3.2.2008 | 18:44
Köld helgi
Þá er kaldasta helgi ársins að baki. Á föstudagskvöld blasti við í Mosfellsbænum sjaldgæf sjón á upplýsingaskilti Vegagerðarinnar: LOGN bæði undir Hafnarfjalli og á Kjalarnesi. Hins vegar var nokkuð kalt, eða tveggja stafa mínus tala á báðum veðurathugarstöðvum Vegagerðarinnar.
Í Skorradal var hitastigið hins vegar töluvert lægra eða -29 gráður! Hef aldrei séð lægri hitatölu og varð að kalla á allt heimilisfólkið til að bera viðundrið augum. Þessi hitamælir er í nær 2ja metra hæð og festur á millivegg milli tveggja húsa. Þannig að nokkuð er nálægt staðalviðmiðunum en því miður of nálægt húsum sem hefðu fremur átt að hafa hækkandi áhrif á hitamælinguna. Á öðrum hitamæli utan á kofanum var hitastigið nálægt -24C þannig að það gæti gengið upp þar sem einhver áhrifa er af upphitaða húsinu.
Um kvöldið var eitt það fegursta vetrarkvöld sem hægt er að óska sér. Bragandi norðurljósin tylltu sér á ofan á Skessuhornið og fóru síðan hamförum í landnorður ofan við Skorradalsvatn sem var frosið. Stjörnuskinið er mjög fagurt enda var hvorki ljósmengun frá byggðum né tunglskin til að draga úr stjörnudýrðinni. Uppi yfir mátti greina Karlsvagninn með þeirri leyndardómsfullu stjörnu Mizar. Þar skammt frá mátti sjá Casseopea eins og risastórt W í laginu. Og í landsuðri mátti sjá skæra Oríon sem Íslendingar nefndu Fjósakonurnar. Hvar skyldu Venus og Júpítér hafa haldið sig nema einhvers staðar í Ljónsmerkinu. Þá þarf að finna Regúlus sem er aðalstjarnan í því merki. Mikið væri gaman að þekkja fleiri stjörnur og stjörnumerki.
Daginn eftir var unnt að ganga á vatninu þvert yfir og eftir því endilöngu svo langt sem hugurinn vildi. Því miður voru nokkrir mótorhjólagemlingar sem rufu náttúrukyrrðina en svo voru þeir horfnir út í buskann ásamt vélsleðamönnum sem ekki kunna að njóta þeirrar kyrrðar sem kannski er lang mest eftirsóknarverðustu gæðin í heiminum í dag. Að vera einn á ferð meðsjálfum sér eð með góðum göngufélaga er eitt það skemmtilegasta sem hægt er að hugsa sér. Síðdegis hitti Mosi granna sinn sem var að koma heim í hús sitt með hundi sínum eftir langa gönguskíðaferð.
Er unnt að komast lengra að njóta náttúrunnar? Við þurfum ekki að njóta hennar með látum og hávaða.
Mosi
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Um bloggið
Siðvæðing í stjórnmálum
Nýjustu færslur
- 24.11.2014 Hvar er jafnréttið?
- 7.11.2014 Er réttarríki á Íslandi?
- 27.10.2014 Byssumálið: krefjumst opinberrar rannsóknar
- 8.10.2014 Sekur eða saklaus?
- 8.9.2014 Jón og séra Jón
Færsluflokkar
Bloggvinir
- Aðalsteinn Sigurgeirsson
- Alfreð Símonarson
- Andrea J. Ólafsdóttir
- Andrés Kristjánsson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Anna Benkovic Mikaelsdóttir
- Arnar Pálsson
- Axel Jóhann Hallgrímsson
- Ágúst H Bjarnason
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Þór Sigurðsson
- Ásgeir Eiríksson
- Ásgeir Rúnar Helgason
- Baldur Hermannsson
- Baldur Kristjánsson
- Baldvin Jónsson
- Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson)
- Berglind Steinsdóttir
- Birgir R.
- Bjarki Steingrímsson
- Bjarni Harðarson
- Bjarni Kristjánsson
- Björgvin Björgvinsson
- Björgvin Guðmundsson
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- busblog.is
- Bwahahaha...
- Dagný
- Einar Ólafsson
- Gammur drils
- Guðfríður Lilja
- Guðjón Baldursson
- Guðjón Petersen
- Guðmundur Steingrímsson
- Guðsteinn Haukur Barkarson
- Halldór Sigurðsson
- Hallvarður Ásgeirsson
- Haraldur Haraldsson
- Heidi Strand
- Helga Auðunsdóttir
- Helgi Þór Gunnarsson
- Herdís Þorvaldsdóttir
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjörleifur Guttormsson
- Hlynur Hallsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hvíti Riddarinn
- Högni Snær Hauksson
- Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
- Ingólfur Ásgeir Jóhannesson
- Jakob Falur Kristinsson
- Jens Guð
- Jón Bjarnason
- Jón Halldór Guðmundsson
- Jón Ingi Cæsarsson
- Kaffistofuumræðan
- Karl Tómasson
- Kjartan Pétur Sigurðsson
- Kristbjörg Erla Hreinsdóttir
- Kristbjörn Árnason
- Lára Hanna Einarsdóttir
- Lára Stefánsdóttir
- Loftslag.is
- Lúðvík Júlíusson
- María Anna P Kristjánsdóttir
- María Kristjánsdóttir
- Máni Ragnar Svansson
- Morgunblaðið
- Ólafur Ingólfsson
- Ólafur Þór Gunnarsson
- Ólafur Örn Jónsson
- Ómar Bjarki Smárason
- Ómar Ragnarsson
- Ósk Vilhjálmsdóttir
- Perla
- Pjetur Hafstein Lárusson
- Rúna Guðfinnsdóttir
- Sigurður Hreiðar
- Sigurður Ingólfsson
- Sigurjón Þórðarson
- Steingrímur Helgason
- Svanur Jóhannesson
- Sveinn Atli Gunnarsson
- Theo
- Torfusamtökin
- Trausti Jónsson
- Umhverfis- og náttúrufræðifélag Mosfellsbæjar
- Úrsúla Jünemann
- Valdís Jóhanna Guðbjartsdóttir
- Vefritid
- Þorsteinn Ásgeirsson (Icerock)
- Þorsteinn Briem
- Þorsteinn Erlingsson yngri
- Þorsteinn Siglaugsson
- Þorvaldur Heiðar Þorsteinsson
- Ævar Rafn Kjartansson
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 243409
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Bæði Kvöldstund og morgunstund,gefa gull i mund,við þessar aðstæður/Kveðja Halli gamli
Haraldur Haraldsson, 3.2.2008 kl. 23:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.