðu þeir sér oft leik að því herflugmennirnir að fljúga á ofurhraða skammt frá fuglabjörgum. Þannig varð undirritaður vitni að flugi slíkra herþota við fuglabjörgin við Arnarstapa á Snæfellsnesi. Þetta var skelfileg upplifun sem eg vil ekki þurfa að upplifa aftur.

Og þessi sýndarmennska kostar milljarða. Þvílíkt bruðl á almannafé!

Mosi


mbl.is Frakkar vakta loftrýmið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: ViceRoy

Jamm og svo skera þeir niður í heilbrigðisgeiranum og hjá lögreglunni því þau skila ekki hagnaði...!  Við borgum þetta jú og þetta á að ganga fyrir og er ekki þjónusta sem á að skila hagnaði...

Með öllu óskiljanlegt hver stefnan er hjá ríkisstjórninni í dag.

ViceRoy, 5.5.2008 kl. 12:19

2 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Sammála þessu Mosi,!!!!kveðja/ Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 5.5.2008 kl. 13:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband