Virðingarleysið

Fullir ökufantar

Svona bíræfna karla þyrfti lögreglan að ná í. Að fara fullir á fjöll er lítið skárra en leggja fullur út í eyðimörkina. Hvort tveggja stórhættulegt. Þetta eru þokkapiltar sem kunna sér ekkert hóf og sleppa sér alveg lausum þegar áfengi eða önnur víma kemur við sögu. Hvers vegna eru margir sér til skammar?

Það er lítil virðing borin fyrir þeirri starfsemi sem Ferðafélag Íslands beitir sér fyrir. Ekki er nóg að margir ferðamenn hunsi að greiða skálagjald heldur er verið að stórskemma hús. Og hvernig skyldu þessir sömu fantar haga sér í umferðinni? Og hvernig er önnur umgengni á hálendinu?

Fyrir nokkrum árum kom eg í Landmannalaugar með ferðahóp erlendra ferðamanna. Þetta var um 20. júní, nýbúið var að opna leiðina inn eftir. Þegar í Laugar var komið blasti herlegheit þeirra sem líta á þennan fagra stað eins og miðbæinn í Reykjavík um helgar: víða mátti sjá tómar eða hálftómar bjórdósir, flöskur út um allt ýmist heilar eða brotnar, drasl af ýmsu tagi en öllu verst var að sjá leifar af ýmsum blysum og þá sérstaklega þessum viðurstyggilegu „kökum“. Nú er ekki gott að fá þessa efnamengun í jarðveginn þó e-ð af henni skolast í burtu. Þarna er gróður mjög viðkvæmur og hann er fljótur að þoka ef honum er ekki sýnd sú tillitsemi sem þörf er. Satt best að segja langaði mig til að kalla alla í rútuna og aka til baka. Það var íslenskur leiðsögumaður og bílsstjóri sem voru virkilega reiðir út í þessa íslensku landa sína sem þarna höfðu látið allt liggja í drasli. Það er áleitin spurning hvort ekki þurfi annað hvort að stórefla eftirlit, taka jafnvel upp hátt vetrargjald og hafa þarna mannskap þegar nauðsyn ber til eftirlits. Að öðrum kosti væri kannski rétt að loka þessu friðlandi.

Það er alvarlegt hve lítil virðing virðist vera borin fyrir náttúrunni og þeirri starfsemi sem margir leggja á sig í sjálfboðaliðavinnu. Við horfðum upp á áratuga skógrækt vera eyðilögð nærri Hafnarfirði af einhverjum brennuvörgum sem fengu hjá sér þörf að eyðileggja. Og þarf ekki alltaf einstaklinga til. Hvað var með t.d. skógarhöggið á vegum bæjarstjórans í Kópavogi í leyfisleysi uppi í Heiðmörk? Það er allt mjög einkennilegt mál.

Mosi 

 


mbl.is Drukknir ökumenn skemmdu hús
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 243042

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband