14.3.2008 | 12:01
Eru menn alveg að tapa sér?
Nú á enn að vaða út í nýtt álævintýri, rétt eins og engum kemur það við nema örfáum hagsmunaaðilum. Þarna er um mjög flókið mál að ræða og með því að vaða blint út í svona vilpu er verið að taka vægast sagt mjög glannalega ákvörðun.
Hvarvetna um alla Evrópu er verið að endurskoða skattaumhverfi stórfyrirtækja. Núna er t.d. verið að leggja á sérstakan umhverfisskatt sem á að hvetja alla að draga sem mest úr mengun. Þeir sem menga beri að greiða fyrir það. Hér á Íslandi hafa yfirvöld sýnt af sér ótrúlega léttúð gagnvart þessum fyrirtækjum sem greiða mjög lágt orkuverð og fá auk þess að menga að vild án þess að greiða eina einustu krónu fyrir mengunarkvóta sem eðlilegt þykir í öllum réttarríkjum þar sem lýðræði er virt í einu og öllu.
Kannski við erum ekki í neinu réttarríki nema þá að nokkru leyti. Kannski ekki heldur í neinu lýðræðisríki, nema það sem kemur vissum hagsmunaaðilum að gagni. Verið er markvisst að þrengja hag þeirra sem minnst mega sín með einkavæðingu á margs konar sviðum: einkavæðing banka, félagsþjónustu, heilbrigðisþjónustu og jafnvel menntun. Allt þetta hefur dregið þann dilk á eftir sér að við erum að greiða hærri okurvexti en nokkurn tímann hefur sést á Íslandi. Við erum að finna fyrir lakari og dýrari heilbrigðisþjónustu. Hvað verður næst er ekki gott að segja.
Í fyrrasumar var samþykkt á Alþingi Íslendinga að íslenska ríkið færði álbræðslunni í Straumsvík stórgjöf, sem árlega nemur um hálfum milljarði króna hér eftirleiðis. Með afnámi svonefnds framleiðslugjalds var álbræðslunni sléttaður út þessi skattur án þess að annar kæmi í staðinn. Hins vegar var fyrirtækinu gert að skila inn skattskýrslum eins og öðrum fyrirtækjum og sæta því skattumhverfi sem fyrirtækjarekstri fylgir. Núna er með öðrum orðum hagkvæmara að greiða tekjuskatt og útsvar fyrir fyrirtæki þetta en að greiða þetta framleiðslugjald sem þó var sett af Sjálfstæðisflokknum fyrir um 40 árum!
Þarna hefði alla vega verið unnt að fara n.k. millileið með því að semja um að álbræðslan greiddi tilskilið umhverfisgjald vegna starfseminnar. En það liggur ætíð svo mikið á að semja við álfurstana að ekki má doka við nokkra stund og athuga sinn gang hvort verið sé að taka rétta ákvörðun.
Við Íslendingar þurfum að taka okkur aðrar þjóðir til fyrirmyndar og taka upp umhverfisgjald, skatt sem leggja ber á alla mengandi starfsemi. Við þurfum t.d. að breyta gjöldum ríkisins á brennanlegu eldsneyti og setja þessa skattheimtu á en draga úr á móti úr gjöldum á bensín og olíur.
Og hvað á að gera við þá miklu fjármuni sem inn koma?
Við Íslendingar stöndum frammi svo gríðarlega mörgum verkefnum að alltaf er mikil þörf á miklum tekjum til að reka almennilega opinbera þjónustu. Við erum með t.d. með mjög ófullkomnar almenningssamgöngur víða. Má t.d. nefna höfuðborgarsvæðið þar sem ekki nema um 4% íbúa nota sér strætisvagna. Við þurfum að efla skólastarf, félagsmál og heilbrigðisþjónustu. Við þurfum að styðja betur við mikilvæg verkefni á borð við skógrækt, klæða landið skógi t.d. neðri hluta fjallshlíða til að binda koltvísýring og draga úr mengun. Hér er fátt eitt talið.
Við þurfum að staldra við gagnvart frekari stóriðjudraumum. Margt bendir til að þeir kunna að snúast upp í martröð áður en yfir lýkur, ekki aðeins okkur sjálfum til verulegs ógagns heldur einnig börnunum okkar og öllum þeim kynslóðum sem eftir okkur koma til með að lifa í þessu landi.
Mosi
Framkvæmdir hafnar í Helguvík | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Siðvæðing í stjórnmálum
Nýjustu færslur
- 24.11.2014 Hvar er jafnréttið?
- 7.11.2014 Er réttarríki á Íslandi?
- 27.10.2014 Byssumálið: krefjumst opinberrar rannsóknar
- 8.10.2014 Sekur eða saklaus?
- 8.9.2014 Jón og séra Jón
Færsluflokkar
Bloggvinir
- Aðalsteinn Sigurgeirsson
- Alfreð Símonarson
- Andrea J. Ólafsdóttir
- Andrés Kristjánsson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Anna Benkovic Mikaelsdóttir
- Arnar Pálsson
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Ágúst H Bjarnason
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Þór Sigurðsson
- Ásgeir Eiríksson
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Baldur Hermannsson
- Baldur Kristjánsson
- Baldvin Jónsson
- Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
- Berglind Steinsdóttir
- Birgir R.
- Bjarki Steingrímsson
- Bjarni Harðarson
- Bjarni Kristjánsson
- Björgvin Björgvinsson
- Björgvin Guðmundsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- busblog.is
- Bwahahaha...
- Dagný
- Einar Ólafsson
- Gammur drils
- Guðfríður Lilja
- Guðjón Baldursson
- Guðjón Petersen
- Guðmundur Steingrímsson
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Halldór Sigurðsson
- Hallvarður Ásgeirsson
- Haraldur Haraldsson
- Heidi Strand
- Helga Auðunsdóttir
- Helgi Þór Gunnarsson
- Herdís Þorvaldsdóttir
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjörleifur Guttormsson
- Hlynur Hallsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hvíti Riddarinn
- Högni Snær Hauksson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
- Jakob Falur Kristinsson
- Jens Guð
- Jón Bjarnason
- Jón Halldór Guðmundsson
- Jón Ingi Cæsarsson
- Kaffistofuumræðan
- Karl Tómasson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Kristbjörg Erla Hreinsdóttir
- Kristbjörn Árnason
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Lára Stefánsdóttir
- Loftslag.is
- Lúðvík Júlíusson
- María Anna P Kristjánsdóttir
- María Kristjánsdóttir
- Máni Ragnar Svansson
- Morgunblaðið
- Ólafur Ingólfsson
- Ólafur Þór Gunnarsson
- Ólafur Örn Jónsson
- Ómar Bjarki Smárason
- Ómar Ragnarsson
- Ósk Vilhjálmsdóttir
- Perla
- Pjetur Hafstein Lárusson
- Rúna Guðfinnsdóttir
- Sigurður Hreiðar
- Sigurður Ingólfsson
- Sigurjón Þórðarson
- Steingrímur Helgason
- Svanur Jóhannesson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Theo
- Torfusamtökin
- Trausti Jónsson
- Umhverfis- og náttúrufræðifélag Mosfellsbæjar
- Úrsúla Jünemann
- Valdís Jóhanna Guðbjartsdóttir
- Vefritid
- Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock)
- Þorsteinn Briem
- Þorsteinn Erlingsson yngri
- Þorsteinn Siglaugsson
- Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
- Ævar Rafn Kjartansson
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 243409
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þetta er náttúrulega alveg ömurlegt. Hérna er hlekkur inn á umhverfisstefnu þeirra fyrir kosningar í fyrra, Fagra Ísland. Ekki ár frá kosningum og þeir hafa svikið loforð sín.
Kári Gautason, 14.3.2008 kl. 12:33
Hvaða bull er þetta. Það kemur engin frá ríkinu að þessu og umhverfisráðherra getur ekki gert neitt. Allt ferlið er lögum samkvæmt og svo eru þetta einkaaðilar sem standa að þessari framkvæmd. Hið opinbera verður að fylgja lögum sama hvort menn séu á móti eða með einhverjum framkvæmdum.
Þetta er bara flott mál.
Magnús Orri Einarsson (IP-tala skráð) 14.3.2008 kl. 15:25
Hvað áttu við með þessu? Skil ekki þessa röksemdarfærslu. Hvet þig að kynna þér betur staðreyndir þessa máls.
Umhverfisráðuneytið gefur út endanlegt leyfi og enginn annar.
Mosi
Guðjón Sigþór Jensson, 14.3.2008 kl. 16:21
Mosi það er margt gott i þessu sem þú segir og satt//,en þetta með okkur er eins og krækiber i helviti,á við mengun USA Indlands og Kína, og fleiri landa/Halli gamli
Haraldur Haraldsson, 15.3.2008 kl. 01:07
Halli: eigum við ekki að sýna öðrum gott fordæmi. Aldrei er gtt að vísa á einhverja aðra slæma slöttólfa þegar manni verður á mistök. Er ekki betra að koma í veg fyrir þau í tíma?
Mosi
Guðjón Sigþór Jensson, 17.3.2008 kl. 08:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.