Atvinnumótmæli?

Eru menn alveg að tapa sér í þessum mótmælum? Hafa menn ekkert þarflegra fyrir stafni en að stunda rándýr mótmæli? Hver borgar brúsann? Viðskiptavinir mótmælenda? Leiðir þetta til dýrari framkvæmda?

Nú er aldeilis komið nóg! Blessaðir takið þið upp friðsamari mótmæli, þið eruð fyrir löngu búnir að fara yfir strikið með þessu ofbeldi ykkar að tefja aðra vegfarendur! Hvenær leiða þessar ólöglegu aðferðir til afdrifaríkra afleiðinga á borð við dauða og önnur grafalvarleg tilfelli á borð við eldssvoða eða annars slíks þegar alvarlegar tafir verða á helstu umferðaleiðum? Finnst þið vera góð fyrirmynd með þessu athæfi ykkar? Hvað mynduð þið segja ef aðrir tæku upp á því að þið kæmust ekki leiðar ykkar á ykkar risastóru bílum?

Mosi


mbl.is Bílstjórar á leið í Ártúnsbrekku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kjartan Örn Júlíusson

Ég er alveg hjartanlega sammála þér. Annars hljóta þeir að borga þessi mótmæli sjálfir, þar sem þeir segja alltaf að þeir geti ekki hækkað taxtana sína þó að bensínverðið hækki. Þá getur ekki verið að þeir geti hækkað þá til að standa straum af þessum fáránlegu og ólöglegu aðgerðum þeirra.

Ég hef einmitt hugsað að það væri gaman að sjá hvað þeir myndu segja ef nokkrir menn tækju sig saman og myndu loka þá af inná einhverju vinnusvæðinu í borginni. 

Kjartan Örn Júlíusson, 23.4.2008 kl. 08:48

2 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Víða er óánægja fjölmargra í samfélaginu og væri t.d. unnt að benda á eldri borgarana, sjúklinga sem eru á endalausum biðlistum eftir aðgerð og kjarafólks á borð við kennara sem eru með lökust laun norðan Alpafjalla. Hvað myndu þessir menn gera ef t.d. sjúklingar og eldra fólk þeysti út á göturnar með hækjurnar og stafina, jafnvel akandi í hjólastólum. Myndu þessir trukkamenn nýta aflsmunar og aka fólkið niður?

Það væri skelfilegt. Fordæmið sem þessir herramenn sýna með verknaði sínum er þeim til háborinnar skammar. Hvernig myndu þeir bregðast við ef í ljós kæmi að lögreglan kæmist ekki leiðar sínar að hafa hendur í hári þjófa, nauðgara og annarra þokkapilta?

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 23.4.2008 kl. 08:57

3 identicon

Óttalegir kjánar eruð þið, lesið ykkur til um söguna og einnig hvað er löglegt og hvað er ekki löglegt, við lifum í líræðisríki og hluti af því að lifa og starfa í og við líðræði er að hafa rétt til að mótmæla, þið talið um að bílstjórar eigi að nota önnur úrræði en komið ekki með hvaða önnur úrræði gætu dugað til árangurs, ykkur væri meiri sómi af því að standa með og saman gegn sjálftökuliðinu, sem meðal annars starfar á okkar "háa" Alþingi, á Íslandi eiga allir að gata haft það mjög gott en það verður aldrei á meðan sjálftökuliðið fær að vaða uppi, og það er ma. okkar að standa saman gegn því.

Reykvíkingurinn (IP-tala skráð) 23.4.2008 kl. 09:09

4 identicon

Algerlega sammála þer Guðjón.  Vörubílstjórar eiga að taka upp aðarar aðgerðir en lögbrot ef þeir eru ósáttir. Svo mörg vour þau orð.

Jón Björnsson (IP-tala skráð) 23.4.2008 kl. 11:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband