600 fjár - er það ekki nokkuð djarft á ríkisjörð?

Nú er þetta dágóður sauðfjárbúskapur sem byggist að verulega leyti á rányrkju. Það er alveg óþarfi að styrkja þá starfsemi meira en verið hefur. Kannski að næsti klerkur sem vill sitja þessa jörð vilji auka trjávöxt jarðarinnar og þá er sauðfjárbúskapur eitt það versta sem hægt er að hugsa sér. Satt best að segja þá er þörf á að efla fremur trjárækt en sauðfjárbúskap. Það fer aldrei saman en vetrarbeitin semer gjarnan stunduð til að létta fóðrun á vetrum en hefur eyðilagt meira en flest annað, jafnvel eldgos.

Sauðfjárbúskap þarf að stunda þar sem ekki er níðst á náttúrunni. Fátt hefur eyðilagt meira en vetrarbeit og óhóflegur útigangur sem því miður á ekki að ríkisstyrkja undir neinum kringumstæðum, jafnvel þó einhver kunni að vera afkomandi góðs og mæts guðsmanns. 

Sjálfur er eg kominn af þeim fræga Jóni Steingrímssyni eldklerki og hef sett mig töluvert inn í þær þrengingar sem Íslendingar urðu að ganga í gegnum á fyrri tíð. Í dag þar sem nóg er til af öllu, meira að segja offramleiðsla landbúnaðarvara, þá þarf ekki að sitja uppi með fleiri sauði en nauðsynlegt er í íslenskri náttúru.

Sauðfjárbúskap á ekki að stunda á ríkisjörðum enda væri nauðsynlegri skógrækt sett mjög erfið skilyrði í grennd við þessa sísvöngu sauði sem alltaf hefur verið erfitt að koma lögum yfir og sérstaklega eigendurna.

Mosi 

 


mbl.is Þórarinn flytur úr Laufási
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Vetrarbeit er löngu aflög/Kveðja Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 14.2.2008 kl. 01:03

2 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Vetrarbeit hefur r verið stunduð til skamms tíma á Vatnsleysuströnd. Annars er nútíma sauðfjárbúskapurékki komin lengra en það að sauðfjárbændur komu rollum sínum út fyrir eigin tún og haga og þá telja þeir sig lausir allra mála. Þegar Mosi kom í Mosfellssveitina voru rollur inni í mörgum görðum og átu upp allt það sem fólk var að reyna að rækta hvort sem það voru blóm, grænmeti eða tré. Rollurnar átu allt jafnóðum og sárnaði mörgum.

Ef við hyggjumst koma okkur upp skógi Haraldur, þá ber okkur að leggja út í kostnað við girðingar til að halda rollunum utan við landið okkar. Ef rolla kemst inn þá er það okkur að kenna að girðingin er ekki fjárheld. Finnst þér svona framsóknarlög vera sanngjörn? Því miður sitjum við uppi með arfavitlausa girðingalöggjöf. Eigum við að þakka Framsóknarflokknum fyrir?

Mín vegna má hann fara niður á sextugt dýpi þó fyrr hefði verið!

Mosi

Guðjón Sigþór Jensson, 14.2.2008 kl. 15:06

3 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Sammála Guðjón alveg þarna/Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 14.2.2008 kl. 17:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Siðvæðing í stjórnmálum

Höfundur

Guðjón Sigþór Jensson
Guðjón Sigþór Jensson

BA í bókasafns- og upplýsingafræði frá Félagsvísindadeild HÍ. Próf frá Leiðsöguskóla Íslands 1992.  Áhugamaður um félagsmál, sagnfræði, orkumál, náttúrufræði og umhverfismál. Átti þátt í að stofna Umhverfis- og náttúrufræðifélags Mosfellsbæjar  (stofnað 2007) og var fyrsti formaður til nóv. 2010.

Hef búið í Mosfellsbæ síðan í janúar 1983.

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG_1616
  • Frá Svörtu gljúfrum Gunnison þjóðgarði
  • Bútur af járnbrautarteinum?
  • ...259_1074252
  • ...259_1074251

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 10
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 242947

Annað

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband